Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004
Fréttir DV
Dró lík 13 km
Yfirvöld í Virginíufylki í
Bandaríkjunum hafa ákært
hinn 25 ára gamla Josuel
Galdino fyrir manndráp af
gáleysi, ölvunarakstur og
fleira, eftir að hann ók yfir
mann og dró líkið með
jeppabifreið sinni 13 km
leið. Slysið varð með þeim
hætti að ökumaður steig út
úr bíl sínum til að athuga
hvort það væri sprungið
þegar hann varð fyrir jeppa
Josuels. Hann ók síðan
með líkið umrædda vega-
lengd og tilkynnti lögreglu
daginn eftir að hann hefði
fundið lík fast við bílinn
sinn. Hvorld Josuel né far-
þegi sem var með honum í
för urðu varir við þegar
ekið var á manninn.
Fagna
friðargæslu
Uppreisnarmenn á Haítí
óku inn í höfuðborgina í
gær og mættu engri mót-
spyrnu. Þeim var aftur á
móti fagnað af hundruðum
íbúa sem hrópuðu nafn
uppreisnarleiðtogans Guys
Philippe en Jean-Bertrand
Aristide forseti flúði land á
sunnudag. Leiðtogi upp-
reisnarmannanna sagðist í
gær fagna komu erlendra
friðargæsluliða til Haítí en
bandarískir og franskir her-
menn búa sig nú undir að
vernda mikilvæga staði í
höfuðborginni.
Synir Sadd-
ams á lífi
Eiginkona Saddams
Hussein, Sajeda Khairallah
Telfah, segist sannfærð um
að synir forsetans fyrrver-
andi, Uday og Qusay, séu
enn á lífi og að myndir sem
Bandaríkjaher birti af líkum
þeirra haft verið fölsun.
Þetta kemur fram í fréttum
arabíska dagblaðsins al-
Quds sem gefið er út í Bret-
landi.
Hallbjörn Hjartarson
tónlistarmaöurá Skagaströnd
„Hér er allt með kyrrum kjör-
um og rólegtyfir að líta í bæn-
um. Þorrablótsvertíðin er að
baki og hversdagurinn tekinn
við. Það er ágætt að eiga ró-
Landsíminn
lega tíð yfir vetrarmánuðina
og svo verður kannski meira
fjör með vorinu. Ég held að
heimamenn hafi það almennt
gott og menn eru sáttir við
sitt. Ég er sjálfur ekki með neitt
á dagskránni en efég spila
fyrir iandsmenn þá verður það
bara að koma öllum að óvör-
um, eins og alltaf."
Dómsmálaráðherra boðar stækkun vopnaðrar sérsveitar lögreglunnar til að verjast
hryðjuverkum
Vopnuð íslensk sérsveit
Vísir nð íslenskum her
Víkingasveitin að störfum Sérsveit iögregiunnar sam-
anstendur af21 lögreglumanni í dag. Á næstu árum er áform-
aö að fjölga i sveitinni þannig að fullmönnuð innihaldi hún
50 menn. Þetta mun kosta um 250 milljónir á ári.
Björn Bjarnason dómsmájaráðherra tilkynnti
. það á blaðamannafundi í gær að á næstu árum
yrði sérsveit lögreglunnar efld og stækkuð til að
mæta hryðjuverkaógninni og aukinni hörku af-
brotamanna. Til stendur að fjölga meðlimum sér-
sveitarinnar, sem í daglegu tali er kölluð Víkinga-
sveitin, úr 21 í 50, og um leið að auka hlutverk
hennar í löggæslustörfum.
Vísir að íslenskum her
Dómsmálaráðherra hefur verið tíðrætt um ís-
lenskan her að undanförnu og með eflingu Vík-
ingasveitarinnar má segja að honum hafl orðið að
ósk sinni upp að einhverju marki. Sérsveitin mun
hafa það í sínum verkahring að þjálfa aðra lög-
reglumenn, hún mun hafa aðgang að þyrlum
Landhelgisgæslunnar og sjá um flugvernd, sigl-
ingavernd og friðargæslu ef þannig ber undir.
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs, segir ástæðu til að
ræða þetta mál á opinn og lýðræðislegan hátt
áður en aðhafst verður frekar í málinu.
„Öryggi þjóðar á að efla með forvörnum en
ekki hervörnum. Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hefur löngum verið hallur undir síðari kost-
inn og viljað koma á fót íslenskum her. Er þar með
kominn vísir að slíku fyrirbæri og þá er ástæða til
að hafa af því nokkrar áhyggjur. Hins vegar er
brýnt að fá um þetta opna lýðræðislega umræðu
áður en frekari skref eru stigin,“ segir Ögmundur
Jónasson.
Aukin harka afbrotamanna
Samkvæmt breytingunum verður sérsveitar-
mönnum fjölgað á næstu árum úr 21 í 50 auk þess
sem sveitin verður frá og með gærdeginum stoð-
deild undir forsjá embættis ríkislögreglustjóra.
Sérsveitarmenn heyra því ekki lengur undir lög-
regluna í Reykjavík heldur nkislögreglustjóra.
Fram kom í máli Björn Bjarnasonar í gær að til-
gangurinn með þessum breytingum væri að efla
löggæslu í landinu, stuðla að auknu öryggi lög-
reglunnar sjálfrar sem og almennra borgara.
„Er þar með kominn vísir að
íslenskum her og þá er ástæða
til að hafa afþví nokkrar
áhyggjur."
Magnús Þór Hafsteins-
son Óffosf að vopnaburður
lögreglu muni leiða til auk-
ins vopnaburðar afbrota-
manna.
Ögmundur Jónasson
Þingmaður Vinstri-grænna
telur efiingu sérsveitarinnar
vera visi að islenskum her og
viitopna lýðræðislega um-
ræðu áður en farið verður
lengra með málið.
Björn sagði jafnframt að lögreglan yrði að vera
undir það búin að bregðast við hryðjuverkum og
aukinni hörku afbrotamanna.
Sérsveitarmenn munu þrátt fyrir breytingarn-
ar halda áfram að sinna almennum löggæslu-
störfum um land allt samhliða sérsveitarverkefn-
um. Stefnt er að því að ákveðinn hluti sérsveitar-
innar verði alltaf viðbúinn með stuttum fyrirvara
á höfuðborgarsvæðinu og að það raski ekki öðr-
um störfum lögreglunnar.
Grípa afbrotamenn til vopna?
Löggæslumál hafa lengi verið til umræðu og
hafa þær raddir verið hvað háværastar að efla
þurfi löggæslu á höfúðborgarsvæðinu - t.d. í mið-
bænum um helgar. Því undrast margir að fjár-
munum skuli vera varið í þetta verkefni í stað þess
að efla almenna löggæslu. Kostnaðurinn við fjölg-
un sérsveitarmanna er umtalsverður en gert er
ráð fyrir að rekstur sveitarinnar muni koma til
með að kosta 250 milljónir króna á ári þegar hún
verður fúllmönnuð. Af þessu hefur Magnús Þór
Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins,
nokkrar áhyggjur auk þess sem hann óttast auk-
inn vopnaburð afbrotamanna samhliða vopna-
burði lögreglu.
„Mér óar við kostnaðinum, þetta eru 250 millj-
ónir á ári, á fjórum árum heill milljarður. Fimm
milljónir lcróna fara í hvern sérsveitarmann á ári.
Ég held það mætti verja peningunum betur en
þetta ef menn ætla að berjast gegn harðnandi
glæpum. Annað sem ég vara við er að vopnuð lög-
regla eykur hættuna á því að afbrotamenn grípi
líka til vopna."