Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Page 3
DV Fyrst og fremst
MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 3
ustu aldar var rokksprengjan mikla sprungin
og allir skúrar um allt land fullir af hljómsveitum í ham. Ein
sveit hét Tappi tíkarrass og komst hún í fremstu röð unglinga-
banda, með Björk Guðmundsdóttur og Eyþór Arnalds í farar-
broddi. Frumsamin tónlist sveitarinnar var létt og flippuð og
frammistaða liljómsveitarinnar í kvikmyndinni Rokk í Reykja-
vík var rómuð. Meðlimir sveitarinnar gáfu skýringu á nafni
sveitarinnar, „Tappi er holrúm á milli tveggja vídda. Við spilum
handan." Hljómsveit-
in hætti formlega störfum 20. desem-
ber árið 1983. Guðmundur Gunnars-
son, trommari í Tappa tíkarrassi, er nú
veitingamaður á Humarhúsinu í Reykja-
Tappi er holrúm
milli tveggja vídda
tíkarrass Örn Nielsen rótari, Eyjótfur Jóhannsson gitarleikari, Guðmundur Gunnarsson trommari,
Jakob Magnússon bassaieikari, Björk Guðmundsdóttir söngkona og Garðar Runólfsson hljóðmaður.
Spurning dagsins
Hvað finnst þér um atkvæðagreiðslu
öryggisráðsins um morðið á Yassin?
„Bandaríkjastjórn, hin sjálfskipaða lögregla
alheimsins með ofsatrúarmanninn miðl-
ungsgreinda í forsæti, hefur að undanförnu
ítrekað orðið uppvís að svo alvarlegum
dómgreindar- og siðferðisbresti á vettvangi
alþjóðamála að öllu sæmilega gerðu fólki
hlýtur að ofbjóða. Allt með vitund og sam-
þykki„hinna staðföstu" (slendinga. I fyrsta
sinn á ævinni segi ég nú: Herinn burt!"
Jakob Frímann Magnússon
varaþingmaður.
„Fordæmingin
hefði átt að ná
yfir hryðjuverk
Hamas-sam-
takanna líka,
án þess að ég
ætli að mæla
morðinu á Ahmed Yassin bót."
Sveinn Andri Sveinsson hrl.
„Þetta segir manni allt um
heimsvaldastefnu Bandaríkja-
manna og hverjir ráða rikjum í
ísrael. Heimsvaldastefnan er
ekkert annað
en hryðju-
verkastefna.
Gömlu komm-
arnir höfðu rétt
fyrir sér um
heimsvalda-
stefnu ríkja
eins og Bandaríkjanna. Þetta er
móðgun við almenning i Israel.
Þarna er gefið skotleyfi á palest-
ínsku þjóðina."
Hlín Agnarsdóttir.
„Þetta kom
mérekkiá
óvart og stað-
festir óbilandi
stuðning Bush
við stjórn Shar-
ons. Um leið
afhjúpar þetta hið algjöra skiln-
ingsleysi stjórnvalda í Was-
hington á afleiðingum morðsins
á Yassin; áhrifin sem morðið hef-
uríísraei, Paiestínu og víðar."
Þórunn Sveinbjarnardóttir
stjórnmálafræðingur.
„Mér finnst
mjög erfitt að
skilja, hvernig
hægterað
neita að for-
dæma morð á
manneskju og
finnstþessi
utanríkisstefna Bandaríkjamanna
komin ansi langt frá öllu venju-
legu gildismati."
Eva María Jónsdóttir dag-
skrárgerðarkona.
S.l.fimmtudag beittu Bandaríkjamenn neitunarvaldi gegn tillögu
um að fordæma morðið á Yassin, leiðtoga Hamas.
Messalína
Nafn hennar er
nánast samheiti yfir
mjög svo vergjarna
konu, einkum í
hárri stöðu.
Hún var þriðja
kona Kládíusar
keisara í Róm sem
ríkti 41-58 e.Kr.
Jafnvel meðal
hinna mjög svo
frjálslyndu Róm-
verja á fyrstu öld er
hún alræmd fyrir
lauslæti
og orðið
„fram-
hjá-
hald“ nær engan
veginn yfir frarn-
ferði hennar.
Meðal annars er
hún sögð hafa
háð keppni við
þrautreyndustu vændiskonu Róm-
ar um hvor gæti gagnast fleiri körl-
Að vera ósammála þremur
fjórðu almennings er fyrsta
skilyrði þess að teljast
andlega heill.
Oscar Wilde.
um. Lauk keppn-
inni með því að
vændiskonan
staulaðist út, öll
lurkum lamin, og
stundi að ýmsir
líkamspartar keis-
araynjunnar hlytu
að vera úr hertu
leðri. En Messa-
lína hló og heimt-
aði annan. Sumir
telja að vísu að eft-
ir á að hafi ögn
meira verið gert úr
kynsvalli Messa-
línu en efni stóðu
til og óvinir hennar
rægt hana óspar-
lega en hitt er þó
ljóst að á endanum
gekk hún of langt,
þegar hún gekk árið
48 í einhvers konar
hjónaband með
nýjasta friðli sínum. Nánasti ráð-
gjafi Kládíusar, Narcissus, kjaftaði
frá og gerði keisaranum ljóst að
þetta gengi ekki. Kládíus lét þá
myrða Messalínu en ekki með
glöðu geði því hann mun hafa ver-
ið firna skotinn í henni.
Leikstjorinn
rédikarinn
'Kjartan Ragnarsson leikari, leikstjóri og
leikritahöfundur er stóri bróðir Guðmundar
Arnar Ragnarssonar prests sem fyrir nokkrum
árum kom sér út úr húsi hjá þjóðkirkjunni
vegna óþarflega skeleggra útlistana sinna á vél-
urn Lúsífers í samfélaginu. Hann prédikar
þessa dagana á sjónvarpsstöðinni Omega.
_____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________I
Glæsilegt páskatilboð - Til afgreiðslu af lager
120 cm innrétting 90 cm innrétting 160 cm innrétting
5 skápar, höldur, Ijósakappi meö 3 3 skápar, höldur, Ijósakappi með 4 skápar, höldur, Ijósakappi með 3
halogenljósum, borðplata og spegill 3 halogenljósum, vaskborðplata halogenljósum, borðplata og spegill
og spegill
Botnverðkr.58.700 | Botnuerð kr.67.600 | Botnverðkr.78.300
nettoline i M0 B0RGAR SIG 00 UERSLA1F0ÍF00M
tlppstilllnyamar í auglýsinguntti eru aðeíns dæmi inrf hjá okknr færð Þú innréttínguna sniðna að Dínum ðskum, og nú á frábæru páskatfiboði. ^Friform Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 5621500 ■ Fax: 5442060