Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Page 6
6 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fréttir DV
Reyklaus
svæði gagns-
laus
Hin svokölluðu
„reyklausu svæði" á veit-
inga- og kaffihúsum og bör-
um eru gagnslaus því þar er
nánast sama magn eitur-
efna af völdum tóbaksreyks
og á reyksvæðum. Þetta
kemur fram í rannsókn sem
læknar í Ástralíu létu gera á
17 mismunandi stöðum
sem buðu upp á „reyklaus
svæði.
Löcj um hluta-
störf
Alþingi hefur samþykkt
ný lög um starfsmenn í
hlutastörfum, sem eru inn-
leiðing á tilskipun Evrópu-
sambandsins um
rammasamninginn
um hlutastörf, sem
Evrópusamband
verkaiýðsfélaga,
Samtök evrópskra
iðn- og atvinnurek-
enda og Evrópu-
samtök fyrirtækja
með opinberri eignaraðild
hafa gert. I lögunum segir
að markmið þeirra sé að
koma í veg fyrir mismunun
starfsmanna í hlutastörfum
og stuðla að auknum gæð-
unt slíkra starfa.
Áaðleyfa
spilavíti á íslandi
Arna Schram
blaðamaður
Já, mér fínnst að það ætti að
leyfa spilaviti á Islandi. Ég er á
móti öllum boðum og bönn-
um. Hins vegar á að vera eftir-
lit með þeim og einhver skil-
yrði eins og aldurstakmark
gesta. Þá á ekkert að vera því
til fyrirstöðu að hérséu starf-
rækt spilavíti fyrirþá sem vilja
sækja slíka staði.
Hann segir / Hún segir
Þetta er flókin spurning eink-
um vegna þess að við starf-
rækjum spilakassa. En min
persónulega skoðun er að það
eigi ekki að leyfa spilavíti. Eins
og staðan er í dag þá eru
leyfðir spilakassar en það
gleymist alltafí þeirri umræðu
að Háskóli Islands er með
hæstu vinningana.Jú, ég get
heldur ekki neitað að við ætt-
um að huga að þvi hvort við
eigum að leyfa áfram þá
kassa, þrátt fyrir að við mynd-
um tapa tekjum á því banni.
Þórarinn Tyrfingsson
yfirlæknirá Vogi og formaðurSÁÁ.
Margrét Ómarsdóttir á geðsjúkan son sem haldinn er þunglyndi og kvíða. Hann er
hættulegur sjálfum sér og foreldrarnir mega ekki af honum líta. Síðustu mánuði
hefur hún staðið í mikilli baráttu við kerfið við að fá fyrir hann viðunandi læknis-
hjálp.
Baráttan við Barna-
og unglingadeildina
„Drengurinn er hættulegur sjálfum sér þegar hann er hvað
veikastur og mikil hætta á að hann fremji sjálfsmorð," segir Mar-
grét Ómarsdóttir um fimmtán ára gamlan son sinn. Hann er
haldinn miklu þunglyndi og kvíða. Undanfarin fjögur ár hefur
hún staðið í mikilli baráttu við að fá hjálp fyrir son sinn og er
orðin þreytt á samskiptum sínum við Barna- og unglingageð-
deildina, BUGL.
„Síðustu þrjár vikur hafa verið al-
veg skelfilegar," heldur Margrét áfram
en fyrir þremur vikum varð drengur-
inn mjög veikur. „Hann var þá stadd-
ur í Hveragerði hjá skyldmennum
sínum og reiddist snögglega sem er
mjög algengt hjá fólki með þennan
sjúkdóm. Hann rauk út og fór gang-
andi af stað heimleiðis. Það var kalt
og komið myrkur og eftir að bæði
lögregla og við höfðum leitað að
honum meirihluta nætur og fundið
hann þá fórum við með hann illa til
reika og í alvarlegu ástandi á Barna-
og unglingageðdeild og óskuðum eft-
ir hjálp. Þar komum við að lokuðum
dyrum og var sagt að ekki væri tekið á
móti börnum á næturnar."
