Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 9
Fjöldamorð-
ingijátar
Tæplega fertugur maður
í Brasilíu hefur játað að
hafa myrt í það minnsta 16
drengi frá árinu 1991. Mað-
urinn sem handtekinn var í
tengslum við raðmorð í
desember á síðasta ári ját-
aði morðin á sig eftir að
lögreglan fann lík tveggja
drengja grafin undir gólfi á
heimili hans. Lögreglan
segir jafnframt að maður-
inn hafi í raun ekki tölu yfir
hversu marga hann hefur
myrt á ferli sínum en segir
töluna geta farið yfir 30.
Tveir piltar
drukknuðu
Lík tveggja sjö ára gam-
alla drengja fundust í
ísilagðri tjörn í 0stfold í
Noregi í gær. Piltarnir
höfðu verið á göngu ásamt
foreldrum sínum í gær-
morgun en orðið viðskila
við þá. Björgunarsveitum
var gert viðvart og fundu
kafararnir lík piltanna
tveggja við vök á tjöm.
Ekki er vitað af hverju þeir
yfirgáfu foreldra sína eða
hvernig slysið átti sér stað.
Ungabarn varð
undir lest
Það þykir kraftaverki lík-
ast að ungabarn skildi lifa
af þá miklu raun að verða
undir járnbrautarlest. Fjög-
urra mánaða stúlka var
skilin eftir á milli járnbraut-
arteina á leiðinni milli
Vry- burg og War-
renton í Suður-Afríku
í gær. Lestarstjóri sá
lítinn böggul á milli
teinanna þegar hann
var á leiðinni til War-
renton. Hann hugsaði ekki
meira um það en á baka-
leiðinni sá hann böggulinn
aftur og svo virtist sem lítill
handleggur teygði sig upp
og veifaði. Honum tókst að
stöðva lestina og bjarga
stúlkunni. Móðir stúlkunn-
ar hefur verið ákærð fyrir
morðtilraun.
Ráðist á
helming lög-
regluma nna
Rúmlega helmingur lög-
reglumanna segist hafa orð-
ið fyrir líkamsmeiðingum í
starfi samkvæmt
könnun sem
gerð var af
Landsambandi
lögreglumanna.
Sambandið hef-
ur áhyggjur af
þessari þróun og
telur brýnt að
draga úr árásum
á lögreglumenn
og málum þar sem lög-
reglumenn eru kærðir af al-
menningi fyrir brot í starfi.
Á hverju ári eru rúmlega 30
lögreglumenn kærðir og
hefur Landsambandið
fundað með ríkissaksókn-
ara vegna málsins.
Fyrsta herdeild Björns Bjarnasonar að fæðast. Liðssveit íslendinga fær vopn og
hernaðarlega titla. Fulltrúar í utanríkismáladeild Alþingis koma af fjöllum.
fslendingamir 60, sem taka við stjórn á flugvellinum í Kabúl í
Afganistan 1. júní nk. til eins árs, verða allir vopnaðir og undir
hernaðarlegri yfirstjórn NATO. Þeir fá allir hernaðarlega titla og
mynda þannig í reynd íslenska hersveit. Um leið blasir við að
þeir verða hernaðarleg skotmörk ef til átaka kemur. Þessi mál
hafa ekki verið rædd í utanríkismálanefnd Alþingis.
íslendingamir 60 fara í þjálfún til
Noregs en síðan til Kabúl í ijómm
fimmtán manna hópum, þar sem þeir
taka að sér stjómunarstörf, flugum-
ferðarstjóm, slökkviliðsstörf,
hlaðmannastörf og ýmislegt fleira. Má
búast við því að þar verði allnokkrir ís-
lendingar sem að undanförnu hafa
tekið þátt í umsjón íslendinga með
Pristina-flugvellinum í Kósóvó. ís-
lenskir sérsveitarmenn hafa tekið þátt
í friðargæslustörfum þar, vérið vopn-
aðir við störf sín og haft fullt lögreglu-
vald. Yfirmaður hópsins í Kabúl verður
Hallgrímur N. Sigurðsson, borgaraleg-
Steingrímur J.
Sigfússon Fullt til-
efni til að fara betur
yfir málin i utanrik-
ismálanefnd þings-
ins.
Guðmundur Árni
Stefánsson Lýst
ekki á blikuna ef
það erveriðað
lauma islenskum
her inn bakdyra-
megin.
ur varaframkvæmdastjóri hjá Flug-
málastjóm íslands, en hann hefur
vegna starfa sinna við Pristina-flugvöll
í Kósóvó og formsins vegna fengið
hernaðarlegan titil sem colonel eða
ofursti.
Fyrst lOen nú60
Aðgreining borgaralegra og hem-
aðarlegra starfa við ffiðargæslu Islend-
inga í Kósóvó hefur verið nokkur og
vopnaburður takmarkaður, en öðm
máli gegnir um gang máfa í Kabúl, þar
sem allir Islendingamir verða vopnað-
ir. Þá er ljóst að umfang verkefna ís-
lands hefur vaxið
frá því sem upp-
haflega var áform-
að, því í október sl.
kynnti utanríkis-
ráðuneytið að rík-
isstjómin hefði
boðið NATO að
senda 10 manns til
Kabúl.
Ekki náðist í
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra í gær og Am-
ór Sigurjónsson
sendifulltrúi vildi
Björn Bjarnason
Plön hans um fjöl-
menna islenska
vopnaða sérsveit
þróast áfram i
Kabúl.
ekki ræða málið við DV. Það er hins
vegar greinilegt að fulltrúar stjómar-
andstöðunnar í utanríkismálanefnd
Alþingis koma af fjöllum aðspurðir um
vopnaburð fslendinga í Kabúl og virð-
ist framkvæmd þessara mála ekki hafa
verið rædd í nefndinni. „Ef þetta er rétt
þá er fullt tilefni til að fara betur yfir
málin í utanríkismálanefnd þingsins.
