Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Side 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAFTAHLÍÐ24 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5505000 . -9- • í kvöld verður íslend- ingum í Kaupmannahöfn boðið í bíó í Vestur Vov Vov kvikmynda- húsið á Vester- brogade. Það eru Flugleiðir sem hafa fjárfest í 70 bíómiðum á Haf- ið eftir Baltasar Kormák og ætla að gefa ís- lendingum í gamla höfuð- staðnum. Fyrstir koma fyrstir fá. Hafið var frum- sýnt í Kaupmannahöfn á öðrum degi jóla og hefur verið vel tekið. Sýningin í kvöld hefst kl. 19.15 ... QUELLE. PotbM^tt Pi Buxur • Blússur • Peysur • Bulir Oragíir Hr. 3.9SU Yfirhafnir Kr. 2.99U Þýskur gæðafatnaður með afslætti frá SB til 90% (fcn&u útnax, fac cáéí íeúux v&tcU ■ Allir viískiptavinir fá snyrtitösku ókeypis! l/erslua Balvegi 2 • Kópavogi • Simi 584 2B0B • mw. quelle.is Husið a bilastæðinu Onnur hæð og ris. Fyrsta hæðin hefur verið endurgerð en þar er að finna eistu trégrind í húsi I höfuðborginni. Hús á bflastæði Ekki eru greidd stöðumælagjöld af gömlu Aðalstöðinni sem staðið hefur á 12 bílastæðum á horni Túngötu og Suðurgötu svo mánuð- um skiptir. Að sögn Þorsteins Bergssonar hjá Minjavernd mun húsið að öllum lfkindum standa á bílastæðunum fram í marsmánuð á meðan á hótelbyggingu stendur handan götunnar. Þegar þar að kemur verður húsið aftur flutt á upphaflegan grunn sinn og verður í raun hjarta hótelsins sem þarna rís yfir fornminjum og á bæjar- stæði fyrsta landnámsmannsins. „Það er ekki lítið á sig lagt til að varðveita rnenningu þessa lands á þessu horni,“ segir Þorsteinn Bergsson en í raun verður nýja hótelið byggt umhverfis og tengt þessu gamla húsi sem er eitt hið elsta í Reykjavík. „Trégrind fýrstu hæðar hússins er líklega sú elsta í húsi hér í borginni," segir hann. í raun er það efri hæð hússins og ris sem stendur á bílstæðunum við Túngötu en fyrsta hæðin hefur verið endurgerð í upphaflegri mynd á þeim stað þar sem húsið stóð: „Húsið fer aftur á sinn stað og þar skeikar ekki millimetra," segir Þorsteinn. „Á fyrstu hæðinni er gert ráð fyrir kaffihúsi og bar hót- elsins." Ef allt gengur að óskum verður húsið á horninu horfið af bílatæð- unum og yfír á sinn upprunalega stað þegar sól fer að hækka á lofti en sjálft hótelið verður fullbyggt og opnað á vordögum 2005. • Stórbrotin líkamsrækt- arstöð Bjöms Leifssonar í laugardalnum smellpassar inn í áramótaheit landsmanna. Þar er opnað klukkan sex á morgnana og strax þá eru komnar töluverð- ar biðraðir fólks sem vill æfa snemma og vel. Þykir opnun stöðvar- innar vel tfmasett því aldrei er áhuginn jafn mik- ill á líkamsrækt og fyrstu dagana í janúar. Svo hækk- ar sól á lofti... Gröf, takk! „Ég byrjaði í nóvember og ek bara um helgar og svo eftir klukkan fimm á virkum dögurn," segir Krist- inn Guðnason sem stofnað hefur leigubílastöð á Hellu á Rangárvöll- um. Á stöðinni er einn bíll; Musso- jeppi. Auk þess á Kristinn Volkswagen-Transporter sem hann gerir út sem líkbíl með kisturennu og öllu. Annars starfar Kristinn að öllu jöfnu sem húsvörður á elli- heimilinu á Hellu. „Grundvöllurinn að þessum leigubflaakstri er allar krárnar sem hér eru starfræktar. Ég held að þær séu í það minnsta kosti fjórar ef ekki fimm og þá eru barirnir á hót- elunum ekki taldir með,“ segir Kristinn sem kvartar ekki yfir að- gerðaleysi í akstrinum enda er það nýmæli í sveitinni að geta pantað sér leigubfl. Hefur fólk jafnvel gam- an af að panta einn slíkan á góðri stund. Kristinn ekur eftir almennri gjaldskrá leigubifreiða og er með Taxi-skilti á jeppanum. Hjá Kristni myndi ferð að rótum Heklu kosta á milli sex og átta þúsund krónur: „En það hefur enginn pantað slíkan túr enn enda held ég að það sé kolófært þangað uppeftir," segir hann. Líkbílinn hefur Kristinn hins vegar rekið í ein fimm ár með við- unandi árangri. Enda deyr fólk í Rangárvallasýslu eins og annars staðar. Kristinn segir að áður fyrr hafi menn verið að nota alls kyns bfla við líkflutninga en nú sé Volkswageninn sinn langbesti kosturinn. Björgunarsveitirnar hefðu verið í þessu en úr því hafi dregið: „Það er skemmtilegt að keyra leigubfl hér í sveitinni," segir Krist- inn sem svarar í síma 860 2802 ef einhver þarf leigubfl á Hellu. Eða líkbfl. Kristinn og bílarnir Leigubill og líkbill á einni hendi á Hellu. HúsvörOurinn á elliheimilinn Taxi á Hellu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.