Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Rltstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjórar
ReynirTraustason
Kristinn Hrafnsson
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
ar auglysingar@dv.is. - Drelfing:
dreifing@dv:is
Setning og umbrofc Frétt ehf.
Prentvinnsla: Isafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins (stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
Tom
TB|F M
Craise
1 Hver var önnur eiginkona
Cruise?
2 En hver var sú fyrsta?
3 Hvað ætlaði Cruise að
verða langt fram eftir aldri?
4 Fyrir hvaða mynd árið
1990 fékk hann sæg af verð-
launum fyrir leik sinn?
5 Hvert er raunverulegt
ættarnafn hans?
Svör neðst á síðunni
Meiri kraft í
Evrópusamrunann
í leiðara danska blaðsins
Berlingske Tidende er
kvartað undan hæga-
gangi í Evrópusanmm-
anum. Leiðtogafimdir
innan sambandsins
verða æ tíðari en þeim
mun fleiri sem fundirnir
verða því erflðari verða
ákvarðanirnar. Blaðið
kvartar undan því að
leiðtogar ríkja Evrópu-
sambandsins séu of upp-
teknir af valdaskiptingu
og ákvarðanatökuferlum
sambandsins. Er það
sagt tefja fyrir hinum
raunverulegu pólitísku
málefnum sem snerta
hversdagslff hins al-
menna Evrópubúa og
velferð. Meðal annars er
bent á að þrátt fyrir 20
ára vinnu hefur ekki enn
tekist að koma á full-
komnum innri markaði
með vörur í sambandinu
og kenna menn pólitísku
valdatafli og efasemdum
leiðtoga nokkurra rikja
þar um.
Lúsífer
Lúsífer er eitt afnöfnum and-
skotans og komið úr latínu.
Það þýðir eiginiegajjósberi“
og gefur til kynna að til forna
var gjarnan litiö á pokurinn
sem ígildi þeirra alkunnu guða
úröllum trúarbrögðum sem
gerðu meiri eða
minni uppreisn
gegn aðalguðinum
og vildu í staðinn binda trúss
sitt við mennina. Hinn gríski
Prómeþeifur og hinn norræni
Loki eru báöir afsllku kyni
ásamt Lúslfer.
Lúsifer varmeð Rómverjum
llka nafn á morgunstjörnunni
Venusi.
Málið
Svörvið spurningum:
1. Nicole Kidman - 2. Mimi Rogers - 3.
Prestur - 4. Bom on the 4th of July - 5.
Mapother (Cruise er millinafn).
Pólitískt trúarofstæki
eir höfðu engan áhuga á Osama bin
Laden og A1 Kaída, en voru helteknir af
Saddam Hussein og írak. Þeir ste&idu
að árás á gamlan skjólstæðing í Bagdað. Þeir
vildu ekki sinna neinum gagnrökum og þess
vegna komu árásimar á World Trade Center
og Pentagon eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Þetta voru George W. Bush Bandaríkjafor-
seti og Donald Rumsfeld stríðsráðherra,
Condoleezza Rice öryggisstjóri og Paul Wol-
fowitz hugmyndafræðingur. Þetta er gengið,
sem hefur snúið heimsmálunum á annan
endann og gert Bandaríkin að mestu ógnun
nútímans við öryggi og frið á Vesturlöndum.
Öryggisráðgjafi fjögurra forseta, þar á
meðal tveggja, sem heita Bush, hefur kastað
sprengju á Hvíta húsið með bók um viðhorf
Bushíta til öryggismála. Bók Richard Clarke
og umræðan um hana hefur varpað skýru
ljósi á dómgreindarskort og ofsatrú hópsins,
sem hann vann fyrir í Hvíta húsinu.
Það var sannfæring gengisins, að hryðju-
verk væru sprottin af óvinveittum stjómvöld-
inn. Gengið áttaði sig ekki á, að tækni og fjar-
skipti nútfmans gera hryðjuverkamönnum
kleift að valda miklum skaða án aðstoðar
rfkisstjóma. Árásin á World Trade Center og
Pentagon var dæmi um ríkislaust hryðjuverk.
