Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 Fréttir 0V Miklar tafir á flugvöllum Vegna vaxandi ótta Bandaríkjamanna við hætt- una á hryðjuverkum hefur umferð um og á flugvöllum í landinu gengið hægt og miklar tafir orðið víða. Margir sætta sig við þetta sem sjálfsagðan hlut en aðrir reyna eftir megni að finna aðrir leiðir til að kom- ast milli staða. Hefur um- ferð um landamærin til Mexíkó og Kanada aukist mikið frá fyrri árum. Kóalabirnir sækja í út- hverfin Miklir hitar geisa í Ástr- alíu þessa dagana og eru þurrkar orðnir alvarlegir á nokkrum stöðum í landinu. Kóalabirnir hafa orðið einna verst úti en stofn þeirra hefur látið verulega á sjá undanfarin ár. Hafa þeir sótt inn í úthverfi Sidney í von um að finna vatn. íbú- ar hafa tekið höndum sam- an um að fylla fötur og önnur ílát og skilja eftir fyr- ir birnina. Nautakjöt munaðarvara íJapan Mildar verðhækkanir hafa verið á nautakjöti í Japan allar götur sfðan japönsk yfirvöld bönnuðu innflutning á nautakjöti frá Bandaríkjunum vegna kúariðu sem upp hefur komið þar í lahdi. Hefur þetta skapað mikla umframeftirspurn og verð hefur hækkað um allt að 30% á stuttum tíma. Fasteignaviðskipti hafa aldrei verið jafn lífleg og á síðasta ári. Veltan á fasteigna- markaðnum hefur aukist árlega og eftirspurn virðist ekkert minnka Nýliðið ár var metár hvað varðar fasteignavið- skipti í landinu en skrifað var undir 11.800 kaup- samninga síðustu 12 mánuði. Er það 17% aukn- ing frá árinu 2002 en síðasta met er frá árinu 1999 þegar 11.600 fasteignir skiptu um eigendur. Á vef Fasteignamats ríkisins kemur fram að veltuaukning hefur verið á fasteignamarkaðnum alla tfð síðan 1994. Árið 2003 námu viðskiptin alls 160 milljörðum króna. Fasteignaverð heldur að sama skapi áfram að hækka. Fermetraverð í fjölbýli er sem fyrr dýrara en í sérbýli. Á meðfylgjandi töflu má sjá að víða hefur fermetraverð bæði í sérbýli og fjölbýli allt að tvöfaldast á síðustu tíu árum. Gildir það um allt höfuðborgarsvæðið en einnig hefur orðið hækkun á landsbyggðinni þó í minna mæli sé. Aðeins á fsafirði lækkaði meðalverð í fjölbýli samkvæmt gögnum Fasteignamats ríkisins. Einnig er enn tiltölulega ódýrt að fjárfesta í eign í Fjarðabyggð en ef allt gengur samkvæmt áætlun mun fermetraverð þar hækka til muna þegar stóriðja kemst þar í fullan gang innan fárra ára. Fyrir áratug var dýrast að fjárfesta í einbýli í Mosfellsbæ en Seltjarnarnes hefur skotið þeim ref fyrir rass. Dýrasta fjölbýlisverðið er í Garðabæ en ekki munar miklu á verði þar og í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Úti á landi er Akureyri eina þétt- býlið sem brýtur 100 þúsund króna múrinn. Fer- metraverð þar hefur hækkað verulega en hlut- fallslega minna en á suðvesturhorninu. Árborg er einnig í dýrari kantinum á landsbyggðinni en Akranes er enn tiltölulega ódýr kostur hafi fólk áhuga á að búa nálægt höfuðborginni. albert@dv.is Fyrír áratug var dýrast að fjár- festa / einbýli í MosfeUsbæ en Seltjarnarnes hefur skotið honum ref fyrír rass. MEÐALFERMETRAVERÐ Á NOKKRUM STÖÐUM ÁRIÐ 2003 OG 1994 2003 1994 Suðvesturhornið Sérbýli Fjölbýli Sérbýli Fjölbýli Seltjarnarnes 129.938 134.630 66.833 77.696 Kópavogur 114.243 134.242 58.334 