Þar hefúr þetta ekki verið rætt að frá-
töldu því að áformin vom kynnt laus-
lega fýrir þó nokkm síðan og tók ég því
þannig að þátttaka okkar yrði ein-
göngu borgaraleg,'1 segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna
og segir augljóst að draga þurfi mörkin
þannig að Islendingar séu ekki undir
hermennsku seldir. „Það hlýtur að
vera hægt að nýta krafta okkar hæfa
fólks í annað en það sem telst til her-
mennsku. Það em næg verkefni í borg-
aralegri ffiðargæslu sem við getum
tekið að okkur. Þetta em upplýsingar
sem lágu ekki fyrir þegar málið var
kynnt í nefndinni."
Vopnaburður ekki
kynntur
Guðmundur Ámi Stef-
ánsson, einn fulltrúa
Samfylkingarinnar í
nefndinni, tekur undir
að málið hafi aðeins
lauslega verið reifað í
utanríkismálanefnd
þingsins fyrir
nokkru, sem
áform. „Ef það er
rétt að 60 íslend-
ingar fari til Kabúl og verði þar undir
vopnum þá finnst mér það ekki vera í
samræmi við það sem kynnt var. Við í
Samfylkingunni höfum verið jákvæð í
garð þátttöku okkar í friðargæslu en
höfum lagt áherslu á aðskilnað borg-
aralegra og hemaðarlegra starfa. Með
öðmm orðum að skilið sé á milli borg-
aralegrar og vopnaðrar gæslu. Ég held
að við eigum fýrst og fremst að vera í
störfum þar sem við kunnum til verka,
en ekki í hernaðarbrölti. Og ekki lýst
mér á blikuna ef það er
verið að lauma
íslenskum her
inn bak-
dyrameg-
in,“ segir
Guðmund-
ur Árni.
Colonel Halli eða Hallgrimur
N. Sigurðsson ofursti Vara-
framkvæmdastjórinn hjá Flug-
málastjórn er orðinn liðssveitar-
foringi og ber vopn.
Islensk ljóð í Kína
„Kínversk skáld standa okkur nær"
„Umfjöllunarefni og
húmor em eins," segir Linda
Vilhjálmsdóttir skáld, ný-
komin úr upplestrarferð til
borgarinnar Kunming
Kína. „Þar starfrækir sænsk
kona norræna menningar-
miðstöð í gamalli verk-
smiðju með aðstoð borgar-
yfirvalda og hún fékk þá
hugmynd að halda ljóðahátíð; leiða
saman átta kínversk skáld og átta
norræn. Vegna tengsla minna við
sænskt skáld og menningarfrömuð
var mér boðið með,“ segir Linda, „og
við lásum ljóð á hverju kvöldi í viku.“
Linda segir enskum og kínverskum
þýðingum hafa verið brugðið á tjöld
meðan á upplestrinum stóð,
„en þessi menningarmið-
stöð tekur líka á móti
norrænum lýðháskólastúd-
entum til langdvalar í eins-
konar nemendaskiptum og
þau reyndust ágætustu túlk-
ar. Einnig sækja kínverskir
háskólastúdentar miðstöð-
ina mikið og þeir gátu ýmsu
snarað fyrir okkur. Kína er einhver
allt annar heimur, sem ég bjóst ekki
við að kynnast," segir Linda Vil-
hjálmsdóttir að lokum, „ég er stein-
hissa á kínverskri nútímaljóðagerð,
hún minnir um svo margt á okkar, ég
hélt satt að segja að kínversk skáld
væru hefðbundnari."
Linda
Vilhjálmsdóttir
Hjálparstofnanir fá mikið af ónýtum mat
Kvarta yfir gjafamat
Sigrún Ármanns
Reynisdóttir,
formaður Samtaka
gegn fátækt, segir það
algengt að henni
berist kvartanir frá
fólki sem fengið hefur
útrunnin og skemmd
matvæli gefins hjá
hjálparstofnunum.
„Ég hef hitt fólk sem
hefur fengið skyndi-
rétti með ýldulykt, fúlt
brauð og þrátt smjör
frá hjálparstofnun-
um,“ segir Sigrún.
Lára Eiríksdóttir úr
Formaður fátækra
Sigrún Ármanns
Reynisdóttir fær fjölda
kvartana vegna þess að
hjálparstofnanir gefa
fátækum úldinn mat. Flún
segir fátækt hafa stóraukist
síðustu fimm árin.
Breiðholtinu lýsti því í DV
að húr; hefði fengið
amerískar kartöfluskífur
og danskan pastarétt ffá
Mæðrastyrksnefnd, en
síðustu söludagar
matvælanna voru árið
2002 og 2001. „Fólkáekki
að þurfa að fá skemmdan
mat sem aðrir eru að
henda þó það sé fátækt.
Hún á heiður skilinn að
koma fram, því fólk er
hrætt við að ganga fram
með svona nokkuð,“ segir
Sigrún.
★
★
★
*
★
'k
★
★
Rafmagnsgítar
magnari poki, ól- snúra -stillir
og auka strengjasett.
c««
Rafmagnsgítarsett
29.900,- stgr.
Söngkerfí Trommusett frá
frá 59.900,- 49.900,- stgr.
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
★
★
★
★
★
'fc
★