Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Blaðsíða 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5000
SKAFTAHLÍÐ24 WSREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5505000
• Það kvað við nýjan tón á aðal-
fundi Samtaka ferðaþjónustunn-
^ ar sem haldin var á Hótel Sögu
fyrir nokkrum dögum. Á göngum
ræddu menn í undrun og ánægju
þær breytingar sem
orðið hafa á heim-
sóknum ferðamanna
hingað til lands síð-
ustu mánuði. Janú-
ar, febrúar og mars
hafa hingað til verið
dauðustu mánuðir
ársins og reyndar allt að því
steindauðir. Nú voru menn hins
vegar á því að þvílík örtröð ferða-
manna hefði verið síðustu mán-
uði að afþreyingarfyrirtæki í
ferðaþjónustu, hótel og bflaleigur
hefðu vart undan. Öðruvísi
mönnum áður brá í ferðaþjón-
. ***• ustunni og var samkeppni
Iceland Express og Icelandair
þakkað...
• Ákveðið hefur verið að slá
Pressukvöld Ríkissjónvarpsins af
en þátturinn hóf göngu sína í
haust og hefur ekki skilað því
áhorfi sem vonast
hafði verið eftir. í
Pressukvöldi sitja
áhrifamenn í
þjóðfélaginu fyrir
svörum frétta-
manna sem eru
fengnir að láni
utan úr bæ. Fyrsti
þátturinn var á dagskrá 15. októ-
ber og þá sat Matthías Halldórs-
son aðstoðarlandlæknir fyrir
svörum. Þegar síðasta skoðana-
könnun var gerð sat Alfreð Þor-
steinsson fyrir svörum og fylgd-
ust alltof fáir með...
Rokkar
fyrir Dorrit!
/
Forsetinn Kaupir rafmagnsgítar
Helgi Hjörvar með konu og barni Isjöunda himni með nýjan sima; getur nú notað
símaskrá, dagbók og alls kyns stillingar sem eru í GSM-símum.
„Ótrúlegt hvað margir senda mér
sjónlausum manni SMS!“ segir Helgi
Hjörvar alþingismaður meðal
annars í grein sem hann skrifar á
heimsíðu sína. Helgi hefur verið í
sjöunda himni að undanförnu vegna
þess að hann er nýbúinn að fá síma
sem talar. Munar þar miklu því Helgi
heyrir sem kunnugt er miklu betur
en hann sér. Segist Helgi vart hafa
verið viðmælandi síðustu daga
vegna þessa. Talandi GSM-sími sé að
breyta líFi hans svo um munar:
„Því miður talar hann ekki
^íslensku, þó það standi til bóta. En
'**nú get ég loksins farið að nota
símaskrá, dagbók og alls kyns
stillingar á símanum...Maður er
auðvitað svolítið eins og geimvera
úti á götu með sfma sem talar við
mann, en maður verður þá ekki
einmana á meðan,“ segir Helgi
Hjörvar á heimasíðu sinni. Og
heldur áfram: „Til að geta haft
talforrit í símanum þarf maður að
hafa myndavélarsíma, þannig að
blindir og sjónskertir þurfa
myndavélarsíma! Það kemur sér
auðvitað vel ef maður villist, þá tekur
maður bara mynd, sendir hana
heim, hringir svo þangað og spyr
Þórhildi: Sérðu nokkuð hvar ég er?“
„Þetta er eitt af toppmerkjun-
um,“ segir Kristján Grétarsson í
Hljóðfærahúsinu á Laugavegi sem
seldi forseta Islands rafmagnsgítar á
dögunum. Gítarinn sem Ólafur
Ragnar Grímsson keypti í Hljóð-
færahúsinu er af Ibanez-gerð, hinn
veglegasti gripur og löngu viður-
kenndur sem einn hinna bestu.
Steve Vai í Whitesnake notar Ibanez,
Joe Satriane líka og svo tveir gítar-
leikarar í hljómsveitinni Korn sem
væntanleg er hingað til lands í vor.
Þá á Þórður Árnason, gítarleikari
Stuðmanna, einn slíkan og notar
grimmt þegar í á að heyrast.
Kristján Grétarsson í Hljóðfæra-
húsinu veit sitthvað um gítara og
önnur hljóðfæri enda sonur Grétars
Örvarssonar sem verið hefur í
fremstu víglínu íslenskra poppara
um áratugaskeið:
„Forsetinn ætlaði upphaflega
ekki að kaupa svona dýran gítar en
endaði með því að taka mark á sér-
fræðingum okkar sem sýndu honum
fram á gæðin. Svona Ibanez-gítar
kostar um 60 þúsund krónur og við
fréttum af forsetanum í öðrum
hljóðfæraverslunum. Hann endaði
þó hjá okkur og fyrir það erum við
þakklátir og stoltir," segir Kristján í
Hljóðfærahúsinu.
Ekki er vitað hvað forseti íslands
ætlar að gera við rafmagnsgítarinn,
hvort hann ætlar að læra á hann
sjálfur eða gefa öðrum. Ekki er vitað
til þess að Ólafur Ragnar leiki á
hljóðfæri né sé söngmaður en yndi
hefur hann af allri tónlist. Til að
mynda lágu leiðir hans og Dorritar
Moussaieff saman með afdrifaríkum
og happasælum hætti á tónleikum í
London.
Þá vekur jafnframt athygli að
forsetinn keypti ekki magnara með
rafmagnsgítarnum þannig að hann
hlýtur að eiga einn slíkan.
Kristján (Hljóðfærahús-
inu meö Ibanez-gítarinn
Joe Satriane, Steve Vai og
Þórður Árnason leika allir
á svona gitar.
. . -
MANUDAGUR
IILMÆÐII,
GODAPYLSUR
TIL GLEÐI