Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fréttír DV
Sigurvinstri
manna í
Frakklandi
Vinstri flokkarnir í
Frakklandi juku fylgi sitt
verulega í síðari umferð
héraðskosninga sem haldn-
ar voru í gær. Kosið var til
26 héraðsstjórna og fengu
sósíalistar, kommúnistar og
græningjar um 50% at-
kvæða samkvæmt út-
gönguspám. Ríkisstjórnar-
flokkarnir fengu rúmlega
35% og flokkur hægri-
manna fékk um 13% at-
kvæða á landsvísu. Þetta er
nokkuð áfall fyrir mið- og
hægrimenn og segja
franskir fjölmiðlar frá því
að þetta gæti leitt til þess
að Jacques Chirac forseti
landsins geri einhverjar
breytingar á ríkisstjórn
sinni. Talsverð óánægja
hefur verið með störf ríkis-
stjórnarinnar undanfarið
þótt héraðskosningarnar
hafí ekki bein áhrif á störf
stjórnarinnar.
Þrír keyrðu
út af
Bfll valt við Vatns-
leysuströnd í Biskups-
tungum um miðjan dag í
gær. Tvær ungar stúlkur
voru í bflnum og sluppu
þær án meiðsla en bflinn
er talinn mikið skemmd-
ur. Skömmu síðar fór
bifreið út af í Kömbun-
um og skemmdist tals-
vert en engin slys urðu á
fólki. Þriðji bflinn fór svo
út af sunnan við
Þrengslavegamótin rétt
fyrir klukkan 14 og var
bflinn mikið skemmdur
eftir út af aksturinn en
minniháttar meiðsl urðu
á fólki.
Þyrla sótti
mann
Jeppi valt viðVeiði-
vatnaveg við Vatnfellsvirkj-
un í gær. Tækjabfll slökkvi-
liðsins á Hvolsvelli kom á
vettvang til að klippa
manninn út úr bflnum en
hann var nokkuð slasaður.
Hann var síðan fluttur til
aðhlynningar í Reykjavík
með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar TF-Líf. Farþegi sem
var í bflnum slapp með
minniháttar meiðsl en
jeppinn er talinn ónýtur.
Slysið varð með þeim hætti
að ökumaður missti stjórn
á bílnum þegar hann var að
koma niður brekku og ók út
í vatnsrás sem var í veg-
kantinum.
Saksóknarinn í Texas sem sótti dómsmálið gegn Aroni Ágústssyni fullyrðir að
hann sé einn hættulegasti barnaníðingur sem hann hafi kynnst. Hann gagnrýnir
dómarann sem dæmdi hann „bara“ í 10 ára fangelsi og forstöðumann Barnahúss-
ins í Houston fyrir að aðstoða Aron. Bæði hafi misst stöðu sína vegna þessa máls.
Telur Aron stór-
hættuleuan níðing
„Ég lít svo á að Aron Ágústsson sé einn af hættulegustu kynferð-
isbrotamönnum sem ég hef komist í kast við,“ segir Mike Trent,
saksóknari í Harris-sýslu í Houston í Texas. Trent er sá maður
sem hefur verið mesti örlagavaldurinn í lífi Arons Ágústssonar
en fyrir sjö árum tókst honum að koma Aroni, þá nýorðnum 14
ára, á bak við lás og slá í 10 ár. Saksóknarinn er einnig sá sem er
ábyrgur fyrir því að ítrekaðar tilraunir íslenskra yfirvalda til þess
að fá Aron fluttan til Islands hafa ekki borið árangur.
„Já, ég lagðist alltaf gegn því eða
allt fram að því að flutningur var ekki
lengur inni í myndinni þar sem hann
var kominn á reynslulausn. í upphafi
var beiðni lögð fyrir Bush forseta
þegar hann var fylkisstjóri," segir
Mike Trent, „Bush forseti hafnaði
þeirri beiðni að fengnu áliti okkar.”
Trent segir að hann þurfi að gæta
hagsmuna barna í Texas og ekkert
hindri að Aron snúi aftur fái hann að
fara til íslands „í hreinskilni sagt þá
hafði ég einnig áhyggjur af því, byggt
á viðbrögðum fulltrúa íslenskra
stjórnvalda, að hann yrði náðaður og
þar með yrði afbrot hans afrnáð úr
gögnum. Við hefðum þá engin tök á
því að hafa eftirlit með honum sem
kynferðisbrotamanni. Loks fannst
mér að honum væri best komið inni-
lokuðum. Sagt var að honum stæðu
til boða einhver meðferðarúrræði og
með fyllstu virðingu fyrir þeim fannst
mér að hann ætti skilið refsingu fyrir
það sem hann gerði."
