Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 46

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 46
þær fjórar konur sem ég talaði við, sem fæddu eftir að þær höfðu farið í brjósta- minnkunaraðgerð. Öllum konunum var sagt að 50% líkur væru á að þær gætu eitthvað mjólkað, en stífluhætta gæti orðið mikil. Þrjár undirbjuggu brjóstin eins og áður hefur verið getið um og kom broddmjólk þegar þær kreistu vörturnar. Tvær sögðu að brjóstin hefðu örlítið stækkað á meðgöngutímanum. Önnur þeirra er barnshafandi nú og finnst henni brjóstin stækka meira en í fyrra skiptið, sem gæti bent til að um endurbyggingu sé að ræða á kirtilvefnum. Hjá þessum þremur konum kom mjólkin á fjórða degi. Stálmi varð ekki til vandræða og engin fékk stíflur í brjóstin. Mjólkuðu þær frá sex vikum upp í þrjá mánuði, en hættu vegna of mikilla ábóta eða að börnin misstu áhuga á brjóstinu. Þær lýstu ánægju yfir að hafa mjólkað og geta haft börn sín á brjósti. Ein af þessum fjómm fékk stálma en ákveðið var að þurrka upp brjóstin, e.t.v. verið lítil eða engin mjólkurlosun og var það mikið áfall fyrir hana. Niðurstaða Brjóstaminnkun er gerð á þann hátt að brjóstagjöf er möguleg eftir fæðingu. Flestar konur stefna að því að reyna, þó ekki sé nema til að auka á ánægjuna og tengslamyndun við barnið. Komið hefur í ljós að flest allar hafa mjólkað í einhverju magni og lítið er skrifað um stíflur. Mjólkin virðist koma seinna hjá þessum konum heldur en þeim sem ekki hafa farið í slíka aðgerð, e.t.v. vegna þess að skorið hefur verið á einhverjar taugar. Konum finnst öll hvatning góð. En nauðsynlegt er að fylgjast vel með þyngd og heilbrigði barnsins. 44 _______________________________ Lokaorð Eg vona að þessi stutta samantekt mín um möguleika kvenna, til að geta mjólkað og haft börn á brjósti, eftir að hafa farið í brjóstaminnkunaraðgerð, gagnist ljósmæðrum og öðrum, sem í starfi sínu þurfa að leiðbeina þessum konum. Heimildir 1. Williams L. Clinical Practice: Reducation Mammaplasty. Plastic Surgical Nursing sum- mer Vol. 10, No 2, 1990; 84-86. 2. Mohrbacher N, Stock J. Breast Reduction Surgery. ln: The Breastfeeding Answer- book, edited by La Leche League Inter- national 1991; 152-154. 3. Rees TD. Plastic Surgery of the Breast. In: Reconstructive Plastic Surgery, second edi- tion. Editor John Marquis Converse. Philadelphia: Saunders, 1977; 3661-3689. 4. Hatton M, Keleher K. Breastfeeding after Breast Reduction Mammoplasty. Journal of Nurse-Midwifery Vol. 28. No 4, July/August 1983; 19-22. 5. Soules MR, et al. Prolactin Secretion in Women after Plastic Breast Augmentation and Reducation. Annals of Plastic Surgery Vol. 17. No 4, October 1986; 335-338. 6. Nicholson W. Breastfeeding after Breast Reducation:GuideIines for Mothers. Breast- feeding Review Vol. 2, No 4, Nov. 1991; 174-177. 7. Neifert M, et. al. The Influence of Breast Surgery, Breast Appearance, and Pregn- ancy - Induced Breast changes on Lactation Sufficiency as Measured by Infant Weight Gain. Birth 17: 1 March 1990; 31-38. 8. Aboudib JH Jr, et al. Analysis of Late Results in Postpregnancy Mammoplasty. Annals of Plastic Surgery Vol. 26, No 2, February 1991; 111-116. UÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.