Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 29
EVA S. EINARSDÓTTIR, kennsluljósmóðir:
Saga kvenna,
faébingahjálp, uppeldi og
menntun Ijósmæbra
Erindi flutt á ráðstefnu ljósmæðra í apríl 1993
Ráðstefnustjórar! Kæru ljósmæður!
Tilefni þess að ég er komin hér í
ræðupúlt er að ljósmæðurnar, sem
standa fyrir ráðstefnunni okkar komu að
máli við mig og báðu mig um að koma
með svolítið sögulegt yfirlit um menntun
ljósmæðra. En þar sem við ljósmæður
erum jú hefðbundin kvennastétt hef ég
einnig ákveðið að skoða málið svolítið út
frá því, og ætla ég því að kalla þetta er-
indi mitt: „Sögu kvenna, fæðingahjálp,
uppeldi og menntun ljósmæðra“.
Margar konur tala um það hvernig
standi á því hvað störf okkar kvenna eru
lítils metin. Eg hef oft einnig hugleitt það
og þá ekki síst það sem snýr að okkur
ljósmæðrum. Og ég geri ráð fyrir því
a.m.k. þær ljósmæður, sem staddar voru
á fundinum um fæðingahjálp, sem hald-
inn var á Hótel Loftleiðum á vegum
landlæknis 25. febrúar síðastliðinn geti
vart hugsað mikið öðruvísi en ég. En í
þeirri umræðu sérstaklega þegar farið
var að tala um fæðingar út á landsbyggð-
inni, virtist svo að það snérist um getu
heilsugæslulækna hvort fæðing gæti far-
ið þar fram eða ekki, og að þeir væru í
því sambandi aðalþungamiðjan. Það var
engu líkara en að ljósmæður væru ekki
til, sem eru þó sérlærðir fagaðilar í
mæðraeftirliti, fæðingahjálp, umönnun
sængurkvenna og nýbura. Það var ekki
fyrr en ein af okkar ágætu ljósmæðrum
stóð upp, og spurði hvort það skipti ekki
neinu máli að ljósmóðir væri þar á
staðnum, að menn virtust skynja tilvist
okkar og að ljósmæður væru þar nauð-
synlegar. Með allri virðingu fyrir læknum,
þá kemur manni alltaf jafn mikið á óvart
að ljósmæður gleymist í umræðunni. Sí
og æ þurfi að minna á okkur, þessi fram-
koma virðist endalaus.
Hverjir hafa annast fæðingahjálpina
gegnum tíðina?
Svona í upphafi langar mig fyrst til að
reyna að skyggnast aftur til fortíðar, og
skoða með ykkur „söguna" og hverjir
munu þá hafa sinnt fæðingahjálpinni og
síðan þróun ýmissa mála, sem snúið hafa
að konum og ljósmæðrum. „Sagan“ get-
ur sagt okkur margt.
I grein í Ljósmæðrablaðinu 3. tbl.
1928 segir: „Frá örófi alda hefur það ver-
ið siður að kvenfólk hefði með höndum
ljósmóðurstörf. Þetta er heldur ekkert
undarlegt, því að ljósmóðurstörf eru
----------------------------------- 27
EJÓSMÆÐRABLAÐIÐ