Vildi 30-40 ára dóm
„Ég held að ég hafl beðið um refs-
ingu á bilinu 30-40 ár. Refsiramminn
leyfir allt að 40 ára fangelsisdóm og
mér fannst að hann ætti að fá dóm
sem væri nærri hámarkinu. Ég er
þeirrar skoðunar að það hefði verið
sanngjarn dómur. Það hefur verið
sannað af læknum og sálfræðingum
að bamahneigð er ólæknanleg. Ég
hef verið sannfærður um það til
þessa dags að Aron muni brjóta af sér
aftur." segir Mike Trent.
Aron var einungis ákærður fyrir
eitt brot um munnmök við sér yngri
dreng. En þegar búið var að sakfella
hann var boðað til nýs réttarhalds til
þess að ákvarða refsingu. I þeim rétt-
arhöldum segir Mike Trent að hann
hafi lagt fram sannanir fyrir miklu al-
varlegri brotum gegn þremur til fjór-
um fórnarlömbum. Saksólcnarinn
getur illa skýrt hvers vegna hann var
ekki ákærður fyrir þessi meintu brot
og hvers vegna fyrst hafi verið bent á
þau við ákvörðun refsingar. Trent
fullyrti í samtali við DV að Aron hefði
verið 14 ára þegar hann braut gegn 5
ára barni. Það stemmir ekld því Aron
var handtekinn 13 ára og sakaður um
brot sem hann framdi 11 ára gegn 7
ára dreng. Þrátt fyrir þetta fullyrðir
Trent að Aron hafi brotið gegn öðr-
um börnum; „Hann sýncli tiltölulega
mótaða og útspekúleraða hegðun
fyrir svona ungan kynferðisbrota-
mann. Hann var kominn á það stig
að vera farinn að velta fýrir sér að-
ferðum til að eiga við vitni, ógna
þeim og þagga niður í þeim. Auk þess
kom fram löngun til að pynta
fórnarlömb í þeim nauðgunarórum
sem hann játaði í meðferðinni."
Pólitískt samsæri
Fyrir þremur árum átti að flytja
Aron í fuilorðinsfangelsi og var réttað
um þá beiðni fyrir Mary Craft, sama
dómara og dæmdi Aron upphaflega.
Þar lagði verjandi Arons, Randy
Schaffer fram bréf sem Mike Trent
saksóknari hafði sent á eftir Aroni til
Giddings-bamafangelsisins. í bréf-
inu gagnrýndi Mike harðlega Mary
dómara. „Henni mislíkaði að ég
skyldi í bréfinu gagnrýna hana fyrir
aðeins tíu ára dóm en sá dómur var
algerlega ófullnægjandi. Hún ákvað
að refsa fýlkisvaldinu á þeim gmnd-
velli.“ Trent segir að þetta hafi verið
pólitískur úrskurður dómarans sem
hún hafi orðið að gjalda fyrir með því
Mike Trent saksóknari í
Houston hefur sótt hart
að Aroni
að missa
dómarasæti
sitt í endur-
kjöri sama ár
hún hafi verið
þekkt fyrir að
fella væga
dóma yfir af-
brotaung-
mennum.
Saksókn-
arinn talar
iteldur ekki af
lilýhug til
annarrar konu sem kom að málum
Arons en forstöðumaður Barnahúss-
ins í Houston, Ellen Cokinos aðstoð-
aði Aron með því að útvega honum
frægan lögmann fyrir þremur árum.
Taldi saksóknarinn skjóta skökku við
að kraftar Barnahússins fæm í að að-
stoða hættulegan brotamann þegar
hlutverk þess væri fyrst og fremst að
hjálpa fórnarlömbunum. „Ég get að-
eins sagt að ég varð bálreiður vegna
hennar afskipta, Hún lenti síðar í
vandamálum fyrir að fara illa með fé
Barnahússins, hún þáði boðsferðir,
sumar þeirra til íslands og varð að
lokum að yfirgefa starfið með
skömm. Hennar þáttur í máli Arons
var fyrst og fremst pólitískur." segir
Mike Trent. Vitað er að Ellen er
demókrati og góður vinur Hillary
Clinton. „Hún hafði markmið sem
höfðu ekkert með málið að gera en
mótuðust af tengslum hennar við ís-
lensk stjórnvöld. Ég veit ekki ná-
kvæmlega hvernig hún komst í sam-
band við íslendinga en það var tölu-
vert um gagnkvæma greiða, ferðir
ffarn og til baka, skemmtiferðir og
þess háttar sem litu út fyrir að
vera vafasamar."
