Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 17
Orbsending frá LMFÍ
Ljósmæðrafélag íslands og Trygg-
ingarstofnun Ríkisins undirrituðu samn-
ing þann 1. apríl s.l. um umönnun sæng-
urkvenna, sem fara heim af fæðingar-
stofnun á fyrsta sólarhringi eftir fæðingu.
I raun er hér um að ræða nýja túlkun á
gömlum samningi, þar sem hér er gert
ráð fyrir að II. og III. liðir í 3. gr. samn-
ings LMFI og TR gildi einir og sér.
A vegum LMFI er verið að samræma
skráningu fyrir ljósmæður, sem taka að
sér umönnun sængurkvenna í heima-
húsi. Ljósmæður sem sinna heimaþjón-
ustu þurfa einnig að láta heilsugæslu-
stöðvum í té upplýsingar um sína skjól-
stæðinga á svipaðan hátt og verið hefur
frá hendi stofnananna.
Samningurinn birtist hér í heild sinni,
en nánari upplýsingar um gögn sem TR
óskar eftir frá hendi ljósmæðra og um
skránipgu sængurlegunnar er að fá hjá
skrifstofu félagsins. Héraðslæknirinn í
Reykjavík hefur sent LMFI bréf þess efnis
að hann minnir ljósmæður á að í lögum
okkar stendur: „Ljósmóðir, sem stundar
fæðingarhjálp á eigin vegum, skal...
tilkynna það viðkomandi héraðslækni og
leggja fyrir hann skilríki sín“. Ljósmæður,
sem sinna heimaþjónustu eru því beðnar
um að láta viðkomandi héraðslækni fá
afrit af ljósmæðraleyfi sínu.
Ég vil eindregið hvetja ljósmæður til
að kynna sér samninginn og nota hann
þegar tækifæri gefst til. LMFÍ óskar einn-
ig eftir að ljósmæður sem geta hugsað sér
að vinna eftir þessum samningi hafi sam-
band við skrifstofu félagsins, því að verið
er að athuga hvort félagið ætti að hafa
skrá um ljósmæður sem barnshafandi
konur geti síðan leitað til.
Æskilegt að ljósmæður í mæðravernd
kynnti þennan valmöguleika fyrir barns-
hafandi konum.
Ingibjörg S. Einisdóttir.
Samningur
milli Ljósmæbrafélags íslands
og Tryggingastofnunar ríkisins.
Samþykkt að framlengja samningi
milli Ljósmæðrafélags Islands og Trygg-
ingastofnunar ríkisins frá 7. nóvember
1991 til ársloka 1993, með þeirri
breytingu að II. og III. liður 3. gr. samn-
ingsins gildi jafnframt fyrir umönnun
sængurkvenna, sem fara heim af fæð-
ingardeild á fyrsta sólahring eftir fæð-
ingu, enda leggi ljósmóðir fram með
reikningi skv. 5. gr. ljósrit fæðingartil-
kynningar og önnur gögn er Trygg-
ingastofnun ríkisins kann að óska eftir.
Reykjautk, 1. apríl 1993.
15
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