Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 44

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 44
Aðgerðin sjálf Konunum er sagt að það séu 50% líkur að brjóstagjöf gangi vel. Reynt er að hlífa eins mikið mjólkurkirtlunum og unnt er. Sú tækni sem er notuð felst í því að halda nægjanlegu blóðflæði til brúna svæðisins, brjóstvörtu og mjólkurganga, þ.e. ekkert er hreyft við (skorið í) brúna svæðið né brjóstvörtuna, sem fær að sitja kyrr á sínum brjóstvef ná í kirtilvefinn og kirtilgangana undir henni. (Talað er um að brjóstvartan sitji á stilk, sjá mynd 1). Aðgerðin er gerð þannig að byrjað er á að losa húðina frá allan hringinn með- fram brúna svæðinu (sjá mynd 2) og húð- inni er flett frá (sjá mynd 3). Síðan er tekin í burtu sá vefur sem þurfa þykir kringum stilkinn og saumað er síðan saman. Brúna svæðið og brjóstvartan situr sem fyrr á sínum stað. Með þessari aðferð er minni hætta á að skorið sé á taugar sem liggja til brúna svæðisins og vörtunnar. Mjög slæmt er ef skorið er á þessar taugar, þvi þá myndi draga úr mjólkurörvun og losun (2). Með þessari aðferð verður brjóstvartan ekki innfallin, eins og hætt er við að hún verði þegar hún er færð til, eins og gert er við trans- 42 ------------------------------------- plant. Við þessa skurðaðgerð fær konan ör á brjóstin, sem er eins og öfugt T (sjá mynd 4) (3,4). Undirbúningur fyrir fæðingu Mikilvægt er að þessar konur fái fræðslu um brjóstagjöf almennt eins og aðrar konur. Æskilegt er að undirbún- ingur hefjist á meðgöngutímanum hafi konan hug á að hafa barnið á brjósti (2). Enginn breyting verður á framleiðslu mjólkurhormónsins prolactin (5). En konurnar þurfa að undirbúa sig undir það að mjólkurmyndun getur orðið lítil eða engin vegna fárra mjólkurkirtla (1,4). Rannsóknir hafa sýnt að æskilegt er að konur sem farið hafa í brjóstaminnk- unaraðgerð nuddi brjóstin á síðasta hluta meðgöngutímans (á þriðja trimester) t.d. þegar þær fara í sturtubað og mjólki (kreisti) brjóstvörturnar, en á þeim tíma má búast við að broddmjólk (colostrum) komi úr vörtunum. Konur tala um að það sé þeim mikil hvatning að sjá að mjólk komi úr brjóstvörtunum. Hafa ber þó í huga að ekki kemur mjólk fram í vört- urnar hjá öllum konum á þessum tima, sem þarf ekki að þýða það að þær geti LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.