Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Page 19
7 8 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 Sport UV DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 7 9 Páll Axel með 38 stig Páll Axel Vilbergsson (sjá mynd) átti frábæran leik með liði Grindavíkur sem bar sigurorð af ÍR, 88-69, í Seljaskóla. Páll Axel skoraði 38 stig og tók 9 fráköst fyrir Grindavíkinga sem gerðu út um leikinn í fyrsta leikhluta en þeir leiddu, 29-14, eftir hann. Darrell Lewsi og Jackie Rogers skoruðu 16 stig hvor fyrir Grindavík. Eugene Christopher og Ólafur Þórisson skoruðu 15 stig hvor fyrir ÍR og Ómar Öm Sævarsson skoraði 10 stig og tók 10 fráköst. Lauflétt hjá Njarðvíkingum Njarðvíkingar unnu laufléttan sigur á KFÍ, 125-81, í Njarðvík á sunnu- daginn. Njarðvík- ingar höfðu mikla yfirburði allan tímann eins og tölurnar gefa til kynna. Brandon Woudstra (sjá mynd) var stiga- hæsturhjáNjarð- vík með 25 stig, Páll Kristinsson skoraði 24 stig og tók 10 fráköst og Brenton Birmingham skoraði 18 stig. Troy Wiley var stigahæstur hjá KFÍ með 28 stig og 18 fráköst og Bethuel Fletcher skoraði 18 stig og gaf 9 stoðsendingar. Blikar féltu ■' Smáranum Breiðablik féll í 1. deild á sunnudaginn þegar þeir biðu lægri hlut fyrir Tinda- stóli, 89-74, í Smáranum í Kópavogi. Breiðablik leiddi lengst af en Tindastóls- menn gerðu út um leikinn með frábærum fjórða leikhluta. Kyle Williams var stigahæstur hjá Breiðabliki með 19 stig, Uro Pilipovic og Loftur Einarsson skoruðu 13 stig hvor. Nick Boyd skoraði 26 stig fyrir Tinda- stól og tók 15 fráköst, Clifton Cook (sjá mynd) skoraði 19 stig og Axel Kárason skoraði 10 stig. KR tap í Hveragerði KR-ingar biðu iægri hlut fyrir Hamarsmönnum, 78-75, í Hveragerði í Inter- sportdeildinni í körfuknatt- leik á sunnudaginn. Hamarsmenn höfðu yfirhöndina nær allan leikinn en þó var jafnt eftir þriðja leikhluta, 58-58. Sigurinn nægði þó ekki fyrir Hamars- menn til að komast upp fyrir KR-inga því að til þess hefðu þeir þurft að vinna leikinn með níu stigum. Chris Dade (sjá mynd) var stigahæstur hjá Hamri með 19 stig og Marvin Valdimarsson var með 15 stig. Baldur Ólafsson skoraði 19 stig fyrir KR en Elvin Mims, nýi Kaninn hjá KR, var aðeins með 4 stig á 15 mínútum. 7 ) Hófferilinn með Stjörnunni þar sem hann lék 27 leiki í efstu deild og skoraði þrjú mörk á árunum 1996-2000. 2) Gekk til liðs við norska félagið Stromsgodset haustið 2000 og lék með liðinu í úrvalsdeildinni árið 2001. Hann lék 15 leiki með liðinu í deildinni og skoraði tvö mörk. 3) Gekk til liðs við KR í ársbyrjun 2002 og varð íslandmeistari með liðinu bæði árin 2002 og 2003. Var einn albesti leikmaður íslandsmótsins bæði árin og lék sína tvo fyrstu A-landsleiki fyrir íslands hönd árið 2002. Hann skoraði fjórtán mörk í þrjátíu leikjum fyrir félagið í efstu deild. 4) Að öllum líkindum á leið til Stabæk í mars 2004. KR-ingar eru í vondum málum vegna félagsskipta Veigars Páls Gunnarssonar til Sta- bæk. Samningur sem þeir gerðu við íjárfesta vegna komu Veigars Páls til íslands á sínum tíma gerir það að verkum að þeir munu bera skarðan hlut frá borði þegar farið verður að útdeila greiðslum þeim sem Stabæk er tilbúið til að greiða fyrir Veigar Pál til að fá hann í sínar raðir. KR-ingar munu ekki fá eina einustu krónu fyrir Veigar Pál Gunnarsson ef hann fer til Stabæk. Það er reyndar þannig að örlög Veig- ars Páls eru ekki í höndum KR-inga heldur í höndum fjárfestingarfélags, Urania Trade Ltd., sem staðsett er á Kýpur, en félagið sá um að losa Veig- ar Pál undan samningi við norska félagið Stromsgodset í ársbyrjun 2002. Enginn vildi borga Veigar Páll Gunnarsson hélt til Noregs