Eftir að hafa venð vísað frá hjá
BUGL fóru þau hjónin með drenginn
á Geðdeild Landspítalans. Þar var
hann tekinn inn en útskrifaður strax
daginn eftir. Þau fóru þá aftur á
Bama- og unglingageðdeildina og þar
var tekið á
móti þeim
Margrét með son sinn Hún erorðin
I þreytt á að berjast við kerfið og eyða
| allri sinni orku I það. Efþetta heldur
I svona áfram versnar ástandið.
en drengurinn hafði ekki verið þar í
20 mínútur þegar hann stakk af og
týndist.
„Við fundum hann eftir þrjár
klukkustundir og fómm aftur með
hann. Eina ferðina enn er okkur vísað
með hann á fullorðinsdeild þar sem
tekið var á móti honum. Þar var hann
í nokkra daga og fékk hjálp en aðeins
til bráðabirgða, þannig að ekkert
markvisst kom út úr því,“ segir Mar-
grét og botnar hvorki upp né niður í
þessari hringavitleysu.
Og hún er ekki ein um að hafa átt í
vandræðum með að finna boðlega
hjálp handa syni sínum. Samkvæmt
heimildum blaðsins er biðlistinn á
Barna- og unglingadeild alltof langur.
Til em dæmi um að foreldrar hafi
orðið að taka sér fh' ffá vinnu til að
vakta börn og unglinga heima hjá sér
svo vikum skipti á meðan beðið var
eftir plássi. Ein fjölskykia hér í bæ
varð að sendayngri systkini sjúklings-
ins til ömmu og afa á meðan mamma
og pabbi reyndu að halda viðkom-
andi sjúklingi niðri og hindra að hann
skaðaði sjálfan sig og aðra.
Biðu lengi eftir plássi
í tilfelli sonar Margrétar þá var
hann útskrifaður af Geðdeild
Landspítalans tveimur dögum
eftir að hann var lagður inn í
seinna skiptið. Þá
með því skilyrði
að hann
kæmist strax
inn á Barna-
og ung-
lingageð-
deild. En
! Margrét
beið. Og
sonur
hennar
beið. Þau
biðu sam-
an heima í
þrjár vikur.
Allan þann tíma varð hún, vakin og
sofin, að gæta drengsins og fylgjast
með líðan hans.
„Og það sem verra er er að allir á
heimilinu tipla á tánum og systkini
hans tvö verða oft á tfðum að fara að
heiman til að geta andað. Þetta hefur
áhrif á alla fjölskylduna og samskipta-
mynstrið verður sjúkt," segir Margrét
sem er orðin óskaplega þreytt á að
bíða eftir að fá mannsæmandi hjálp
handa sjúkum syni.
Nú nýlega kom hún drengnum
inn á dagdeild unglingageðdeildar-
innar en það gekk ekki eftir fyrr en eft-
ir miklar hótanir: „Við fengum að-
stoðarmann heilbrigðisráðherra og
félagsmálaráðherra í lið með okkur
því af einhveijum óskiljanlegum
ástæðum mæta allir lokuðum dyrum
hjá BUGL. Ég skil ekki hvers vegna
ekkert gerist hjá þessari stofnun en
samkvæmt bráðabirgðasamningum
sem gerðir voru í fyrra á að vera hægt
að aðstoða börn sem bíða eftir plássi
og þá sem þurfa bráðaþjónustu."
Allir farnir héim nema fjórir
sjúklingar
Margrét segir furðulegar sögur af
því hvemig hlutimir ganga á BUGL.
Hún væri til dæmis til í að fá al-
mennileg svör við því hvernig stóð á
því að þegar þau sótm son sinn á
föstudagskvöldið þá vom allir nema
fjórir sjúklingar famir heim. „Ég
spurði hvort þetta væri vanalegt en
hef enn ekki fengið svör við því. Því
gátu þeir ekki tekið son minn inn ef
svona fátt er um helgar?"
