Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Page 3
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 3 Óvinir bílsins Spurning dagsins Hefur dómskerfið brugðist í kynferðisbrotamálum? í ræðu sem hann hélt um daginn var Björn Bjarnason að skammast út í lið sem hann nefndi „óvildarmenn bflsins“. Þetta er fólk sem vill ekki skilja hvað bfllinn er góður og gagn- legur, og leggur jafnvel á ráðin um að venja okkur af notkun hans. Eða það skildist mér á Birni. Fyrir nokkrum árum voru reyndar stofn- uð samtök hér sem áttu að heita „Vinir bflsins". Ég man að ég hlust- aði á viðtal við einn forsvarsmann þeirra þar sem hann sagði hættu á að bflaflotinn hérna yrði eins og á Kúbu - lfldega ekkert nema gömul hræ - ef við huguðum ekki betur að endurnýjun hans. Maðurinn þurfti raunar ekki að hafa áhyggjur því bílasala jókst um næstum helming á síðasta ári. Ég hef heldur ekki heyrt neitt meira af samtökunum „Vinir bflsins". Einelti þeirra sem eiqa ekki bíl Annars getur maður varla séð að óvildarmenn bflsins séu mjög öflug- ir í landinu sem Stefán Snævarr kunningi minn kallar 51. fylkið. I raun má segja að hlutskipti þeirra sé þyngra en tárum taki. Það er allur vindur úr 68-kynslóðinni sem trúði unt tíma að það væri dyggð að eiga ekki bfl - „elsku pabbi og mamma, ekki bfl!“ er ákall úr einum af söngv- um hennar. Hér stefnir allt í að brátt verði tvær bifreiðar á hvern íbúa. Verslunarmiðstöðvar úthverfanna auglýsa ekki lengur vörur sínar eða ódýrt verð, heldur að þær séu með „stærstu bflastæði á landinu". Fólkið þyrpist til að gera innkaup í Faxa- feni, ljótustu götu landsins, en er löngu farið að vara sig á bflastæða- hallærinu á Laugavegi. Þegar snjóar líkt og um daginn er öllu draslinu rutt upp á gangstéttir svo gangandi vegfarendur eru í lífshættu meðan bflistarnir aka brosandi um auðar göturnar. I fyrra var meira að segja frétt um að unglingar í Verslunar- skólanum væru lagðir í einelti ef þeir væru ekki á bfl. Fylgdi sögunni að Egill Helgason hefur efasemdir um einkabílinn. ■ ,'' ^ jj|n Kjallari ekkert þýddi fyrir foreldra að senda börn sín í Versló ef þeir tímdu ekki að kaupa handa þeim bfla. Stærri og stærri umferðar- mannvirki Vinir bflsins skynja kannski ein- hverja óvfld í sinn garð en samt er yfirleitt látið möglunarlaust undan kröfum um stærri og meiri umferð- armannvirki. Hins vegar gleymist víða að leggja gangstéttir. Hér eru nú um sautján íbúar á hvern hektara sem þýðir að Reykjavík er líklega dreifbýlasta höfuðborg í heimi. Það hefur myndast bflabyggð sem á varla sinn líka nema í örgustu ná- pleisunum í Bandarflcjunum. Þrátt fyrir tai um þéttingu byggðar heldur úthverfavæðingin áfram. Það er svo sem löngu ljóst að það er ekkert að marka borgarstjórnina í Reykjavík. Byggð af þessu tagi er leiðinleg, ljót og óhagkvæm. Leiðinleg sökum þess að íbúarnir eyða ómældum tíma í einsemd bifreiðanna, nöldr- andi yfir því að komast ekki leiðar sinnar. Hún er jafn ljót og nýjustu mislægu gatnamótin sem er hellt yfir okkur og verslunarferlíkin sem rísa upp úr þeim. Hún er óhagkvæm vegna þess að borgararnir eyða Máfólkvið meiru? Pálína Magnúsdóttir hringdi: Efl- ing - stéttarfélag og VR hafa kynnt hugmyndir um að teknir verði upp Lesendur svonefndir menntareikningar. Að fólk - einkum ófaglært - leggi nokkurn hlut launa sinna í séreigna- sjóð, sem verja megi til menntunar- og að atvinnurekendur leggi síðan mótframlag í púkkið. Verður hug- mynd þessi tekin fyrir í væntnlegum kjarasamningum. Hugmynd þessi er ágæt, en van- hugsuð að nokkru leyti. Nú eru all- flestir farnir að borga til elliáranna í séreignasjóði og oft er það ærin summa. Þvf er spurning hvort fólk má við meiri útgjöldum, ekki síst úr því forystumenn launþegarhreyf- ingarinnar hafa ekki náð skárri samningum eða betri launum sínu fólki til handa en raun ber vitni. Útvarpsmessur á umbrotatímum Jóhann Ólafsson skrifar. Út- varpsmessur eru úreltar og best af öllu væri að losa Rfkisútvarpið undan jarðarmeni kristinnar trúar. Þetta er efnislegur kjarni greinar sem ungur bóndasonur norðan af Tjörnesi, Steinþór Hreiðarsson, skrifar á vefsetrið Múrinn.is - þar sem hann segir að nær væri að Frónbúar fengju að kynnast fleiri trúarbrögðum en hinum kristnu. Af því veiti ekki - sem vissulega má til sanns vegar færa. Þjóðfélagi sem er að ganga í gegnum miklar breytingar er mikil- vægt að á umbrotatímum höfum við björg til að byggja á. Kvikur sandur er svikull. Einn hinna föstu punkta sem Kristnin og messurnar Ómissandiþótturi þjóðfélaginu. okkur skipta svo miklu er til dæmis messan