Freyr - 01.03.1927, Qupperneq 26
44
F R E Y R
Kartöflurækt.
Árið 1759 fékk Björn Halldórsson í
Sauðlauksdal fyrstur manna kartöflur
hingað til landsins og ræktaði þær. Út-
breiðsla þeirra varð þó lítil, í byrjun,
fyr en á stríðsárunum 1807—14, þegar
lítill eða enginn matur fluttist hingað til
landsins. En eftir stríðið stóð kartöflu-
ræktin í stað þar til um 1840—60 að hún
tók miklum framförum, en frá því og til
1880 var kyrstöðutímabil eða jafnvel
afturför í kartöfluræktinni.
Frá 1880 jókst svo ræktunin hröðum
skrefum til 1909. Þá ræktuðum við meira
af kartöflum en nokkru sinni, hæði fyr
og síðar, en síðan hefur kartöfluræktin
í stórum dráttum staðið i stað.
En innflutningur á kartöflum hefur
aftur á móti aukist hröðum fetum.
Á árunum 1904—:08 var flutt inn um
7200 tn. að meðaltali á ári fyrir um
67800 kr. En síðustu 5 árin sem hag-
skýrslurnar ná yfir 1919—23 var inn-
flutningurinn um 18400 tn. fyrir um
433000 kr.
Á sömu 5 ára tímabilum nam ræktun-
in 1904—08 21400 tn. að meðaltali á ári,
en 1919—23 25000 tn. að meðaltali á ári.
Þetta eru Ijótar tölur, en þær tala sínu
máli til viðvörunar. Þær segja, að við
flytjum nú inn nær því þrisvar sinnum
meira af kartöflum en fyrir 15 árum síð-
an og gefum fyrir þær 6—7 sinnum hærra
verð, en á sama tíma hefur ræktunin
aukist um aðeins %.
Hvað veldur?
Er það það, að hér sé ekki hægt, nátt-
úrunnar vegna, að rækta kartöflur að
nokkruin mun? Eða fást útlendu kar-
töflurnar ódýrara en frainleiðsluverð ís-
lenskra kartafla er?
Meðal-uppskera af kartöflum hér á
landi mun vera nálægt 40—45 tn. af dag-
sláttu. í Danmörku er meðal-uppskera
um 50 tn„ og ég er sannfærður um það,
að þessi munur stafar eingöngu af því,
að þar stendur ræktunin skör hærra en
hér. Enda eru þess rnörg dæmi, að menn
hafa fengið 70 tn. að meðaltali í fleiri
ár; já, og það jafnvel á útkjálkum lands-
ins, og í sumum árum eru dæmi til að
fengist hafi sem svarar 100—150 og jafn-
vel 200 tn af dagsláttu hér á landi.
Ég þekki tvo bæi, þar sem á öðrum
fæst ávalt góð uppskera, en á hinum
varla fyrir litsæði þegar reynt er. Það
er aðeins 5 mínútna gangur milli bæj-
anna og náttúruskilyrði öll hin sömu.
Þetta er ekki hægt að kenna náttúrunni,
heldur kunnáttuleysi mannanna og svo
mun viðar.
Og hvað ætli það kosti nú að frainleiða
kartöflurnar hér á landi? Það ættuð þið
að gera ykkur grein fyrir, bændur góðir.
Það er ekki mikil fyrirhöfn. Athugulir
bændur hafa sagt mér, að það kostaði
þá ekki meira en 5—7 kr. Það mun því
vel í lagt ef reiknað er með 7—9 kr.
Og hvað kosta útlendu kartöflurnar
heimfluttar? Það er nokkuð misjafnt.
Algengast hygg ég vera 22—30 kr. Með
ö. o. þrisvar sinnum meira en fram-
leiðsluverð innlendra kartafla. Þær út-
lendu kartöflur, sem hingað flytjast kosta
í Danmörku heldur ekki meira en 7—9
kr. tunnan. Hinar 14—20 krónurnar sem
bændur og aðrir kaupendur hér á landi
gefa fyrir kartöflurnar eru því ekki ann-
að en einhverskonar álagning. Hvernig
líst ykkur á það?
Tvö atrið vil ég minnast á enn.
1) Kartöflurnar eru einhver hin holl-
asta fæðutegund. Og ekki síst fyrir okk-
ur Islendinga sem borðum svo mikið af
kjöti og fiski, en ræktum ekki korn, eru
kartöflur og annar garðinatur ómissandi
fæða.