Freyr - 01.03.1927, Blaðsíða 35
F R E Y R
53
hey með mesta móti hér í haust. Grasið
var stórvaxið og hrúgaði mikið upp með
hinum gömlu stæðum sem í leifum urðu
frá hinum milda vetri í fyrra. Rigningum
linti hér er þrjár vikur voru til vetrar,
en úr því gripu frost með þurðviðrum.
Hindraðist því öll jarðarbótavinna og
annað, sem að torfverkum laut.
Kaupgjald. Kvenfólk hafði flest 25
kr. um viku. Sumt 30 kr., og máske verið
dæmi til þess að hærra hafi verið gohlið
einstaka stúlku, sem af hefir borið. Af
karlmönnum var framboð meira. Flestir
munu þeir hafa haft 50 kr. um viku. Og
á ýmsum tölum mun hafa leikið með
kaup þeirra, frá 40—65 kr. um viku
En ekki eru verðleikar þar neinn mæli-
kvarði.
Sláturvcrö sauöfjár: Fyrsta floklcs
kjöt kg. 1,30. Gærur kg. 1,30. Mör 1,40.
Slátur 1,50—1,70.
Sauðfé var með langrýrasta móti í haust,
þrátt fyrir hið hlíða vor og mikla gras.
Telja menn meðalvigt í dilkaskrokkum
3—4 pundum lægri en undanfarin ár.
Bráðapest. Aldrei hefir borið jafn
mikið á henni hér um slóðir sem í
haust, frá þvi bólusetningar við henni
byrjuðu. Létu • menn því bólusetja all
ungt fé svo fljótt sem því varð við
komið. Sumsstaðar virtist ein bólusetn-
ing duga, en á öðrum stöðum varð pestar
talsvert vart í bólusettu fé. Létu margir
bólusetja féð á ný. Virtist það duga vel.
Klaufaveikin í vorlömbum kom hvergi
í ljós síðastliðið vor.
Fjárkláðinn. Hans varð vart á bæ og bæ
víðsvegar um héraðið síðastliðinn vetur.
Sannaðist það í vor, að hvergi hafði hann
útrýmst, þótt tvíbaðað væri undir góðri
stjórn eftirlitsmanna. Lítið gætti kláðans
í haust, er fé kom úr afréttum. Bændur
fagna yfir því, að hafa óbundnar hendur
í vali baðlyfja. Telja margra ára eigin-
reynslu besta leiðarvísirinn i þeim efnum.
Vilja nú flestir hér fresta útrýmingar-
böðun fyrst um sinn, því með sæmilegri
aðgæslu þarf kláðinn ekki að valda veru-
legu tjóni, þegar.nothæf meðul eru fyrir
hendi. Þríböðun að vetrarlagi vilja fáir
kjósa.
Framh.
Verölag.
1 fyrra birtum vér verðlag á nokkrum
ræktunarvörum bænda. Verðlag þetta var
aðallega miðað við heildsöluverð í
Reykjavík. Vér hyggjum að þetta hafi
orðið mörgum til leiðbeininga og að þeir
þess vegna hafi sætt betri kjörum en ella
við kaup á þessum vörum.
Vér höfum enn á ný Ieitað upplýsinga
um heildsölu-verð á nokkrum ræktunar-
vörum hér í Reykjavík, en það er það
verð, sem kaupmenn og kaupfélög og
aðrir sem kaupa í stærri stíl geta fengið
vörurnar fyrir.
Verðið er þannig:
Tilbúinn áburður — pr. 100 kg.:
Noregssaltpétur ............... kr. 25.00
Þýskur kalksaltpétur ............ — 26.35
Superfosfat 18% ...... — 12.00
Kalí 37% ........................ — 22.00
Kjarnfóður:
Maísmjöl ......... kr. 26.25 pr. 100 kg.
Girðingarefni:
Gaddavír, rúllan 25 kg. kr. 11.00—12.50
Járnstólpar, T-lagaðir, sterkir, kr. 2.00—2.20
Á mörgum ræktunarvörum er verðið
enn óákveðið, svo vér getum eigi skýrt
frá því í þetta sinn.