Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 12

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 12
Skýrsla stjórnar 1992-1993 Á starfsárinu voru haldnir 8 stjórnar- fundir og einn fundur stjórnar og for- manna HFÍ og FHH. Félagar í Ljósmæðrafélagi Islands eru nú 429. Af þeim vinna 210 við ljós- mæðrastörf. LMFÍ sendi tvo fulltrúa, Ingibjörgu Einisdóttur og Hildi Kristjánsdóttur á stjórnarfund og ráðstefnu NJF (Nordisk Jordemoderforbund) í september sl. í Kaupmannahöfn. Hildur Kristjánsdóttir gerði fundinum og ráðstefnunni góð skil í Ljósmæðrablaðinu, 2. tbl. 1992. Rúm- lega tuttugu ljósmæður frá Islandi mættu á ráðstefnuna, en þess má geta að þátt- takendur frá Islandi og Finnlandi voru álíka margir. Norðurlandaþingið í ár verður haldið í Færeyjum í ágúst. Alheimsþing ljósmæðra og ráðstefna í tengslum við þingið verður haldið í Vancouver í Kanada í mai n.k. Ingibjörg Einisdóttir verður fulltrúi íslenskra ljós- mæðra á þinginu. Þátttaka ljósmæðra héðan á ráðstefnuna verður með besta móti, en líklega verða u.þ.b. sex íslensk- ar ljósmæður á ráðstefnunni. Þessi þátt- taka endurspeglar ekki síst aukinn vilja vinnuveitenda ljósmæðra að styrkja þær til námsferða. Gisli Sigurbjörnsson á Grund heldur áfram að sýna rausnarskap ljósmæðrum, sem komnar eru á eftirlaun, og hefur gert enn betur en í fyrra. S.l. haust dvöldu á hans vegum að Ási í Hveragerði 12 ljós- mæður, í vor dvelja þar aftur 12 ljós- mæður og hann hefur þegar boðið 16 ljósmæðrum til dvalar næsta haust. Þess má geta að núna eru 6 ljósmæður að Ási allt hollsystur frá 1951. Ljósmæðrafé- lagið hefur gefið Gísla gjafir og blómvönd í þakklætisskyni. Síðast liðið vor kom enn einu sinni upp sú staða að Ríkisspítalar ætluðu ekki að greiða nýjum ljósmæðranemum laun á námstímanum. Það eru orðnir fastir liðir eins og venjulega að það þurfi að standa í rexi út af þessu máli árlega. Stjórn Ljósmæðrafélagsins og Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir yfirljósmóðir héldu á fund formanns fjárveitingar- nefndar Alþingis, Karls Steinar Guðna- sonar, þáverandi formanns stjórnar- nefndar Rikisspítala Árna Gunnarssonar og Davíðs Á. Gunnarssonar forstjóra Ríkisspítala. Eftir japl og jaml og fuður var samþykkt á elleftu stundu að greiða nýnemum laun. Þetta reyndust þó ekki mikil fjárútlát fyrir spítalann, því að ein- ungis þrír nemar em á fyrsta ári í Ljós- mæðraskólanum. Nú er ekki gert ráð fyrir að teknir verði oftar inn nemar i Ljósmæðraskóla íslands og að námið flytjist í Háskóla íslands 1994. Ekkert hefur þó verið gert i því máli að hálfu stjórnvalda í vetur. Stjórn LMFÍ var farið að hafa áhyggjur af 10 UÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.