Rumsfeld trúði ekki í fyrstu, að A1 Kaída
stæði að baki hryðjuverksins. Enda hafði
Wolfowitz sagzt vera orðinn þreyttur „á stöð-
ugu tali um þennan eina mann, bin Laden".
Þegar sannleikurinn kom í ljós, hamraði
Rumsfeld á því, að einhvers staðar hlyti
Saddam Hussein að vera að tjaldabaki.
Síðan hefur komið í ljós, að ekkert var
hæft í forsendum stríðsins gegn Irak. Þar
voru engin gereyðingarvopn og þar var eng-
in uppspretta hryðjuverka á Vesturlöndum.
Saddam Hussein var ekki einu sinni hættu-
legur nágrannaríkjunum, þótt hann reyndi
að sýnast öflugri en hann var í raun.
Fleiri sérfræðingar hafa tjáð sig. David
Kay, yfirmaður vopnaleitar bandarfska her-
námsliðsins í frak, fullyrðir, að engin gereyð-
ingarvopn hafi verið í írak. Von er á bók
sendiherrans Joseph Wilson, þar sem hann
sýnir fram á, að gengið í Hvíta húsinu hafi
litið framhjá sönnunargögnum.
Ofstækismenn Hvíta hússins trúa bara því,
sem þeir vilja trúa og taka ekkert mark á
staðreyndum. Þeir ganga fram af offorsi trú-
arofstækis og hirða ekki um, þótt verk þeirra
gangi fram af fólki um alian heim. Gengið
lék sér að því að láta drepa 10.000 óbreytta
og saklausa borgara í frak.
Verði ffamhald á dvöl hins róttæka og
dómgreindarskerta stríðsglæpagengis í
Hvíta húsinu á næsta kjörtímabili, mun það
leiða ógn og skelfingu yfir mannkynið
Jónas Kristjánsson
FRÉTTABLAÐIÐ BIRTI í gær niður
stöður skoðanakönnunar um trú ís-
lendinga á upprisuna. Samkvæmt
henni trúa 67 prósent landsmanna
því að frásagnir Biblíunnar af ujjprisu
Jesú séu sannleikanum samkvæmar.
Skemmtilegur en óútskýrður munur
kemur fram á trú kynjanna á upp-
risufrásagnirnar en blaðið segir að
rúm 70 prósent kvenna hafi lýst yfir
trú sinni á upprisuna en ekki nema
64 prósent karla. Þeir sem afdráttar-
laust trúa ekki á upprisuna em 33
prósent.
Trúin er líka mismunandi eftir bú-
setu en í Fréttablaðinu segir:
“71,3 prósent íbúa landsbyggðar-
innar trúa en 64,9 prósent fólks á
suðvesturhorninu. Ogsémunurinn á
trúnni á upprisuna eftir búsetu
gaumgæfður kemur í ljós að ríkust er
hún í Norðausturkjördæmi, svo í
Nói albínói í
f Z¥ / t i
„EfefKristur er ekki upprisinn, þá er
ónýt prédikun vor, ónýt tíka trú yðar
... En efKristur er ekki upprisinn, er
trú yðar fánýt, þér eruð þá enn í
syndum yðar, oq þá eru einnig þeir,
sem sofnaðir eru í trú á Krist, glat-
aðir. Ef von vor til Krists nær aðeins
til þessa lífs, þá erum vér aumkunar-
verðastir allra manna."
Fyrst og fremst
fíqrmum
Kvikmyndin Nói albínói
ferðast nú um Bandaríkin og er
m.a. sýnd í nokkrum kvik-
myndahúsum í New York borg.
Þar er hún að fá geggjaða dóma
í blöðum eins og New York Post
þar sem hún fær þrjár stjörnur
og leikstjóranum Degi Kára líkt
við Jim Jarmusch og Aki Kauris-
maki. Á vefsíðunni,
www.rottentomatoes.com sem
heldur utan um alla dóma sem
myndir vestanhafs fá gefa gest-
ir síðunnar Nóa 88 af 100 í eink-
un. Zik Zak framleiddu Nóa
albínó en næsta verkefni Dags
er dönsk dogma-mynd. Dagur
Kári lærði éinmitt í Danmörku
og er það Nimbus Films (fram-
leiddu Festen) sem gera með
honum dogma-myndina. Zik
Zak eru líka með í undirbúningi
mynd á ensku með Degi Kára
en hann er svo heitur í augna-
blikinu að fjárfestar vilja flestir
ólmir vera með í myndum eftir
kauða.
