Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 13
13V Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 13
Framakonur
halla sérað
flöskunni
Konur sem gegna starfi
yfirmanna eru þrisvar sinn-
um líklegri til að eiga við
drykkjuvandamál að stríða
en konur sem eru lægra
settar. Þetta kemur fram í
niðurstöðum nýrrar breskr-
ar rannsóknar en þar segir
meðal annars að drykkju-
vandi kvenna sé mun
tengdari starfsframa þeirra
en hjá körlum. Því hærra
settar sem konur eru því
meiri lfkur á að þær missi
stjórn á áfengisdrykkjunni.
Forsvarsmenn rannsóknar-
innar segja eina ástæðuna
þá að háttsettar konur þurfi
gjarnan að sitja kvöldfundi
með karlmönnum og noti
áfengið til að slaka á
spennu. Karlar virðast hins
vegar frekar halla sér að
flöskunni ef þeir eru í starfi
þar sem ekki er kostur á
stöðuhækkun.
Mel Gibson
fyrirgefur
„£g fyrirgef og reyni að
hafa kærleikann að leiðar-
ljósi, rétt eins og myndin
snýst um,“ segir Mel Gib-
son um gagnrýnendur
hinnar umdeildu myndar,
The Passion of the Christ.
Gibson hefur verið sak-
aður um dreifingu á gyð-
ingahatri með framleiðslu
myndarinnar og er allt ann-
að en sáttur við gagnrýn-
ina. „Af hverju er ég ekki
látinn í friði þegar mun
blóðugri og ógeðfelldari
myndir eru í gangi," segir
Gibson og tekur dæmi um
kvikmyndina Kill Bill eftir
Quentin Tarantino. Þrátt
fyrir að vera helsta grínefni
vestan hafs stefnir myndin
í að sprengja öfi aðsóknar-
met.
Tólf áraíDNA-
rannsókn
Tólf ára breskur piltur
hefur verið látinn sæta
DNA-rannsókn vegna þess
að hann stakkjafnöldru
sína með gaffli á leikvelli í
Leeds. Pilturinn kveðst hafa
stungið stúlkuna vegna
þess að hún hellti jógúrti
yfir hann. Stúlkunni varð
ekki meint af en lögreglan
lítur árásina alvarlegum
augum. Vegna ungs aldurs
drengsins verður honum
ekki refsað - en atvikið
ásamt DNA-sýninu mun
fylgja honum alla tíð.
Réttarhöld eru loks hafin yfir Marc Dutroux sem gefið er að sök að hafa rænt,
nauðgað og myrt fjórar stúlkur. Óhætt er að segja að maðurinn sé mest hataði
maður Belgíu og þurfti hvorki meira né minna en 300 vopnaða lögreglumenn til að
halda uppi lögum og reglu fyrir utan dómshúsið í gær.
Krefjast dauoarefsingar
yfir barnaníöiagi
Réttarhöld yfir einum alræmdasta
glæpamanni Belgíu, Marc Dutroux,
hófust í borginni Arlon í gær. Sjö ár
eru síðan Dutroux var handtekinn og
honum gefið að sök að hafa rænt og
misþyrmt sex stúlkum auk þess að
myrða fjórar þeirra. Tvær stúlkn-
anna, báðar átta ára, dóu úr hungri
og vosbúð í kjallaraholu í húsi
Dutroux.
Gríðarleg öryggisgæsla var jafnt
fyrir utan sem inni í dómshúsinu í
gær. Þrjú hundruð vopnaðir lög-
reglumenn gættu hússins og einkum
þess að sakborningurinn næði ekki
að flýja. Honum tókst nefnilega að
flýja árið 1998 þegar hann yfirbugaði
öryggisvörð í sama dómshúsi. Hann
náðist hins vegar eftir aðeins þriggja
stunda flótta.
Dutroux sat fyrir innan skothelt
gler þegar hann greindi réttinum frá
nafni sínu og stöðu í gær. Hann mun
ekki bera vitni í málinu fyrr en á
morgun. Hann hefur þegar viður-
kennt að hafa rænt stúlkunum og
haldið þeim nauðugum. Hann neitar
hins vegar að hafa myrt þær.
Framdi glæpina á reynslu-
lausn
Dutroux, sem er 47 ára rafvirki, er
ekki að koma fyrir rétt í fyrsta sinn.
