Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Blaðsíða 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 1 9
Chelsea heldur áfram aö setja pressu á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Chelsea tók Wolves í bakaríið á laugardaginn en getur þó þakkaö það einum
manni, Jimmy Floyd Hasselbaink, frekar en öðrum.
Hasselbaink með þrjú
á afmælisdaginn
ÚRVALSDEILD
HETJAN...
Chelsea gefur ekkert eftir í toppbaráttu ensku úrvalsdeildar-
innar og svo virðist sem liðið ætli að veita Arsenal keppni fram í
síðustu umferð. Liðið var reyndar ekki sannfærandi gegn Wolves
á laugardaginn en sýndi styrk sinn á lokasprettinum skoraði
fjögur mörk og vann leikinn, 5-2.
eru eftir af tímabilinu
úrvalsdeildinni.
ensku
Leikmenn Chelsea voru í
vandræðum fram eftir leik gegn
Úlfunum á laugardaginn og þegar
varnarmaðurinn Jody Craddock
kom Wolves yfir á 57. mínútu virtist
sem allur máttur væri úr
leikmönnum Chelsea. Þá kallaði
Claudio Ranieri hins vegar til
sögunnar hollenska framherjann
Jimmy Floyd Hasselbaink. Hann
kom inn á sem varamaður þegar
klukkutfmi var liðinn af leiknum og
sú skipting átti eftir að borga sig.
Frank Lampard jafnaði metin tíu
mínútum síðar og Hasselbaink, sem
hélt upp á 32ja ára afmælið sitt á
laugardaginn, gerði síðan út um
leikinn með þremur mörkum á
síðustu fjórtán mínútum leiksins.
Þessi sigur gerir það að verkum
að Chelsea er enn á hælunum á
Arsenal og heldur öðru sætinu í
greipum sér en það breytti því þó
ekki að leikmenn Chelsea sem og
Claudio Ranieri, stjóri Chelsea,
vildu lítið tjá sig við fjölmiðla eftir
leikinn.
Gefumst
aldrei upp v
Hassel-
baink ræddi
lftillega við Sky
Sports-sjónvarps
stöðina eftir leikinn.
„Við erum ánægðir
með að hafa náð þremur
stigum úr þessum leik og
nú getum við setið rólegir
og fylgst með Arsenal spila
gegn Manchester United á
morgun. Við vitum að Arsenal er
með sterkt lið og það eina sem við
getum gert er að vinna okkar leiki og
vona að þeir misstígi sig. Það er
mikil samstaða meðal leikmanna
og við ætlum okkur ekki að
gefast upp íyrr en í fulla
hnefana," sagði Hassel-
baink.
Ranieri, sem hefur
verið í fullu starfi að
undanförnu við að
verja stöðu sína og
neita því að hann
sé í viðræðum við
önnur lið, sendi
aðeins frá sér stutta
yfirlýsingu eftir
leikinn.
„Ég er alveg
örugglega ekld að
tala við önnur félög í
dag. í dag erum við
sex stigum á eftir
Arsenal og enn í
meistaradeildinni.
Það eina sem ég
einbeiti mér að er að
gera mitt besta fyrir
Chelsea."
Hættum að
spila
Dave
Jones, knatt
spyrnustjóri Wolves, var ósáttur
eftir leikinn og sagði að sínir menn
hefðu kastað sigrinum frá sér með
óskynsömum leik í síðari hálfleik.
„Við réðum ferðinni fyrstu sjötíu
mínúturnar en síðan hættum við.
Það þýðir ekki á móti liði eins og
Chelsea. Við hættum að spila agað,
fórum út úr stöðunum til að reyna
að skora þriðja markið sem ég held
að hefði komið ef við hefðum beðið
þolinmóðir," sagði Dave Jones en
hans menn
eru í neðsta
| sæti
deildar-
innar
þegar að-
eins átta
umferðir
Forssell fær ekki nóg
Finnski framherjinn Mikael
Forssell hefur heldur betur slegið-í
gegn hjá Birmingham síðan hann
kom til félagsins frá Chelsea. Hann
skoraði tvö mörk á laugardaginn
þegar Birmingham tók Leeds í
bakaríið, 4-1. Bryan Hughes skoraði
einnig tvö mörk fyrir Birmingham
og hefði getað skorað þrennu ef
hann hefði fengið að taka víta-
spyrnuna sem Forssell skoraði
seinna mark sitt úr. Forssell var
svekktur fyrir hönd Hughes en sagði
að Steve Bruce, knattspyrnustjóri
liðsins, hefði skipað honum að taka
spyrnuna. Forssell var valinn maður
leiksins og gaf Hughes kampavíns-
flöskuna sem hann fékk að launum í
sárabætur.
„Það hefði verið gaman fyrir
Hughes að ná þrennunni en ég fékk
skipun um að taka vítið," sagði
Forssell.
Steve Bruce varði ákvörðun sína
eftir leikinn og sagði að hann vildi
frekar vinna 4-1 en 3-1. „Ef Hughes
hefði tekið vítið, brennt af og þeir
skorað tvö mörk og jafnað
leikinn þá hefði ég litið út eins
og h'fl og verið tekinn af lífi,"
sagði Bruce.
