Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 13
íslenskt raf-
magn til
Skotlands?
Skoska blaðið The
Skotsman segir frá því að
verðandi forsætisráðherra
fslands, Halldór
Ásgrímsson, vilji
skoða þann
möguleika að
flytja raf-
magn frá
Islandi til
Skotlands
í gegn-
um sæ-
streng.
Vitnað er í
Halldór þar sem hann segir:
„Tæknilega sé er þetta
mögulegt. Það myndi kosta
sitt en ég trúi því að ísland
muni tengjast Evrópu með
þessum hætti einhvern dag-
inn." Sæstrengur sem þessi
þyrfti að vera meira en 500
sjómflur að lengd og kostn-
aður við slflcar framkvæmdir
myndu nema um 500 milij-
ónum punda, að því er blað-
ið segir.
Sendiráði
Breta á ís-
landi lokað?
Utanríkisráðuneyti
Bretlands vinnur nó að
nýjum tiflögum þar sem
gert er ráð fyrir mikilli
fækkun sendiráða Bret-
lands í heiminum. Ætíun-
in er að draga úr starfsemi
í að minnsta kosti 40
löndum og jafnvel loka
nokkrum sendiráðum.
Ekki hefur verið gefið út
hvaða lönd séu meðal
þessara 40 en samkvæmt
heimUdum fréttastofu
Telegraph eru ísland og
Nýja-Sjáland í þeim hópi.
Óku vélsleða
utia
Vélsleðaslys varð innst í
Ólafsfirði þegar feðgar óku
sleða sínum ofan í á um
miðjan laugardaginn. Ann-
ar mannanna brotnaði Ula
á fæti en hinn slapp með
skrámur að sögn lögregl-
unnar á Ólafsfirði. Menn-
irnir voru einir á ferð þegar
slysið varð en annar
vélsleðamaður kom að
þeim skömmu eftir óhapp-
ið og gat látið lögreglu vita.
Ró og spekt í
ríkinu - að
mestu
Að sögn lögreglunnar
voru landsmenn með ró-
legasta móti um helgina. Á
Selfossi var einn settur í
svartholið vegna ölvunar og
óspekta, lögreglan á
Blönduósi var köUuð út að-
faranótt sunnudags þegar
bfll fór út af veginum
rétt sunnan við
Hvammstanga,
ekki urðu alvarleg
slys á mönnum.
Slökkviliðið í
Reykjavík var tvisvar kallað
út þó ekki vegna elda held-
ur vatnsleka. Töluvert tjón
varð á bflaverkstæði í
Kópavogi þegar háþrýsti-
slanga fór úr sambandi og
vatn gusaðist úr henni alla
aðfaranótt laugardags.
Bóndinn í Lukku í Vestmannaeyjum sparar gaddavírinn í girðingar sínar sem
veldur því að fé festist ítrekað í þeim. Raunar á að vera net samkvæmt lögum en
eftir því er ekki farið. Kindurnar viti sínu fjær af hræðslu þegar þær voru loks
klipptar úr girðingunni.
Kindur pikkfastar
í nlöglegri girðingu
„Við vorum búin að sjá kindurnar þarna í að minnsta kosti tvo
daga þegar við komum upp eftir og sáum að þær voru fastar,“
segir Sigurður Páll Ásmundsson í Vestmannaeyjum um kindur
sem héngu fastar í gaddavír í að minnsta kosti tvo daga.
Þeim líður hreint ekki vel Sjá má á myndinni hvernig gaddavírinn er fastur í ull þeirra og
þær geta sig ekki hreyft. Væntanlega bæði þyrstar, þjáðar og svangar.
vera með búfénað. Við úthlutum þá
leyfum og setjum ákveðin skilyrði og
þar á meðai hvernig girðingar eigi að
vera. Lengi vel hafa þessi mál verið í
ólestri hér,“ segir Frosti.
Gunnar Árnason bóndi í Lukku
vildi ekki tjá sig við blaðið þegar eft-
ir því var leitað en fannst furðulegt
að hann skildi ekki látinn vita.
Gunnar Páll viðurkennir að hafa
ekki látið bóndann vita í þetta sinn
enda til lítils því hann bregðist alltaf
illa við þegar þetta er rætt við hann.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við
skerum fé úr girðingunum hans,“
segir Sigurður Páll.
farið upp eftir og komum við þá að
kindunum viti sínu fjær af hræðslu.
