Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 8

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 8
engu orðið. Nauðsynlegt er að tala um missi barnsAiarna við foreldra, - að for- eldrar tali saman um barnið sitt. Að vinir og ættingjar leyfi foreldrum að tala um látið barn sitt, skoða myndir af því, tala um gleðina sem það veitti á þeim stutta tíma sem það var til staðar (meðgöngu- tímann). Eldri systkini. - Nauðsynlegt er að tala vel við eldri systkini andvana fæddra barna. Þau eru líka búin að bíða eftir syst- kini og hlakka til komu þess. Börn skilja og skynja mikið meira en við fullorðnu oft höldum og því er best að segja þeim strax eins og er. Eg tel mjög heppilegt að þau fái að sjá systkini sitt og halda á því ef kostur er. Síðan þarf að útskýra eins og hægt er fyrir barninu af hverju litla systkinið fékk ekki að vera hér lengur. Mörg börn kenna sér um dauða litla barnsins. Þau hafi verið óþekk við mömmu eða gert eitthvað af sér og þess vegna hafi barnið dáið. Því er svo mikil þörf að hafa börnin með og útskýra fyrir þeim ekkert síður en þeim fullorðnu, en þó á aðeins annan hátt. Eins að systkini séu við útför og fái að gefa Iitla barninu gjöf ef þau langar til, oft er það leikfang sem þau hafa átt eða þau hafa safnað fyrir. Með þessu móti fá þau sitt tækifæri til að gera eitthvað fyrir litla barnið og þau gleðjast yfir því. Að koma út í lífið að nýju. Undirbúa þarf foreldra fyrir að koma úr vernduðu umhverfi út í lífið að nýju. Þar mætir þeim margt óvænt og óvægið. Þau fá hamingjuóskir, þ.e. fólk sér að ekki er lengur von á barni og þá standa þau allt í einu í sporum huggarans. Eins verða þau fyrir því að fólk þorir ekki - vill ekki - tala um það sem komið hefur fyrir og á það jafnt við um ættingja, vini eða 6_____________________________________ vinnufélaga. Venjulega er það þó ein- ungis á yfirborðinu og vegna þess að fólk veit ekki hvernig það á að byrja og talar svo um eitthvað sem enginn hefur áhuga á, eða eins og ein móðir sagði við mig. „Eg þoli ekki hann pabba, hann talar bara um fótbolta". Seinna hitti ég þennan mann og þá þakkaði hann mér svo innilega fyrir dóttur sína, svo að eit- thvað hefur hann verið að hugsa fleira en hann kom orðum að. Kæru ljósmæður, við sem fáum þá gleði að taka á móti heilbrigðum og hraustum lifandi börnum og taka þátt í gleði foreldranna, við erum alveg eins færar um að taka þátt í sorg þeirra sem missa, leiðbeina þeim og aðstoða. Benda þeim á hvað það sé fallegt - horfa á litla hendi eða fót og meðhöndla allt í sam- bandi við fæðinguna og eftir hana á sem eðlilegastan hátt. Það er svo mikilvægt í sorginni að tala saman um það sem skeð er og hvernig smátt og smátt birtir til og lífið kemur til baka, þó aldrei í sömu mynd og áður, en yfirleitt með meiri skilningi á margbreyti- leika þess en áður var. Þeir sem taka að sér að sinna foreldrum sem fæða and- vana barn eða missa barn í frumbernsku verða að vera undir það búnir að mikill tími fer í slíka vinnu og að hún verður að gefast af góðu hugarfari með innri ósk um að veita öðrum hjálp í sorg. „Þú átt lítið blóm sem gaf þér gleði það gæddi lífið tilgangi og hljóm. Þó að sorg sé nú í þínu geði sæl þér uerður minning um það blóm. “ (Guðrún V. Gísladóttir). LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.