Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 14
að það verði fæðingar þar eða bara rúm
fyrir sængurkonur er ekki á hreinu, en
það er eindreginn vilji Ljósmæðrafélags
íslands að Fæðingarheimilið verði opnað
sem fæðingarstofnun sem allra fyrst.
Kvikmyndafyrirtækið Myndbær kom
að máli við Ljósmæðrafélagið um að
Ljósmæðrafélagið gerði samstarfssamn-
ing við Myndbæ um gerð fræðslumynd-
bands um meðgöngu, fæðingu og eftir
fæðingu. Undirritaður var samningur við
Myndbæ í febrúar s.l. þar sem Myndbær
tekur að sér að framleiða myndbandið og
bera alla fjárhagslega ábyrgð á því en
LMFÍ veitir faglega aðstoð og samþykkir
það áður en það verður sent út til dreif-
ingar. Eftir að þessi samningur var gerð-
ur kom í ljós að aðrir aðilar eru komnir
nokkuð á veg með að gera sambærilegt
myndband í samvinnu við Landspítalann
og Námsgagnastofnun og hefur því verið
ákveðið að fresta gerð þessa myndbands
um óákveðinn tíma.
I umærðum á Alþingi um fjárlögin s.l.
haust kom til tals að stytta fæðingar-
orlofið í sparnaðarskyni. Stjórn LMFÍ
sendi frá sér svohljóðandi ályktun 7. des.
1992:
„Ljósmæðrafélag Islands lýsir yfir
áhyggjum sínum varðandi umræðuna
undanfarið um styttingu fæðingar-
orlofs. Félagið vill benda á að fæð-
ingarorlof er ekki eingöngu hags-
munamál foreldra heldur þjóðfélags-
ins í heild, þar sem samvera foreldra
og barna fyrstu mánuðina eftir fæð-
ingu leggur grunn að líkamlegu og
andlegu heilbrigði barna. Með stytt-
ingu fæðingarorlofs yrði enn frekar
vegið að aðbúnaði barna í samfélagi
okkar.“
Ekkert varð af skerðingu fæðingar-
orlofs í þetta sinn, en ég er hrædd um að
þessi umræða eigi aftur eftir að koma
upp og er því nauðsynlegt að halda vöku
sinni.
Á síðasta aðalfundi lagði ég til að
Ljósmæðrafélagið stæði fyrir ráðstefnum
um fagleg mál, sem að ljósmæðrum snúa
og lagði til að „Öryggi við barnsburð"
yrði fyrsta viðfangsefnið. Þátttakan á ráð-
stefnunni hefur sýnt betur en nokkuð
annað að ljósmæður eru tilbúnar að
ræða fagleg málefni og legg ég til að
stefnt verði að því að halda slíkar ráð-
stefnur á nokkurra ára fresti.
Það er mikil vinna að baki ráðstefnu
sem þessari. Margir fundir hafa verið
haldnir, miklar bréfaskriftir og símtölin
skipta örugglega hundruðum. En þar hef-
ur einvalalið lagt hönd á plóginn og unnið
þetta mikla starf. Fræðslunefnd félagsins
hefur átt þar stærstan hlut ásamt full-
trúum úr stjórn félagsins. Eg þakka þeim
öllum kærlega fyrir þeirra mikla starf.
Þess ber að geta að Heilbrigðisráðuneytið
veitti styrk til ráðstefnunnar að upphæð
200 þúsund krónur og Landspítalinn veit-
ti 50 þúsund króna styrk. Við þökkum
þessum aðilum kærlega fyrir.
Stjórn Ljósmæðrafélags Islands telur
að nauðsynlegt sé að stofna Mennta- og
Starfsleyfanefnd og Siðanefnd félagsins.
Tillaga um þetta efni verður lögð fram á
eftir.
Mörg mál hafa verið rædd á stjórn-
arfundum, þó að engin sérstök niður-
staða hafi fengist í þeim. Stjórnin er þó
sammála um að tvö mál verði að skoða
sérstaklega á næsta starfsári. Annað er
að móta stefnu Ljósmæðrafélags íslands
í fæðingarmálum landsins. Það er í raun
óþolandi að félag ljósmæðra skuli ekki
hafa neina opinbera stefnu í fæðingar-
12
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