Suðurkjördæmi, þá í Norðvesturkjör-
dæmi ogloks á suðvesturhorninu. Og
sé enn rýnt í niðurstöður má sjá að
næstum 8 af hverjum 10 konum í
Norðaustur- og Suðurkjördæmum
trúa á upprisu Jesú Krists en 6 af
hverjum tíu karlmönnum á auðvest-
urhorninu. “
ÞAÐ ER LÍKLEGA eins gott að svona
margir skuli trúa á upprisuna. Annars
gætum við talist kristin þjóð. Því eins
og Páll postuli sagði í fyíra Kórintu-
bréfinu, fimmtánda kapítula:
“EfefKristur er ekki upprisinn, þá
er ónýt prédikun vor, ónýt líka trú
yðar ... En ef Kristur er ekki uppris-
inn, er trú yðar fánýt, þéreruð þá enn
ísyndum yðar, og þá eru einnig þeir,
sem sofnaðir eru ítrú á Krist, glatað-
ir. Efvon vor til Krists nær aðeins til
þessa lífs, þá erum vér aumkunar-
verðastir allra manna. “
í LJÓSI ÞESS hversu mikilvæg upp-
risan er fyrir kristna trú sem slíka
kemur ef til vill á óvart að séra Gunn-
ar Kristinsson, prófastur á Reynivöll-
um, sem talinn er einn lærðasti
kennimaður íslensku kirkjunnar,
skuli lýsa því yfir í Fréttablaðinu að
mikil upprisutrú íslendinga komi sér
á óvart. Og líka að trú séra Gunnars á
upprisuna virðist fremur fela í sér trú
á einhvers konar „huglæga" upprisu,
frekar en „holdlega" upprisu frelsar-
ans, eins og þó hefur verið ein aðal
kennisetning kirkjunnar um aldir. Því
séra Gunnar segir:
“Það er ekki meginatriði í þessu
efni að upprisan á páskadagsmorgun
hafi veirð sögulegur atburður vegna
þess að upprisufrásagnir ganga út á
það að Jesús hafí verið nálægur læri-
sveinum sínum ogþeir hafí fýllst nýj-
um þrótti - en svo hafí hann skyndi-
lega horfíð frá þeim. Merm túlka
upprisuna því yfírleitt í þessu Ijósi:
Með krossdauðanum var málstaður
Jesú ekki búinn að vera heldur kom
kraftur hans nú fyrst í Ijós. Menn
hallast því frekar að því að upprisan
og upprisuboðskapurinn sé túlkun á
lífí, starfí og boðskap Jesú í heild. “
EKKI ÆTLUM VIÐ okkur þá dul að
þykjast fróðari séra Gunnari um guð-
spjöllin. En hvernig sem við blöðum í
Biblíunni fáum við þó ekki séð að
þau geymi nokkurs konar „túlkun" á
„nýjum þrótti“ lærisveinanna. Þau
segja ósköp einfaldlega og alveg bók-
staflega frá því að Jesú hafi risið upp í
holdinu. Það er líka alveg augljóst af
öllum heimildum - bæði í Nýja testa-
mentinu sjálfu og öðrum ritum þar
sem sagt er frá upphafi hinna kristnu
söfhuða - að það sem gerði
gæfumuninn um að þessi nýja trú
festi rætur var algjör og fyrirvaralaus
trú hinna frumkristnu á að Jesú hefði
risið upp líkamlega. Ekki aðeins
„kraftur hans“.
Hvort sem sú upprisa var söguieg
staðreynd eður ei. Þessu trúðu menn
og huglæg túlkun á upprisunni sem
einhvers konar opinberun á krafti og
boðskap kom ekki til sögunnar fyrr
en löngu síðar.
Og hefði reyndar lengst af verið
talin hin argasta villutrú og menn
teknir af lífi fyrir minna.