haustið 2000 og skrifaði undir þriggja ára samning við úrvalsdeildarliðið Stromsgodset. Hann átti við meiðsli að stríða fyrsta tímabilið sitt f Noregi og þegar tímabilinu lauk og ljóst að Stroms- godset myndi spila í 1. deildinni tímabilið eftir þá vildi Veigar Páll fara frá félaginu og spila á Islandi. Forráðamenn norska liðsins vildu hins vegar ólmir halda honum og sættust á endanum á að það lið sem Veigar Páll færi í borgaði útlagðan kostnað upp á 100 þúsund norskar krónur, um 1,1 milljón íslenskar krónur. Ekkert íslenskt félag var tilbúið til að greiða þessa upphæð en það var ekki fyrr en þáverandi umboðs- maður Veigars Páls, Ólafur Garðarsson, setti sig í samband við athafnamanninn Baldur Sigurðs- son, sem búséttur er í Englandi og var viðriðinn hugsanleg kaup á enska 2. deildarliðinu Barnsley síðasta haust, sem hlutirnir fóru að gerast. Samningur við KR Baldur og viðskiptafélagar hans gerðu samkomulag við KR um að fjárfestingarfélag þeirra, Urania Trade Ltd., myndi borga norska félaginu áðurnefnda upphæð og eignast þar með leikmanninn. Samningur á milli fjárfestingar- félagsins og KR var undirritaður 1. febrúar 2002 samkvæmt áreiðan- legum heimildum og í samningnum kemur skýrt fram hvor aðilanna hefur rétt á að selja Veigar Pál þegar til kastanna kemur. „Við lítum á þetta sem fjárfestingu og okkar eina takmark er að græða pening á þessu dæmi. Þetta eru bara viðskipti svo einfalt er það." Undirritaður sá þennan sámning í gær og þar stendur í þriðju grein: „Komi kauptilboð í leikmanninn getur fjárfestirinn ákveðið að taka því burtséð frá íjárhæð þess. Kaupverðið skiptist þannig að fyrst fær íjárfestirinn greiddar NOK 100.000. Sfðan skiptast eftir- stöðvarnar þannig að Stromsgodset fær 20%, KR fær 20% og fjárfestirinn 60%.... Verði samningur félagsins og leikmanns framlengdur helst ofangreint ákvæði óbreytt. Einnig ef samið er á ný á milli félagsins og leikmanns." Tilboð til KR og Baldurs Stabæk sendi bæði KR og Baldri Sigurðssyni, hluthafa í Urania Trade Ltd., tilboð sitt í Veigar Pál í gær og samkvæmt heimildum DV Sports hljóðaði það upp á 100 þúsund norskar krónur, nákvæmlega sömu upphæð og fjárfestarnir borguðu fyrir Veigar Pál á sínum tíma til að losa hann frá Stramsgodset. DV Sport hefur heimildir fyrir því að Stabæk hafi vitað af þessu ákvæði f samningi Veigars Páls þegar síðasta sumar þegar útsendarar félagsins komu til íslands til að skoða hann. Upphæðin þarf því ekki að koma á óvart því að með henni fær Urania Trade Ltd., allan útlagðan kostnað borgaðan en KR situr eftir með sárt ennið, þar sem tilboð Stabæk hljóðaði aðeins upp á forgangskröfu fjárfestingarfélagins og ekki krónu meir, slyppt og snautt og búið að missa einn sinn besta mann. Samkvæmt heimildum DV Sports þá skrifaði Baldur undir „Komi kauptHboð í leikmanninn getur fjár- festirinn ákveðið að taka því burtséð frá fjárhæð þess. Kaupverðið skiptist þannig að fyrst fær fjárfestirinn greiddar NOK 100.000. Síðan skiptast eftirstöðvarnar þannig að Stromsgodset fær 20%, KR fær 20% og fjárfestirinn 60%." tilboðið frá Stabæk í gærdag og því virðist fátt geta komið í veg fyrir að. Veigar Páll gangi í raðir Stabæks. Bara viðskipti Baldur Sigurðsson sagði í samtali við DV Sport í gær að það væri á hreinu að fjárfestingarfélagið hefði ekki keypt Veigar Pál til að hjálpa KR. „Við lítum á þetta sem fjárfestingu og okkar eina takmark er að græða pening á þessu dæmi. Þetta eru bara viðskipti svo einfalt er það,“ sagði Baldur. DV Sport ræddi við Þorvald Björnsson, gjaldkera KR-Sports, í gær en hann vildi lítið tjá sig um málið að öðru leyti en að félagið hefði fengið tilboð frá Stabæk og