Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Qupperneq 11

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Qupperneq 11
Athugasemd frá sérfræðingum Kvennadeildar Landspítalans Frú Harma Antoníusdóttir, ritstjóri Ljósmæðrablaðsins, Kvennadeild 22-B, Lsp. Kæra Hanna. I Ljósmæðrablaðinu, 2. tölublaði, 70. árgangi 1992, á blaðsíðu 48, birtist greinarkorn, sem Olafur Olafsson land- læknir sendi í Morgunblaðið í apríl s.l. Þessi athugasemd landlæknis, sem Ljós- mæðrablaðið nú endurbirtir, þótti lækn- um Kvennadeildar vera ósanngjörn og byggð á röngum forsendum þar sem landlæknir nýtti sér tölur um burðarmáls- dauða til að draga af þeim ályktanir sem tölurnar alls ekki geta gefið tilefni til. Þessu var harðlega mótmælt við land- lækni sjálfan og í yfirlýsingu sem sér- fræðingar Kvennadeildar Landspítalans Yfirlýsing er svohljóðandi: „Að gefnu tilefni vilja sérfræðingar kvennadeildar Landspítalans taka fram eftirfarandi: Aldrei er unnt að segja með vissu til um það fyrirfram hvort fæðing verði eðlileg eða áhætta skapist meðan á henni stendur. Þurft getur að grípa skyndilega inn i fæðingu til að bjarga barninu og geta þá örfáar mínútur skipt sköpum. Til þess að meta eðlilegan framgang fæðingar er nauðsynlegt að fylgjast með framvindu hennar frá upp- hafi til enda. Eðli málsins samkvæmt er því ógjörn- lngur fyrir einn lækni að bera ábyrgð á fæðingum, sem fram fara á tveimur mis- ^sunandi stöðum samtímis. Fjöldi fæð- lr>ga og önnur læknisfræðileg vandamál, Sem krejast úrlausna á vöktum á kvenna- sendu Morgunblaðinu og birtist þar 7.5. s.l. Yfirlýsingin fylgir hér með í ljósriti. Tölur um burðarmálsdauða á litlum sjúkrahúsum úti á landi, þar sem ætlast er til að eingöngu áhættulitlar fæðingar fari fram, staðfesta að aldrei er unnt að segja með neinni vissu um framgang eða áhættu samfara fæðingu, fyrr en að henni afstaðinni. Læknar á Kvennadeild, nánustu sam- verkamenn ljósmæðra deildarinnar í yfir 40 ár, óska hér með eftir því við Ljós- mæðrablaðið að það birti þetta bréf í næsta tölublaði ásamt yfirlýsingunni sem kom í Morgunblaðinu 7.5.’92. F.h. lækna Kvennadeildar Lsp., Reynir Tómas Geirsson, læknir Auðólfur Gunnarsson, læknir. deild Landspitalans, eru það mikil að ókleift er með öllu að sami sérfræðingur sinni samtímis vöktum þar og á Fæð- ingarheimili Reykjavíkur. Spurningin um framhald fæðinga á Fæðingarheimili Reykjavíkur snýst því að okkar mati um það, hvort einhverjir aðilar, þ.e. hið opinbera eða einstaklingar, séu fúsir til að greiða kostnað af sérstakri læknavakt þar. Tiðni dauðsfalla (burðarmálsdauða) á fæðingarstöðum úti á landi, þar sem ljós- móðir og læknir fylgjast með meðgöngu og fæðingu frá upphafi til enda og allt afbrigðilegt er sent á sérhæfð sjúkrahús, gefur enga vísbendingu um hvort réttlæt- anlegt sé að fæðingar fari fram á Fæð- ingarheimili Reykjavíkur án þess að læknir sé þar tiltækur." 9 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.