Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Side 10

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Side 10
vera fram á 7. dag eftir eðlilega fæðingu en reynslan sýnir að flestar kjósa að fara heim á 5.-6. degi. Mjög fáar velja að fara fyrr. Mæðumar eru með börnin inni hjá sér á daginn að mestu leyti og sinna þeim sjálfar eftir getu. Þær fá leikfimi hjá sjúkraþjálfara, brjóstafræðslu og sýnibað á 3.-4. degi. Er í rauninni synd að geta ekki haft pabbana með í því en til að bæta það upp er þeim boðið að baða börnin eftir fæðingu. Auk þess reynum við ávallt að finna stund til að setjast niður inni hjá þeim og rabba við þær um allt mögulegt sem þeim liggur á hjarta. A nóttunni eru börnin flest á barnastofu én þær konur sem þess óska geta haft börnin inni hjá sér. Eru það helst frum- byrjur „sem vilja æfa sig“ sem nýta sér það síðustu nóttina fyrir heimför. I þessu sambandi er reynt sem áður að koma til móts við hverja og eina konu. Ekki að setja fastar reglur! Eins og í upphafi kom fram á Sjúkra- hús Akraness 40 ára afmæli um þessar mundir. Fæðingadeildin ákvað, í tilefni þessara tímamóta, að efna til fræðslu- dags fyrir starfsfók fæðingadeilda og mæðravernda á Vesturlandi. Var ráð- stefnan haldin þ. 3. okt. s.l. í veitinga- húsinu Langasandi á Akranesi og var dagskráin svohljóðandi: 9.15-9.30 9.30-9.35 9.35-10.30 10.30-10.55 Afhending gagna og greiðsla þátttökugjalds. Setning. Nýir straumar í slökun og deyfingu við fæðingar. Jónína Ingólfsdóttir, yfir- ljósmóðir, Sjúkrahúsi Akraness. Brjóstagjöf. Ðín Sigur- bjömsdóttir, hjálparmóðir. 11.00-12.00 12.00-13.15 13.15-14.00 14.00-15.00 15.00-15.30 Grindarlos á meðgöngu. Esther Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari, Kvennadeild Landspítalans. Matarhlé. Frá ljósmæðraþingi í Kaupmannahöfn 4.-6. sept. 1992. Drífa Björns- dóttir ljósm. Sjúkrahúsi Akraness. Elín Sigur- björnsdóttir ljósm. Sjúkrahúsi Akraness. Pre-eclamsia - Eclamp- sia. Þóra Fischer, læknir, Kvennadeild Landspítal- ans. Grindarmælingar. Þóra Fischer, læknir, Kvenna- deild Landspítalans. Þátttaka var mjög góð, u.þ.b. 40 manns og voru sumir komnir langt að. Er greinilegt að þörfin fyrir fræðslu af þessu tagi er mikil og létu gestir í ljós ánægju með framtakið. í lok ráðstefnunnar var öllum þátttakendum boðið í „afmælis- kaffi“ á sjúkrahúsinu. Þetta var dálítill pistill um það sem við höfum haft fyrir stafni að undanförnu á Fæðingadeild Sjúkrahúss Akraness og vona ég að einhverjar hafi gaman af. Gaman væri líka að heyra hvað ljós- mæður á öðrum sjúkrahúsum og/eða heilsugæslustöðvum eru að gera þessa dagana. Látið í ykkur heyra. 8 UÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.