Margrét segir undanfarin fjögur ár
hafa verið skelfileg. Sonur hennar
þarfnist faglegrar hjálpar og allt líf
fjölskyldunnar snúist um að reyna að
bjarga honum. Sorglegast í því sam-
hengi er að rifja upp skýrslur ffá því
hann veiktist fýrst. Þar stendur svart á
hvítu að ef hann fái ekki á hjálp - sem
hann hefur ekki fengið og er ekki að fá
- muni ástand hans versna. Og
ástandið hefur svo sannarlega versn-
að.
Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar
Ástandið verra en nokkru
sinnifyrr
„Ástandið er verra en nokkru sinni
fyrr, þrátt fyrir fögur fyrirheit heil-
brigðisráðherra fyrir ári síðan um að
eitthvað yrði gert til að leysa þann
vanda sem biðlistar á Bama - og ung-
lingageðdeUdar, BUGL, skapa,“ segir
Sveinn Magnússon, fVamkvæmda-
stjóri Geðhjálpar.
Sveinn segir að ástandið sé alveg hörmulegt, foreldrar bíði mánuðum
saman eftir vlðtali og dæmi séu um að foreldrar þurfi að setja önnur börn
sín út af heimilinu til að geta annast það sjúka.
„Ég segi það nú ekki að ekkert hafi gerst, það hefur verið stofnaður upp-
byggingasjóður BUGL sem talsvert fé hefur borist í og þarfagreining er í
gangi. Við vonumst til að geta farið af stað með byggingaframkvæmdir á
þessu ári en i sjóðinn er komið vel á annaðhundrað milljóna," segir Ólafur
Guðmundsson yfirlæknir BUGL.
Foreldrar eru orðnir langþreyttir á að bíða eftir að eitthvað gerist og
blaðinu er kunnugt um foreldra sem hafa þurft að taka sér frí í vinnu til að
vera yfir fársjúkum bömum sínum sem deildin hefur ekki séð sér fært að
taka við- Á meðan beðið er eftir innlögn eru heimilin í herkví og systkini
þurfa að yfirgefa heimili sín. Reynt hefur verið að leita til bráðamóttöku
Geðdeildar en þar er börnum vísað frá vegna þess að þau em of ung.
Barna - og unglingageðdeild Biðin er
löng og heimili veikra barna eru oft i herkvi
á meðan foreldrar biða eftirplássi.
Sátt hefur náðst í einu dómsmálanna í kjölfar flugslyssins í Skerjafirði árið 2000
Dómsátt við tryggingafyrirtæki ísleifs
Friðrik Þór Guðmundsson missti
son í flugslysinu og segir að að-
standendum ungmennanna tveggja
hafi ekki þótt málið nógu vel rann-
sakað hér og því hafi þeir ákveðið að
kanna möguleika á málarekstri í
Bandaríkjunum. Tryggingafyrirtæki
ísleifs Ottesen, Codan, var lögsótt en
áður en til meðferðar kom fyrir dómi
náðist sáttin. Fyrirtæki Þorleifs Júlí-
ussonar, Julie’s Aircraft Service í
Texas, skoðaði flugvélina og gaf út
lofthæfisskírteini fyrir slysið. Aðal-
meðferð þess máls verður vestan-
hafs í október íhaust. Bæði fyrirtæk-
in fóru fram á að málin yrðu tekin
fyrir hér á landi en því hafnaði
bandaríski dómarinn. „Upphæð
dómsáttarinnar er trúnaðarmál,
hún fellur úr gildi ef upphæðin er
opinberuð. Hún er þó hærri en ef
málið hefði eingöngu verið tekið fyr-
ir hér, og teljum við það ástæðu þess
að fyrirtækin vildu rétta hér en ekki í
Bandaríkjunum," segir Friðrik Þór
Guðmundsson.
Friðrik Þór Guðmundsson Upphæðin í
dómsáttinni er trúnaðarmái en hærri en
fengist hefði hérá landi