Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Qupperneq 13
þessum seinagangi og sendi bréf í febr-
úar s.i. til menntamálaráðherra og heil-
brigðisráðherra til þess að fara fram á að
skipuð yrði nefnd til þess að sjá um flutn-
ing skólans milli ráðuneyta, og óskaði fé-
lagið eftir að eiga fulltrúa í þeirri nefnd.
Heilbrigðisráðherra svaraði um hæl og
sagði að þetta væri í verkahring mennta-
málaráðuneytisins. Ekkert heyrðist frá
menntamálaráðherra. Það gekk heldur
ekkert að ná tali af menntamálaráðherra.
Það varð því úr að Ingibjörg Einisdóttir
og Ólöf Ásta Ólafsdóttir fóru á fund Guð-
ríðar Sigurðardóttur ráðuneytisstjóra í
menntamálaráðuneytinu þann 23. mars
s.l. Hún tók máli okkar vel og sagði að
þetta væri milli handanna á þeim í ráðu-
neytinu. Síðan hefur ekkert frést, en
þessu máli verður fylgt eftir af hálfu Ljós-
mæðrafélagsins.
Kjaradeila ljósmæðra og hjúkrunar-
fraaðinga á Landspítalanum setti mark
sitt á starf stjórnarinnar í desember og
janúar. Þó að félagið ætti ekki beina aðild
að þessari deilu, þá vill svo til að næstum
því öll stjórn LMFÍ vinnur á Land-
spítalanum. Þessi deila var erfið en lær-
dómsrik. Fulltrúar ljósmæðra í samn-
inganefndinni, þær Katrín Bragadóttir og
Sumarlína Pétursdóttir stóðu sig með
sóma og ég verð að viðurkenna að ég var
ákaflega stolt af þeim og þakka þeim fyrir
vel unnin störf.
Þó að þessi deila hafi ekki verið á
Ve9um félaganna, þá komust félögin ekki
^já því að fylgjast náið með framvindu
^nála og á þessum tíma urðu mikil sam-
skipti milli formanna félaganna þriggja.
Þessi samskipti töldum við allar vera af
hinu góða og til þess að byggja á þeim,
þá bauð stjórn Ljósmæðrafélagsins for-
niönnum hjúkrunarfélaganna, Vilborgu
Ingólfsdóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur á
fund til að ræða stöðuna í sameiningar-
málum hjúkrunarfélaganna. Það kom
okkur mest á óvart hversu skammt er á
veg komið með sameininguna miðað við
það sem við mætti búast. Á þessum fundi
var rætt vítt og breitt og hægt var að leið-
rétta misskilning sem upp hafði komið.
Ákveðið var að halda svona fundi tvisvar
til þrisvar á ári til þess að efla samvinnu
og skilning milli félaganna. Það má segja
að sameining hjúkrunarfélaganna komi
Ljósmæðrafélaginu við, því að hún getur
haft áhrif á framtíð Ljósmæðrafélagsins.
Eins og þið vitið allar, þá bætast engir
kjarafélagar í Ljósmæðrafélagið og er svo
komið að þeim sem borga full félagsgjöld
til félagsins fækkar óðum. Fagfélögum
fjölgar jú, en fjárhagslega skipta þeir fé-
lagið miklu minna máli, því að þeir greiða
aðeins 2500 krónur á ári til félagsins,
þegar best lætur, en s.l. ár innheimtust
félagsgjöld mjög illa. Nú er svo komið að
fjárhagsstaða félagsins er orðin veik og á
eftir að veikjast til muna á næstu árum.
Verði félagið fjárvana kemur það ekki til
með að geta staðið undir starfsemi. Eg
reifa þetta mál því að ég tel að ljósmæður
þurfi að fara að hugsa um framtíð félags-
ins og gera það upp við sig hvernig þær
vilja að félagið verði í framtíðinni.
Mál Fæðingarheimilís voru í brenni-
depli áfram. Þann 5. október s.l. var því
lokað vegna fjárskorts. Af þeim sökum
hefur álagið á Kvennadeild Landspítalans
aukist gífurlega og er svo komið að við
blasir neyðarástand. Nú virðist búið að
ákveða að opna FHR í 6 vikur frá og með
1. maí n.k. til þess að taka við miklum
fæðingartoppi sem framundan er í maí.
Einnig er farið að tala um að opna þar
18 rúma deild í byrjun næsta árs. Hvort
____________________________________11
LJÓSM/EÐRABLúÐIÐ