Hann var dæmdur um miðjan ní-
unda áratuginn fyrir mannrán og
morð á ungum stúlkum. Hann fékk
reynslulausn þremur árum síðar og
tók þá upp fyrri hætti; rændi og mis-
þyrmdi ungum stúlkum.
Hann var handtekinn á ný árið
1996 og hefur setið íyarðhaldi síðan.
Þegar upp komst að Dutroux hefði
verið handtekinn í annað sinn fyrir
að níðast á stúlkubörnum varð allt
vitlaust i Belgíu. Hundruð þúsunda
manna mótmæltu vinnubrögðum
lögreglunnar og í kjölfarið fór nefnd á
vegum þingsins yfir málið. Ástæða
þess að rannsókn lögreglu dróst úr
Foreldrar Betty og Paul Marchal, foreldrar
eins fórnarlambanna, fylgdust með fyrsta degi
réttarhaldanna.
hömlu var einkum sú að lögregla
vildi kanna til hlítar hvort Dutroux
tilheyrði hring barnaníðinga. Æstur
múgur beið komu Dutroux til dóms-
hússins í gærmorgun og hrópaði
ókvæðisorð að honum. Lögregla
handtók mann í gær sem hafði reist
gálga fyrir utan dómshúsið. Fólk
krafðist dauðarefsingar yfir Dutroux
jafnvel þótt slíkar refsingar séu ekki
við lýði í landinu.
Réttarhöldin kosta 300 millj-
ónir
Saksóknari heldur því fram að
hann hafi notið aðstoðar konu sinn-
ar, Michelle Martin, og tveggja ann-
arra karlmanna. Þremenningarnir
hafa verið ákærðir fyrir mannrán, eit-
urlyfjaeign og samsæri.
Gert er ráð fyrir að réttarhöldin
yfir Dutroux standi næstu þrjá mán-
uði og kosti ekki undir 300 milljónum
króna.
Marc Dutroux Mest hataði maður Belgíu
kemur fyrir rétt i gær. Dutroux er gefið að sök
að hafa með grimmilegum hætti rænt, nauðg-
að og myrt ungar stúlkur.
Grandi með útsölu á frystum fiski:
Ýsa á kostnaðarverði rokseldist
Mikill handagangur var í öskj-
unni hjá Granda um helgina þegar
fyrirtækið seldi kílóið af ýsu á 200
krónur.
Svavar Svavarsson framleiðslu-
stjóri sagði ánægjulegt að sjá hve
margt ungt fólk hafi komið og keypt
í soðið en flestir voru á ýsualdrinum
eins og hann kallaði það, yfir fimm-
tugt og upp úr. „Við höfum haft grun
um það lengi að unga fólkið væri lít-
ið fyrir fiskinn en samkvæmt niður-
stöðum úr könnun manneldisráðs
fyrir skömmu kom í ljós að
fiskneysla þjóðarinnar hefur dregist
saman um 30% síðan 1990. Neysla
okkar er komin niður í sama magn
og hjá öðrum Evrópuþjóðum en
vorum fyrir ekki svo löngu meðal
þeirra efstu," segir Svavar og þess
vegna hafi þeim þótt við hæfi að
kynna ýsuna með þessum hætti.
Svavar segir að eldra fólkið hafi
haldið tryggð
við fiskinn og
á því sé ekk-
ert lát. Hann
viðurkennir
að fiskurinn
hafi verið of
dýr og játar
að verðið hafi
ekki síst átt
SOK a pvi. svavar Svavarsson
„Menn hafa Framleiðslustjóri
valið annan
mat í staðinn fyrir fisk, eins og
kjúkling, auk þess sem frjáls verð-
myndun hefur haft eitthvað með
þennan samdrátt að gera. Við vild-
um því leggja okkar af mörkum og
það var því sérstaklega ánægjulegt
að hitta allt þetta fólk serú kom og
keypti ýsu á kostnaðarverði um
helgina en það fóru á sex klukku-
stundum 65 tonn.“
Það var handagangur í öskjunni á ýsudögum Granda Unga fólkið hefurdregið úr
fiskneyslu og vildi Grandi bæta úr því með því að bjóða upp á ýsudaga og seldi kilóið á 200
krónur.