Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 28

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 28
ur að hafa mæðravemdina á hjólum. Þann- ig er ég meira inni í því sem gerist á stöðinni og hef lækni „stand by“ ef þarf í næsta her- bergi við, þar sem hann getur ennfremur stundum sinnt annarri vinnu með. Ofrískar konur koma fyrst til mín í svokallaðan viðtalstíma, sem ég er með á þriðjudögum í 45 mín. á hverja konu. Þær koma ca 10-12 vikur gengnar ýmist búnar að hitta á stofu sinni heilsugæslu- lækni eða fæðingarlækni. Stundum koma þær eingöngu með jákvætt þung- unarpróf og eru vel meðvitaðar um sinn meðgöngutíma. Eg tek mæðraskrá, blóð- prufur og þvagprufur. Gynskoðun er ekki gerð í þessum tíma, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Eins er GK og Clamydia tekið eftir aðstæðum. Þarna fer fram fræðsla og upplýsingar ásamt til- heyrandi bæklingar eru afhentir. Einnig met ég áhættuþætti og panta skoðanir ef þarf, t.d. erfðaráðgjöf, sónar, gynsk. hjá fæðingarlækni, sjúkraþjálfun o.fl. Ef leg- stærð klínískt passar við tíma (st) og engir áhættuþættir eru, er gynsk. sleppt. Síðan fer konan í venjulegt mæðraeftirlit, hjá mér og sínum heilsugæslulækni fram að fæðingu, þær hitta þó ekki lækni í hvert sinn ef allt er eðlilegt, en hafa þó kost á því. Þegar líða tekur á meðgönguna þétt- um við eftirlit (eftir 30 vikur) og einnig hef ég fræðslu um fæðingu og undirbúning brjóstagjafar. Oft ræðum við saman ég og heilsugæsluhjúkrunarf ræðingurinn, sem tekur við konunni eftir fæðingu. Ef eitthvað sérstakt hefur komið upp til dæmis fæðingarþunglyndi eða önnur stór vandamál, ræðum við stundum við konuna saman. Konur sem ganga með fram yfir 41 viku eru sendar í monitor og „mat“ á fæðingargang, jafnvel þótt enginn 26 __________________________________ áhættuþáttur sé til staðar. Ef eru minnk- aðar hreyfingar eða t.d. hypertensio þá fara þær fyrr í „mat“. Sumar konur þurfa að hitta fæðingarlækni l-2var sinnum á meðgöngu, sumar aldrei, en í einstaka til- fellum svo sem hypertensio essentialis, diabetes eða tvíburar, sendum við eftir fyrstu skoðun í áframhaldandi eftirlit á göngudeild kvenna á Landspítalanum. Öllum konum er boðið á foreldra- námskeið, sérstaklega eru frumbyrjur og konur með „slæma sögu“ hvattar til þess. Við höfum 3-4 námskeið hvert um sig 6 vikur á hverju ári. Þau eru þannig upp- byggð að við erum 5 sem höldum þau: 1 læknir, 2 hjúkrunarfræðingar, 1 Ijós- móðir og svo sjúkraþjálfari, sem kemur í hvert skipti eftir að 1 okkar hefur haldið fræðsluerindi i ca 45 mín. Námskeiðin hafa verið afar vel sótt, oft af hjónum eða öðrum aðstandanda með konunni. Þetta er skemmtilegur vinnustaður í ört vaxandi bæjarfélagi, ásamt því að þjóna flestum á Alftanesi og einnig ann- ars staðar frá. Mæðraverndin hefur auk- ist um 50% á nokkrum árum og er e.t.v. ekki komin í hámark enn. Það voru rétt rúmlega 2000 konur á síðasta ári þ.e.a.s. rúmlega 200 nýjar konur komu inn. Það er ómetanlegt að geta fylgt eftir sömu konunni frá byrjun meðgöngu til enda. Þannig skapast betur traust og næmi fyrir þörfum einstaklingsins. Einn- ig tel ég nauðsynlegt (af reynslu) á heilsu- gæslustöð að hafa ljósmóður í mæðra- vernd, ekki eingöngu vegna faglegrar þekkingar, heldur einnig vegna heildar- yfirsýnar, sem fæst með því að 1 ljós- móðir haldi utan um jafn mikilvægan þátt í heilsugæslu almennings, svo sem eftir- lit með móður og barni í meðgöngu. LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.