Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 27

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 27
VILBORG TORFADÓTTIR, ljósmóðir: Mæðravernd á heilsugæslustob Heilsugæslustöð Hafnarfjarðar er staðsett við elliheimilið Sólvang. Stöðin var áður við Strandgötu, en fluttist í nýtt húsnæði haustið 1988. Fram að áramót- um 1988-1989 var mæðravernd í eins- konar útibúi frá heilsugæslustöðinni. Fyrst á Sólvangi, síðan á St. Jósefspítala. Þangað kom fæðingarlæknir ásamt tveim ljósmæðrum og skoðuðu hafn- firskar konur. Um áramót fluttist svo mæðraverndin yfir á nýju heilsugæslu- stöðina og tóku þá heilsugæslulæknar og ljósmóðir nánast alfarið við mæðra- verndinni. Eg byrjaði í 50% vinnu við mæðra- verndina í Hafnarfirði haustið 1988 og tók þátt í þeirri skemmtilegu vinnu ásamt Herdísi Sigurbjörnsdóttur ljósmóður og hjúkrunarfræðingi, að byggja upp mæðravernd með heilsugæslulæknum. Heilsugæslulæknar í Hafnarfirði eru sjö ásamt prófessor í heimilislækningum. Fyrsta árið nutum við aðstoðar Þóru Fischer fæðingarlæknis, sem skoðaði allar ófrískar konur tvisvar í meðgöngu, fyrst eftir 12-14 vikur og svo 33-35 vikur. Þar fyrir utan eftir ástæðum og þörfum. Frá því í ársbyrjun 1990 hefur ekki verið starfandi fæðingarlæknir við heilsugæslustöðina. Þar kemur til góða að við erum í góðri samvinnu við fæð- •ngardeild Landspítalans, sem hefur í öll- um tilfellum tekið vel á móti konum okkar úr „firðinum". Gildir það bæði um ljós- mæður og fæðingarlækna. Fagfólk við heilsugæslustöðina í Hafnarfirði vinnur teymisvinnu, sem kemur vel út fyrir skjólstæðinga þeirra. Þeir hafa sama lækni og sama hjúkrunar- fræðing frá vöggu til grafar. (Svo frama- lega að þeir séu sannir gaflarar og búi alltaf í Hafnarfirði). Mæðraverndin tekur ekki beint þátt í teymisvinnunni enn, því ég er eingöngu í mæðravernd. Viðkom- andi heilsugæslulæknir sinnir samt um sinar konur i meðgöngu og áfram eftir fæðingu. Þær hafa þó í flestum tilfellum hitt sinn heilsugæsluhjúkrunarfræðing einhvern tíma í meðgöngunni og stefnt er að því að það verði markvissara í fram- tíðinni. Mæðravernd á hjólum. Ekki var gert ráð fyrir sérstöku herbergi fyrir mæðraverndina á heilsugæslustöðinni, mæðraverndin fer því fram á skoðunar- herbergi þess heilsugæslulæknis, sem konan er í samfélagi hjá. Hefur hver læknir ca 2-4 tíma fyrir sínar konur. Pantað var fyrir mig forláta vagn með hirslum og hólfum til allra nota. Þar hef ég allt sem tilheyrir mæðraverndinni, nema mæðraskrár, sem við læsum inni hjá læknariturum. Síðan bruna ég með vagninn milli herbergja, en þó aldrei meira en 3 herbergi yfir daginn. Vagninn er stundum kallaður „hjólbörur" eða „hjólabretti" í gríni. Það getur verið kost- 25 UJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.