Það var mjög erfltt að skera þær
lausar því þær voru svo hræddar,"
segir Sigurður Páll og bendir á að
þær hafi verið búnar að spæna jörð-
ina upp og verið í drullusvaði. Það
bendi til að þær hafi verið fastar í
einhvern tíma. „Girðingin er ekki
nægilega þétt en það vantar að
minnsta kosti einn gaddavírsstreng í
hana auk þess sem strengirnir eru
ekki nægilega strekktir. Þá er ekki
leyfilegt að hafa gaddavír, heldur á
að vera net," segir hann.
Frosti Gíslason framkvæmda-
stjóri umhverfis- og framkvæmda-
sviðs hjá Vestmannaeyjabæ neitar
því að bóndanum Gunnari Árnasyni
á Lukku hafi verið gefin undanþága
til að vera ekki með net í girðing-
unni. „Við höfum verið að koma
skikki á búfjárhald hér í Vestmanna-
eyjum og nú 31. mars, rennur út
frestur til að sækja um leyfi til að
Kindurnar eru eign bóndans í
Lukku sem er ekki fjarri flugvellin-
um í Vestmannaeyjum. Handan við
girðingarnar er Landgræðslan með
uppgræðslu og því er fylgst vel með
því hvort kindur hafi komist yfir
girðinguna og’ inn á svæði Land-
græðslunnar. Sigurður Páll segir að
frá því deginum áður hafi þeir séð til
kindanna þar sem þær hreyfðust
ekki úr stað. „Daginn eftir var því
Kindurnar fastar Hér má sjá þær fastar i
girðingunni. Skömmu síðar er girðingin
klippt og kimdurnar látnar lausar.
Skólastjórnendur gagnrýna auglýsingamennsku
Sótt að skólakrökkum
„Það er litið á grunnskólanem-
endur sem markhóp og okkur er
gert að dreifa auglýsingunum," seg-
ir Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri
Grunnskólans á Isafirði. Skarphéð-
inn hefur skrifað pistil á heimasíðu
skólans þar sem hann gagnrýnir
auglýsingar í skólum. Upp úr sauð
hjá honum í vetur þegar Skólavefur-
inn ehf sendi, í annað sinn, auglýs-
ingaspjöld og óskaði þess að þeim
yrði dreift til nemenda. Þar var
grunnskólanemendum sem þreyta
áttu samræmd próf í 4., 7. og 10.
bekk bent á að á vef fyrirtækisins
væri unnt að taka gagnvirk æfinga-
próf gegn því að gerast áskrifandi.
Skarphéðinn hefur í tvígang skrifað
fyrirtækinu bréf þar sem hann mót-
mælir þessum sendingum harðlega.
Annað dæmi sem Skarphéðinn
bendir á er bréf sem barst frá
íþrótta- og Ólympíusambandi ís-
lands nýlega þar sem auglýst er
teiknimyndasamkeppni fyrir börn
og „þar er VISA-merkið það fyrsta
sem blasir við börnunum."
Soffía Pálsdóttir, æskulýðsfull-
trúi ÍTR segir að félagsmiðstöðvarn-
ar á höfuðborgarsvæðinu finni
vissulega fyrir ásókn fyrirtækja sem
vilja auglýsa sig. „Við vegum og
metum hvert mál fyrir sig og förum
eftir uppeldislegum gildum" segir
Soffía. I félagsmiðstöðvum hanga
oft uppi auglýsingaspjöld, meðal
annars frá íþróttafélögum um starf-
semina og skólum um skemmtanir
en Soffi'a segir að það sé í lagi „en
það yrði aldrei leyft að auglýsa t.d.
fatnað eða bjór enda er hópurinn
viðkvæmur fyrir slíku áreiti".
Hellbrlgðis- og trygglngamálaráðuneytlð er flutt að
vegmúla 3 í Reykjavík og tekur til starfa á nýjum
stað á morgun, þriðjudaginn 30. mars.
Afgreiðslutími er alla virka daga
frá 8:30 til kl. 16:00
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Vegmúla 3-150 Reykjavík
Sími 545 8700 - Bréfasími 551 9165
Póstfang: postur@htr.stjr.is