verið væri að fara yfir hlutina í rólegheitum. Þorvaldur vildi ekki svara spurningu undirritaðs þess efnis hvort það væri ekki rétt að KR fengi ekki krónu samkvæmt tilboði Stabæk eða hvort það væri rétt að fjárfestirinn hefði óskorað vald til að taka hvaða tilboði sem bærist í leikmanninn. Hefðu getað keypt Veigar Það vekur óneitanlega athygli að Veigar Páll skuli enn vera eign fjárfestingarfélagsins Urania Trade Ltd., tveimur árum eftir að hann var leystur undan samningi við Stromsgodset. KR-ingar hafa haft allan þann tíma til að&aupa hann af fjárfestingafélaginu en hafa aldrei sýnt neina tilburði til að kaupa hann lausan. Afleiðingarnar eru þær, miðað við þau gögn sem undirritaður hefur f höndunum, að Veigar Páll fer frá KR án þess að félagið fái krónu fyrir. oskar@dvJs Síðasti kossinn Veigar Páll Gunnarsson sést hér kyssa Islandsmeistara- bikarinn eftirsigur KR- inga í fyrra. Þetta verður liklega siðasti bikarinn sem hann kyssir fyrir KR- inga i bili. DV-mynd Hilmar Þór Meistarar Leikmenn Snæfells sjást hérmeð deildarmeistarabikarinn eftir sigurinn gegn Haukum i Stykkishólmi á sunnudaginn. DV-mynd Hari Tólfti sigurinn í röð og titillinn í höfn Rétt áður en Snæfellingar lögðu grunninn að tíu stiga sigri sínum á Haukum, virtust þeir vera að missa’ tökin á leiknum. Snæfell leiddi 41-36 í hálfleik en Haukar skoruðu átta stig í röð og voru komnir með 45-48 for- ystu í upphafi seinni hálfleiks. Þá tóku Hólmarar við sér, lokuðu vörn- inni og unnu næstu fimm mínútur 14-2. Eftir það var aldrei nein spurn- ing um að deildarmeistaratitillinn var á leiðinni í fyrsta sinn í Hólminn og að liðið hafði unnið sinn 12. deildarleik í röð, 79-69 gegn Hauk- um. Dondrell Wliitmore fór fyrir Snæfelli í fyrri hálfleik og skoraði þá 17 af 23 stigum sínum en í seinni hállfeik var landi hans Edmund Dot- son í sviðsljósinu í vörn og sókn þar sem hann skoraði méðal annars 14 af 20 stigum sfnum sfðustu 14 mín- útur leiksins. Þá skoraði Corey Dickerson 12 stig og gaf 7 stoðsend- ingar og Hlynur Bæringsson var með 8 stig og 12 fráköst. Hjá Hauk- um skoraði Whitney Robinson 18 stig, Michael Manciel var með 16 stig og 13 fráköst og Sævar Ingi Har- aldsson skoraði 16 stig. ooj@dv.is Kúvending á afstöðu Sepp Blatters, forseta FIFA, til þátttöku leikmanna í 100 ára afmælisleik sambandsins Leikmenn missa ekki af bikar- úrslitaleiknum í Englandi Nú er orðið ljóst að Frakkar og Brasili'umenn verða að vera án margra sinna bestu leikmanna í 100 ára afmælisleik Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins sem fram fer 20. nóvember næstkomandi, ef ensku liðin Arsenal og Manchester United komast í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar sem fram fer tveimur dögum síðar. Frakkar gætu þurft að horfa á eftir hálfu landsliði sínu því leikmenn eins og Thierry Henry, Robert Pires, Patrick Vieira og Mikael Silvestre verða væntanlega í sviðsljósinu líkt og Brasili'umenn- irnir Gilberto Silva og Kleberson. Sepp Blatter, forseti FIFA, hafði áður lýst því yfir að leikmönnum yrði ekki leyft að sleppa við landsleikinn þrátt fyrir yflrvofandi bikarúrslitaleik en nú hefur hann dregið í land. „Ég er viss um að við flnnum lausn á þessu á máli en það er alveg á hreinu að við munum ekki beita þá leikmenn sem ekki koma í leikinn sömu refsingu og Mark Viduka fékk nýverið. Það verður enginn neyddur til að spila þennan leik en auðvitað missir hann allan sjarma ef marga af bestu leikmönnum liðanna vantar. Þjálfarar liðanna munu vita þetta með góðum fyrirvara og geta þá burgðist við því á þann hátt sem þeir telja best,“ sagði Blatter.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.