í útvarpinu á hverjum sunnudagsmorgni. Ómissandi þátt- ur í þjóðlífmu - og nokkuð sem gef- ur þorra þjóðarinnar öryggistilfmn- ingu. Margir tengja messuna síðan við lambalæri, brúnaðar kartöflur, rauðkál og grænar baunir - þennan dæmigerða sunnudagsmat Islend- inga. Steinþór Hreiðarsson hefur starf- að innan vébanda VG - og ekki er nýtt að þeir sem lengst standa til vinstri í lífsviðhorfum vilji kristinni trú allt hið versta. Jafnvel bannfæra hana, eins og dæmi frá fyrrum kommúnistaríkjum sanna. Er í því ljósi rétt að hafa allan vara á sér hvað varðar þessi sjónarmið Tjörnesings- ins. Sporin hræða, þó ekki sé nema í ljósi þeirrar dapurlegu sögu frá fyrir- myndarríkjunum sem hér er vikið að. miklum peningum í rekstur bifreiða - þess verður að gæta að allt sem við kemur bflum er meira en helmingi ódýrara í nápleisunum vestra. Hún er íþyngjandi fyrir sveitarfélögin, rfldð, fyrirtækin og heimilin vegna þess hversu teygist á öllu - allir veg- ir, veitur, lagnir og þjónustuleiðir eru til muna lengri en þyrfti að vera. Vegna dreifbýlisins er svo nánast ómögulegt að reka almenningssam- göngur sem standa undir nafni. Og því er svona byggð fjandsamleg þeim sem ferðast ekki um í bfl, hafa ekki efni á því, kunna það ekki, geta ekki eða vilja ekki. Stríðið sem snerist um bensín og bíla Við fylgjum Ameríkönum í stríð sem í grundvallaratriðum snýst um að varðveita lífsstfl sem felst í því að bensínið kosti 30 krónur lítrinn. Svo er talað um óvini bflsins. Mest seldu bflarnir hérna eru risastórir bensín- gleypandi jeppar. Ég las í merkilegri grein um daginn að ef eitthvað væri að marka talið um gróðurhúsaáhrif, ætti að rífa liðið út úr jeppunum og skamma það eins og hunda. Nýjar rannsóknir benda til þess að ef hitn- un jarðar heldur áfram muni hring- sól hafstraumanna breytast og Golfstraumurinn jafnvel hætta að koma upp að ströndum landsins. Þá er hætt við að einhverjum verið kalt á íslandi. Samt erum við stikkfrí. Við byggj- um álver og kaupum fleiri bfla. Við látum helst ekkert stöðva okkur. Það er í ýmsu fleira en smekk á sjón- varpsefni sem við líkjumst Amerík- önum; við höfum tileinkað okkur sörnu skrumskældu frjálsræðishug- sjónina. í þeim anda er stjórnarand- staðan í borginni nú að kynna nið- urstöður rannsókna sem segja að ... bíðið nú við ... að allir íslendingar vilji búa einir! Þeir kynna þetta eins og það séu mikil og merkileg sann- indi. En segið ntér; upp á hvaða heiði myndi borgin enda ef allir byggju einir og sér?! DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það [ stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Virkar verr en í öðrum brotaflokkum „Iþað minnsta virkar dómskerfið verr í þessum brotaflokki en mörgum örðum. Til marks um það mó nefna að síðstliðin 13 ór hafa manneskjur leitað til okkar vegna rúmiega 5000 kynferðisbrotamanna, sem sumir hverjir eru væntanlega margtaldir, en afþeim hafa innan við 100 verið dæmdir. Við hjó Stígamótum höfum óskað eftir því við dómsmátaróðherra að nefnd verði sett á iaggirnar til þess að endurskoða þennan mála- flokk" Rúna Jónsdóttir, talsmaður Stígamóta „Það hefur brugðist alger- iega, kerfið hefur ekki til að bera nokkur lög sem höndla þessi mál afvirð- ingu. Dómarnir verða líka sí- fellt undarlegri og þeir eru aldrei full- nægjandi. Málaflokkurinn einkennist af máttleysi og iömun." Didda, skáld „Veit ekki hvort það eigi að taka svo sterkt til orða að kerfið hafi brugðist en þegar maður heyrir fréttir eins og þær að sekur maður sleppi við refsingu í alvarlegu kynferðis- afbrotamáli er manni brugðið. Við þurf- um því að fara yfir þessi mál og skoða þau. Nákvæmlega hverjum er um að kenna er hins vegar eitthvað sem erfitt er að fella dóm um." Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður „Sjálfsagt hef- ur það gert það í ákveðn- um tilfellum. Þó vonandi gerir það það sjaldnast. Þau mistök sem eiga sér stað hljóta að verða til þess að menn berji í brestina og bæti úr kerfinu. Bæði hvað varðar barna- vernd og hæfilega refsiþyngd." Björgvin G. Sigurðsson alþingismaður „I Ijósi þessa síðasta máls er margtsem þarfað athuga og endur- skoða. Sérstak- lega þegar miðað er við alvöru giæps- ins og það að þolendur eru börn sem eru algjörlega berskjölduð. Það er því miður takmörk- uð umræða um þetta innan kirkjunnar. Hún þyrfti að vera mun meiri." Hjörtur Magni Jóhannssson, fríkirkjuprestur í fyrradag sýknaði héraðsdómur sekan barnaníðing. ROBERT BANGSI B ARrs/AFAf AVER5L0/N/ Bæjarlind 1-3 Kópavogi Sími 555 6688

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.