71.961 Reykjavík 111.486 129.684 58.722 74.185 Garðabær 115.297 134.886 64.424 78.818 Hafnarfjörður 101.903 120.087 62.204 70.745 Mosfellsbær 116.663 127.025 67.989 66.060 Reykjanesbær 88.260 93.394 56.745 60.694 Landsbyggðin Austurbyggð 66.821 86.857 34.424 49.942 Akureyri 90.375 100.712 57.990 66.157 Akranes 80.766 86.413 55.430 48.583 (safjörður 39.803 50.005 36.592 55.356 Fjarðabyggð 50.084 38.890 37.364 32.531 Árborg 83.575 99.237 46.884 57.666 Össur Skarphéðinsson „Ég hefþað rosalega gott. Ég kem vinnuþyrstur undan þess- um löngu jólum/'segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Og hann heldur áfram:„Ég var á skrif- stofunni minni til klukkan hálf ellefu í gærkvöid og var mætt- ur klukkan hálfsjö i morgun, brimandi afkrafti enda að sinna sérstöku hugðarefni mínu - tillögum um rann- sóknirá þorski." Ferðamálaráð úthlutar 40 milljónum til uppbyggingar ferðamannastaða á árinu. 15 milljónir í Gullfoss Einar K. Guðfinnsson formaður Ferðamálaráðs boðar breyttar áherslur í starfi Ferðamálaráðs á blaðamannafundi sem ráðið boðaði til í gær. Á undanförnum áratug hef- ur ráðið staðið fyrir uppbyggingu á fjölförnum ferðamannastöðum og veitt til þess 300 milljónum. I ár er fyrirhugað að Ferðamálaráð veiti í umhverfismálin 40 milljónum. í stað þess að stýra framkvæmdum sjálfir kallar ráðið eftir umsóknum. „Heimamenn fá nú þessa fjármuni í hendur og framkvæmdin er í þeirra höndum," segir Einar. Magnús Oddsson ferðamálastjóri segir hið íslenska Ferðamálaráð hið eina í heiminum sem hefur lög- bundið hlutverk að bera ábyrgð á uppbyggingu og vernd ferðamanna- staða. „Stjórnvöld sýndu þar fram- sýni en nú eru breyttar áherslur og öðrum látið eftir að framkvæma." Framkvæmdaáherslan færist yfir á fræðslusvið og stjórnun. „Völd og völd?“ segir Magnús en neitar að þetta þýði minni völd Ferðamálaráðs sem mun fara yfir umsóknirnar og ákveða hvar pen- ingarnir komi sér best. Þeir sem vilja sækja um sneið af þessum 40 millj- ónum sem ætlaðar eru til mála- flokksins í ár verða að hafa hraðar hendur því umsóknarfresturinn rennur út 16. janúar. 300 milljónir á sfðasta áratug og 40 milljónir nú teljast tæpast mikilr fjármunir þegar haft er í huga að oft er álag á viðkvæma ferðamanna- staði mikið og aðstöðuleysið tak- markað. Fulltrúar Ferðamálaráðs bentu á að utan þessara 300 millj- óna væri ráðgjöf og stjórnun auk þess sem verulegt framlag kæmi bæði frá hinum ýmsu sveitarfélög- um og Vegagerðinni. Og oft væri það Gullfoss. Þessi frægasti foss Islands hefur á undanförnum lOárum kostað Ferðamála- ráð 15 milljónir. I raun hlægileg upphæð I Ijósi þess hversu marga ferðamenn staðurinn hefurdregið tilsin. svo að snauð sveitarfélög sætu uppi með náttúruperlur og hefðu engar tekjur á móti kostnaði samfara ferðamannastraumi. Valur Hilmars- son umhverfisfulltrúi sagði að dýrasta einstaka dæmið á undan- Magnús Oddsson. Auglýsir nú 40 milljónir til úthlutunar við uppbyggingu aðstöðu við ferðamannastaði. Umsóknarfrestur rennur út tó.janúar. förnum 10 árum væri líklega Gull- foss og reyndar Hraunfossar nú í seinni tíð. Til uppbyggingar aðstöðu við þessa staði hafa runnið um 15 milljónir. jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.