Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fréttir 0V
Skothríð í
bakaraofni
Þrítug kon:
varð fyrir all-
óvenjulegri
skotárás á
heimili sínu á
dögunum,
þegar hún var hita fiskrétt í
bakaraofni sínu. Þegar Per-
ez ætlaði að taka fiskinn út
úr ofninum mætti henni
„skothríð" úr ofninum.
Kom í ljós að vinur Perez
hafði falið skammbyssu í
ofninum nokkrum dögum
áður. Þegar ofninn hitnaði
þá hitnaði byssan líka og
skotin hlupu úr henni.
Byssukúla hæfði Perez í
lærið og var hún flutt á
sjúkrahús. Hún er á bata-
vegi og ædar lögregla ekki
að aðhafast í málinu, það
er skráð sem slys.
Steingrímur
heiðraði Þjóð-
veldisflokkinn
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfing-
arinnar-græns framboðs,
var sérstakur heiðursgestur
á landsfundí Þjóðveldis-
flokksins í Færeyjum nú
um helgina. Þar flutti
Steingrímur hátíðar-
ræðu þar sem hann
fjallaði m.a. um
sj álfsstæðisb aráttu
Færeyinga. Sagði
Steingrímur að hann
styddi bræður sína í
Þjóðveldisflokknum í
sjálfstæðisbaráttu þeirra og
að hann vonaðist til þess
að í formennskutíð íslands
í Norðurlandaráði myndi
eitthvað verða gert í þeirra
málum. Þá nýtti hann tæki-
færið og gagnrýndi stríðið í
írak og hvernig að því hefði
verið staðið.
Heilbrigðis-
ráðuneytið í
Vegmúla
Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið flutti
um helgina í nýtt hús-
næðiíVegmúla3í
Reykjavík en starfsemi
ráðuneytisins hefur um
langt árabil verið að
Laugavegi 116 við
Hlemm. Afgreiðsla ráðu-
neytisins verður af þeim
sökurn lokuð í dag, en
starfsemi ráðuneytisins
verður komin í samt lag á
morgun.
Trygginga- yf-
irtannlæknir
vill hærri end-
urgreiðslur
Reynir Jónasson trygg-
ingayfirtannlæknir telur að
heilbrigð börn sem fari til
tannlæknis á 12-24 mánaða
fresti séu
almennt
vel sett.
Reynir
segir enn-
fremur:
„Hins veg-
ar þarf sár-
lega að
finna leiðir til þess að fá hin
börnin til þess að fara til
tannlæknis. Það þarf að
semja um fasta gjaldskrá og
hækka endurgreiðslu í
100% fyrir börn því með
öðru móti er ekki hægt að
ætlast til þess að allir for-
eldrar fáist til þess að fara
með börn sín reglulega til
tannlæknis.“
Vellauðugt bamabarn Thors Jensen vill vera eigandi fínasta einbýlishúss landsins
Björnólfiir vill
holl langafans
„Ffnasta elnbýlishús landsins*
var reist og nieöhannaO af Thor Jensen
útgerðarjöfri. Nú vill barnabarnið fá
eignina í ættina á ný.
Björgólfur Thor Björgólfsson í Samson Group skrifaði
Þórólfi Árnasyni borgarstjóra í gær formlegt erindi með ósk
um „viðræður um framtíð“ Fríkirkjuvegs 11 og staðfesti þar
með við DV að hann hafi áhuga á að kaupa þetta glæsilega
hús af borginni. Ef sá vilji gengur eftir eignast Björgólfur
Thor húsið sem langafi hans Thor Jensen kaup- og útgerð-
armaður átti en Björgólfur staðfestir að í bréfinu til borgar-
stjóra nefni hann einmitt fyrrum eignarhald langafa síns á
húsinu.
Húsið er einkar glæsilegt og kom
enda sterklega til greina á sínum tíma
að þetta hús frekar en Höfði yrði mót-
tökuhús borgarinnar. Ef af kaupum
Björgólfs Thors verður þá munu vart
finnast glæsilegri hús í einkaeigu í
Reykjavík.
