Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 31
r DV Síðast en ekki síst ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 3 7 Rúni Júl syngur til móður sinnar á himnum „Já, það er að koma plata. Trú- brotin 13. Þetta er upprisa sem kem- ur út um páskana," segir Rúnar Júlí- usson, að margra mati rokkgoð ís- lands númer eitt. Hann er að leggja lokahönd á nýja plötu sem heitir Trúbrotin 13 en hún kemur út 1. apríl. Á plötunni er að finna lög, ný og gömul - gospelsöngva. Platan er helguð móður Rúnars. „Já, ég er trúaður og er fæddur inn í þannig fjölsk>ddu að ég hef hlustað á trúarsöngva allt mitt líf. Móðir mín söng með kirkjukór í • Þótt skammt sé síðan Björgólfur Guðmundsson sneri aftur í íslenskt viðskiptalíf hefur hann svo sannarlega látið til sín taka. Eftir málaferlin og atgang- inn í kringum Hafskip sást lítið til hans. Hann lagðist í útlegð í Rússlandi þaðan sem hann sneri klyfjaður Rússagulli. Hér keypti hann fýrst Landsbankannog tókst síðan að drepa Kolkxabbann. Björgólfúr tók yfir Eimskip sem hafði gert honum gramt í geði fyrr á árum og er nú kom- inn langleiðina að ná íslandsbanka undir sig. Þeir sem fylgjast með honum segja að hann eigi nú bara eitt eftir til að sýna þeim sem gerðu honum lífið leitt hvar Davíð keypti ölið. Hann ætli því að safna liði og peningum og kosta forsetaframboð gegn sínum forna fjanda Ólafi Ragnari Grímssyni, en enginn talaði hærra gegn Hafskipi á Alþingi á sín- um tíma.... • Gríðarleg eftirvænting ríkir nú meðal leikara, sem nú naga margir hverjir neglurnar. í pósti er bréf til margra þeirra frá menntamálaráðu- neytinu þar sem ann- ars vegar verður sagt þvert nei við umsókn þeirra um styrk eða, í talsvert færri tilvikum, já. Leiklistar- ráð úthlutar rúmum 40 milljónum til sjálfstæðra leikhópa og verkefna en af því hefur þegar verið ráðstaf- að 11 milljónum til Hafnarfjarðar- leikhússins. Sótt var um á þriðja hundrað milljónir þannig að margir munu sitja eftir með sárt ennið og hugsa þeim Bimi G. Bjömssyni hönnuði, Þórdísi Amljótsdóttur leik- og fréttakonu og Hjálmari Hjálmarssyni þegjandi þörfina... • Nokkur urgur er í auglýsingafólki vegna ákvörðunar dómnefndar ÍMARK sem ákvað að auglýsingar Góðs fólks fyrir VR ættu við í öllum flokkum en ekki í almannaheilla- flokki eins og flestir innan stéttarinnar telja að rétt hefði ver- ið - líkt og tO dæmis allar trygginga- auglýsingar vom. Skilgreining ÍMARK sé bjálfaleg í besta falli. VR- auglýsingarnar hrifsuðu til sfn þrenn verðlaun til handa Góðu fólki. Liv Bergþórsdóttir var for- maður dómnefndar en hún vék vegna hagsmuna-| tengsla þegar ákvörðun- in var tek- in. Það kom þá í hlut þeirra prófessors Guðmundar Odds Magnússonar hjá Listaháskólanum og fyrrum eiganda Góðs fólks, Ást- þórs Jóhannssonar, að ákveða hvað yrði. Þeir hinir gagnrýnustu sega augljóst að þar fari tveir vilhaflir Góðu fólki... 45 ár. Hún var ekkert mikið fyrir að ég væri í þessu rokkstandi, hafði horn í síðu slíks lífernis eins og reyndar sú kynslóð að mestu. En ég helga henni plötuna, syng til móður minnar á himnum. Ég er að reyna að ná sambandi við hana í himnarík- inu.‘‘ Á Trúbrotunum 13 verður að finna lög á borð við „Ég flýg burt“, „Er mamma söng“, „Að e0ífú“, „Hunangsilmur" og „Ekkert jafnast á við Jesús". Að auki verður að finna á plötunni upptöku frá árinu 1951, en þá tók afi Rúnars upp söng hans „Ó, Jesú bróðir besti“. „Sá söngur endar einmitt á orðunum: Og góðan ávöxt bera. Og það passar því svo hefst rokkið." Fjölskylda Rúnars kemur að gerð plötunnar: Synir hans Baldur og Júl- íus, mágur hans Þórir Baldursson og svo syngur Davíð Ólafsson bassa, því dýpt verður að vera til staðar að sögn Rúnars. Hann segist ekkert vera trúaður nú umfram það sem verið hefur, þrátt fyrir að senda nú frá sér trúarplötu. „Bara eins og gengur og gerist. Ekkert á skeljunum um allar byggðir." Rúnar segir hæpið að hann fylgi plötunni eftir líkt og dæmi'gert má heita. Annars er allt á fulllu hjá Rúnari, sem rekur eigin rokksveit auk þess sem Hljómar eru nú starfandi. „Svo er ég voðalega spenntur að fylgjast með hvernig mun ganga með söngleik sem verið er að æfa núna í Fjölbrautarskóla Suðurnesja: Hljómar fyrr og síðar. Það verður eitthvað." jakob@dv.is Betrunarvist Ataksnámskeið fyrir konur og karla Næstu 8 vikna námskeið hefjast 3. mars næstkomandi Verð: 15.900 Viltu komast í form fyrir vorið? - golfið í sumar? - eða gönguferðina? Slástu í hóp þeirra fjölmörgu sem náð hafa góðum árangri hjá okkur undanfarin ár Frábær tilboð á kortum í Betrunarhúsinu næstu daga Árskort á 24.900 kr. stgr. Fullt verð 39.900 6 mán. á 15.500 kr. stgr. Fullt verð 24.900 8.900 kr. stgr. Fullt verð 15.500 3.500 kr. stgr. Fulltverð 6.900 3 mán. á 1 mán. á Ekki slá heilsunni á frest! Betrunarhúsið • Garðatorgi 1 • 210 Garðabær • sími: 565 8898 • www.betrunarhusid.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.