Blackburn í bullinu
Blackburn náði ekki að
fylgja eftir góðum útisigri á
Aston Villa um síðustu helgi á
laugardaginn. Lærisveinar
Graemes Souness tóku á móti
Portsmouth og biðu lægri hlut,
2-1. Nígeríski framherjinn Ayieg-
beni Yakubu skoraði sigurmark
Portsmouth átta mínútum fyrir
leikslok en markið kom Portsmouth
úr fallsæti í fyrsta sinn í langan tíma.
Stuðningsmenn Blackburn bauluðu
á sína menn að leik loknum og
Souness sagðist skilja þá vel.
„Ég skil viðbrögð stuðnings-
manna okkar. Við höfum ekki séð
þeim fyrir neinni skemmtun í vetur.
Þetta var mikilvægur leikur fyrir
okkur og við brugðumst stuðnings-
mönnum okkar," sagði Souness.
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Portsmouth, var heldur
hressari að leik loknum enda var
þetta annar sigur hans manna í röð.
„Þetta er búin að vera frábær
vika fyrir okkur. Sex stig í höfn og ég
gæti bara ekki beðið um meira. Við
megum hins vegar ekki gleyma
okkur því að það er hörð barátta
framundan um að halda sætinu í
úrvalsdeildinni."
Villa enn í Evrópubaráttu
Aston Villa skaust aftur í bar-
áttuna um fjórða sætið í deildinni
með því að vinna mikilvægan sigur
á Charlton á útivelli. Darius Vassell
var í fínu formi fyrir Aston Villa
með Sven-Göran Eriksson,
landsliðsþjálfara Englands, á
áhorfendapöllunum og
skoraði fyrra mark
Aston Villa. Claus
Jensen gat jafnað metin
fyrir Charlton á
lokamínútu leiksins en
„EfHughes hefði tekið
vítið, brennt því afog
þeirskorað tvö mörk
og jafnað leikinn þá
hefði ég litið út eins
og fífl og verið tekinn
aflífi."
skaut yfir mark Aston Villa úr
vítaspyrnu. Nokkrar vangaveltur
hafa verið um að nýir eigendur
muni taka við Aston Villa á
næstunni en David O’Leary, knatt-
spyrnustjóri liðsins, sagðist ekki
nenna að velta sér upp úr
mögulegum eigendaskiptum.
„Það eina sem ég get gert er að
standa mig sem best. Ég hugsa ekki
út í það hver á félagið. Síðan ég kom
hingað hafa margir verið orðaðir við
félagið sem hugsanlegir kaupendur
og ég væri orðinn bilaður ef ég
myndi velta mér upp úr því."
Alan Curbishley, knattspyrnu-
stjóri Charlton, var ósáttur eftir
leikinn og sagði að menn sínir væri
vonsviknir.
„Við hefðum svo sannarlega
getað notað eitt stig úr þessum leik
sem hefði þýtt að Aston Villa væri
enn þremur stigum á eftir okkur,"
sagði Cubishley sem var meðal
annars án Hermanns Hreiðarssonar
sem er meiddur á læri.
oskar@dv.is
Aiyegbeni Yakubu
AiyegbeniYakubu, framherji
Portsmouth, hefur heldur betur
reynst sínum dýrmætur í
undanförnum leikjum. Yakubu
skoraði sigurmark liðsins gegn
Southampton fyrir rúmri viku
og á laugardaginn var hann
aftur réttur maður á réttum
stað. Hann skoraði þá sigur-
mark Portsmouth gegn Black-
burn þegar átta mínútur voru
til leiksloka, mark sem gerði
það að verkum að Portsmouth
er komið úr fallsæti í fyrsta sinn
í langan tíma.
URVALSDEILD
...SKÚRKURINN
ClausJensen
Claus Jensen hinn danski
miðjumaður Charlton hefur
hingað tii verið meðal traust-
ustu leikmanna liðsins. Honum
brást hins vegar illilega boga-
listin á iaugardaginn í leiknum
gegn Aston Villa. Jensen gat
tryggt sínum mönnum jafntefli
með þvf að skora úr vítaspyrnu
á síðustu mínútu en skaut
himinhátt yfir. Þar með missti
Charlton af einu stigi en auk
þess komst Aston Villa upp
fyrir Charlton með betra
markahlutfall.
Bestu ummæli helgarinnar
„Ég sagði við hann eftir leikinn að ég
yrði að fá Sven til að horfa á fleiri leiki
hjá okkur því hann spilaði í dag eins og
hann spilar fyrir England og ég gæti
alveg þegið það oftar," sagði David
O'Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa,
eftir að Darius Vassell hafði átt stórleik
fyrir liðið gegn Charlton með Sven-
Göran Eriksson, landsliðsþjálfara
Englendinga, á áhorfendapöllunum.
Eriksson valdi Vassell í hópinn gegn
Svíum eftir leikinn.
Lið umferdarinnar 27.-28. mors 2004
Frank Lampard
Chelsea
Bryan Hughes
Bimingham
RonnyJohnsen
Aston Villa
KoloToure
Arsenal
*
Anttí Niemi
Southampton
Aleksej Smc
Portsmouth
Joseph Yobo
Everton
'
WmM