íslensk stjórnvöld á
villigötum
Saksóknarinn
Mike Trent á erfitt
með að skilja áhuga
íslenskra stjórn-
valda á að fá
Aron til Islands
Telur hann þó
að það hljóti
Ellen Cokinos vinkona
Hillary og fyrrv. forstöðu-
maður Barnahúss
að skýrast af
því að þau
hafi ekki feng-
ið nægjanleg-
ar upplýsing-
ar um málið.
Sjálfur telur
hann að Aron
sé stórhættu-
legur og
bendir á útlit
hans; „Aron
er stór strákur
- ég veit ekki
hvort þú hefur séð hann - en þegar
hann var 14 ára var hann næstum því
100 kfló eða meira, - hann er stór og
mikill um sig með ljóst hár - lfldegast
eins og margir íslendingar og með
blá augu." Mike Trent segist hafa
þurft að hafa afskipti af nokkur
hunduð bamaníðingum; „Ég myndi
segja að hann sé einn af fimm hættu-
legustu kynferðisbrotamönnunum
en í þeim hópi em bæði ungmenni
og fúllorðnir.
Aron Pálmi segir að saksóknarinn í Houston í Texas sé að klína á sig brotum
Trent reynir allt til að koma mér á kné
„Þetta er tóm lygi í Mike Trent.
Þarna er verið að draga fram eitt-
hvað sem ég var hvorki ákærður
fyrir né sakfelldur," segir Aron
Pálmi um þá mynd sem Mike Trent
dregur upp
af honum. Hann hefur engar
skýringar á því af hverju honum er
svona uppsigað við sig. „Líklegast
er einfaldara að vera gerspilltur
saksóknari en heiðarlegur," segir
Aron sem viðurkennir það brot
Hvað liggur á?
„LítiH sparnaður og lækkun hans undanfarið ber merki hratt vaxandi neyslu I hagkerfinu,"
segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Islandsbanka, en sparnaður landsmanna er
nú í sögulegu lágmarki. „Þróunin kallar á viðbrögð stjórnvalda, sérstaklega i tjósi þess efna-
hagsástands sem er í augsýn en talsverð hætta er á þvi að þensla myndist I hagkerfinu á því
timabili stóriðjuframkvæmda sem framundan er. Rikið og sveitarfélögin þurfa sérstaklega að
bregðast við með því að halda aftur afsínum útgjöldum. Þá stendur upp á Seðlabank-
ann að standa við markmið sitt um að halda aftur afverðbólgunni með þeim tækjum
sem hann hefur."
sem hann var ákærður og sakfelld-
ur fyrir. „Ég tók á því máli í með-
ferðinni og sé mikið eftir þessum
atburði." Hann segir af og frá að
hann hafi játað einhver önnur af-
brot í meðferðinni. „Sá sálfræðing-
ur laug þessu og þú athugar það að
þetta er sami sálfræðingur og varð
uppvís að því í réttarsal að segja
ósatt í vitnastúkunni. Hún hefur
enn ekki verið saksótt fyrir það.“
Lögmaður Arons, Randy Schaffer
staðfesti á dögunum að það væri al-
gengt að vitni saksóknara segðu
ósatt í vitnastúku enýa ólíklegt að
saksóknari höfði mál gegn eigin
vitni. Aron hefur aftur á móti misst
það starf sem hann fékk nýverið.
Hann var komin með starf í verslun
sem selur einkennisfatnað, meðal
annars til lögreglumanna. „Yfir-
maðurinn minn vildi hafa mig
áfram en skilorðsfulltrúinn taldi
hættu á því að ég myndi stela lög-
reglubúningi og reyna eitthvað
misjafnt dulbúinn sem lögreglu-
maður," segir Aron og bætir við að
ekki sé auðhlaupið að fá annað
starf. Hann telur víst að Mike Trent
sé enn að hafa áhrif á líf sitt. „Ég
veit að hann hefur sent bréf og haft
samband við skilorðsnefndina.
Hann reynir allt til þess að koma
mér í fangelsi," segir Aron Pálmi.