Dýr rekstur og viðhald
Undanfarin ár hefur fþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur haft starf-
semi sína í húsinu, en það þykir ekki
hentugt til skrifstofustarfa vegna frið-
unarskilmála. Steinunn Valdís Óskars-
dóttir borgarfulltrúi segir í því sam-
bandi að væntanlegur kaupandi muni
kaupa húsið með þeim annmörkum
sem húsaíriðun fylgir og einnig þyrfti
að afmarka lóðina, því ekki væri gerlegt
að hún öll fylgdi með í kaupunum,
enda eitt af grænu svæðum borgarinn-
ar.
Steinunn segir að húsið sé ekki
formlega komið í sölu, en að vissulega
komi sala vel til greina. „Húsið þykir
dýrt í rekstri og í viðhaldi og það er
ekki sérlega hentugt fyrir opinbera
stofnun, ekki síst þar sem allar breyt-
ingar eru ströngum skilyrðum háðar.
Það gildir reyndar um fleiri gömul
hús, sem borgin hefur haft áhuga á að
selja,“ segir Steinunn.
Billjarðstofa og vínkjallari
Fríkirkjuvegur 11 er rimburhús
sem Thor jensen lét reisa á ámnum
1907-1908 og telst Thor hafa teiknað
húsið með Einari Erlendssyni arkitekt.
Það var friðað samkvæmt þjóðminja-
lögum 1969 og af borgarstjóm 1978.
Húsið er yfir þúsund fermetrar og er
brunabótamat þess yfir 160 miljónir
króna, en væntanlegt kaupverð líklega
nokkm meira. Húsið var talið „fínasta
einbýlishús landsins", en það er í
svokölluðum Palladio-stíl með margs
konar klassísku skrauti og útflúri. í því
vom 15 herbergi auk eldhúss. Þar var
billjarðstofa og vínkjallari og þegar
veislur vom haldnar gám 24 setið til
borðs í borðstofunni. Húsið kostaði
1908 álíka mikið og öll gjöld Reykjavík-
urbæjar vom það ár. Á heimilinu vom
17 manns þegar flest var, Thor Jensen
og kona hans, ellefu börn þeirra hjóna,
gömul amma og þrjár vinnukonur.
Hersveit eða léttsveit?
Svarthöfði dáist að Birni Bjarna-
syni dómsmálaráðherra. í alvöm tal-
að! Svarthöfði gerir sér fyllilega grein
fyrir því að sumir taka skrif hans ekki
nema mátulega hátíðlega á stundum
og telja jafnvel að f þeim votri á
stundum fyrir kaldhæðni, háði og
spotti. Svarthöfði veit líka að hann
gerist því miður stundum sekur um
slík stílbrögð. En ekki núna. Svart-
höfða er fúlasta alvara: Hann dáist
að Birni Bjamasyni.
Því sjáið þið bara hvað Björn hef-
ur afrekað. Fyrir mörgum ámm orð-
aði Björn þá hugmynd sína og það
sérstaka metnaðarmál sitt að koma
hér upp íslenskum her. Og þið mun-
ið hver viðbrögðin vom. Það var
bara hlegið að Birni. Hann var í
mörg ár að súpa seyðið af þessari
hreinskilni sinni, alltaf þegar á hann
var minnst, þá fýlgdi það sögunni að
þetta væri maðurinn sem vildi fá ís-
lenskan her.
Og hugmyndin þótti svo fáránleg
að það munaði minnstu að Björn
væri hrakinn úr pólitík undan hlátra-
sköllunum. Ekkert vissu menn asna-
legra.
En nú hefur Birni lukkast ætlun-
arverk sitt. Það er kominn á fót ís-
lenskur her, þrátt fyrir öll lilátrasköll
andstæðinga Björns. Bjöm mun að
vísu - minnugur þess hversu slæm
viðbrögð hann fékk upphaflega -
malda í móinn og halda því fram að
þetta sé enginn her en við vitum
auðvitað betur. Því hvað á að kalla
það annað en hersveit, þegar ís-
lenskur maður stýrir alvopnaðri her-
deild og gegnir nafninu ofursti?
Kannski léttsveit?
En fyrir þessa þrautseigju - að
vera samt búinn að koma upp her-
deildinni sinni - þá er ekki hægt ann- Hann er réttur maður á réttum
að en dást að manninum. Hvílík stað, Björn.
þrautseigja, hvílík herstjórnarlist. Svarthöföi.