Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Qupperneq 10
70 MÁNUDAGUR29. MARS2004
Fréttir 0V
Prinsessa í
reykjarkófi
Magdalena Svía-
prinsessa varð að yfirgefa
flugvél SAS í gærmorgun
ásamt 102 öðrum farþeg-
um. Farþegarými
vélarinnar fylltist af
reyk skömmu eftir
að farþegar voru
komnir um borð.
Atvikið átti sér stað
á Arlandaflugvelli
og var vélin á leið
til Genfar. Reykur-
inn var vegna olíu
sem lak úr öðrum hreyfli
vélarinnar og tók viðgerðin
tvær stundir.Virtist
prinsessan ekki láta töfina
á sig fá.
Mummi
nærri sokk-
inn
Hafnarvörður í Sand-
gerði tilkynnti slökkvilið-
inu þar í bæ um bát sem
væri að sökkva í höfn-
inni um klukkan 14 í
gær. Þegar slökkvilið
kom á vettvang var bát-
urinn Mummi GK hætt
kominn en slökkviliðið
hafði snar handtök og
tókst að dæla vatni úr
honum þannig að ekki
fór verr. Líklegt er talið
að rafmagnsdæla í
Mumma hafi bilað með
þessum afleiðingum.
Pramma
bjargað
Stór prammi, sem slitn-
aði aftur úr dönsku skipi
fyrir helgina og var á reiki
úti fyrir Langanesi er kom-
inn til Þórshafnar eftir að
danskt sanddæluskip dró
hann þangað. Björgunar-
menn frá Þórshöfn fóru á
föstudag á litlum bát að
prammanum og festu í
hann taug úr togveiðiskip-
inu Hoffelli. Ekki fór þó
betur en svo að taugin
slitnaði í vonskuveðri á
föstudagskvöld. Síðar tókst
svo að festa prammann
aftan í danska skipið og
koma honum til hafnar í
Þórshöfn. Pramminn er
tæplega 50 metra langur og
20 metra breiður.
Arnar Jensson erafar þægileg-
ur maður í samskiþtum og
hófstilltur í framkomu. Arnar
hefur mikla skiþulagshæfileika
og verður mikið úr verki. Hann
er trúaður maður sem fundið
hefur trú sinni farveg í söfnuð-
inum Veginum.
Háskólaneminn, Tom Witchey, þykir heldur betur hafa dottið í lukkupottinn en
hann var valinn til að fara á blint stefnumót með stórstjörnunni Britney Spears.
Kvöldið endaði á hótelsvítu þar sem Britney stjórnaði ferðinni.
„Kynlífíð var ekki afbrigðiiegt á nokkurn hátt.
Við fórum hægt og rólega til að byrja með en
svo magnaðist leikurinn eftir því sem á leið/'
segir Tom.
mot og let ungan
mann strippa
„Britney er rosalega vel vaxin og mjög góður bólfélagi. Hún ræð-
ur ferðinni og ekkert annað að gera en hlýða," segir Tom
Witchey, 21 árs háskólastúdent frá Kaliforníu, sem varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að fara á blint stefnumót með Britney Spears og
njóta síðan ásta með henni fram á morgun. Atburðurinn átti sér
stað nýverið í Kaliforníu.
og tóku myndir af öllu saman. Brit-
ney lét þetta þó ekki spilla gleðinni
og bauð Tom að fylgja sér í svítuna á
Four Seasons hótelinu í grenndinni.
Þar lét söngkonan Tom bíða
góða stund eftir sér en birtist síðan í
eggjandi fatnaði. „Við kysstumst og
klæddum hvort annað úr. Hún réði
ferðinni og það fannst mér gott.
Kynlífið var ekki afbrigðilegt á
nokkurn hátt. Við fórum hægt og ró-
lega til að byrja með en svo magn-
aðist leikurinn eftir því sem á leið,“
segir Tom.
Britney sagði síðan Tom að hún
hefði bara einu sinni áður verið
með manni sem hún þekkti ekki.
Hún sagði honum líka að sína
verstu kynlífsreynslu hefði hún
hlotið þegar hún var með Wade
Robson dansara en sambandið við
hann varð einmitt til þess að upp úr
slitnaði á milli Britney og Justins
Timberlake.
Tom segir stefnumótið hafa farið
rólega af stað. Hann og Britney hafi
skolað niður nokkrum kokteilum og
að því búnu farið á ströndina. Þar
skipaði Britney Tom að afklæðast
og gerði sjálf slrkt hið sama. Þau
busluðu síðan nakin í sjónum
ásamt tveimur vinum söngkonunn-
ar, Charissu Seaman og Josh
Clephas. Það var reyndar fyrir til-
stilli Charissu, sem er einn af
dönsurunum sem fylgja Britney, að
stefnumótinu var komið á.
Tom segir Britney hafa skorað á
sig að kyssa sig. „Hún kyssir stór-
kostlega. Kossinn varði lengi og
þetta var einmitt það sem þurfti til
að brjóta ísinn," segir Tom um
fyrsta kossinn en þeir áttu eftir að
verða fleiri.
Þegar fjórmenningarnir voru
búnir að fá nóg af sundinu lentu
þeir í leiðinlegu atviki en óprúttnir
ljósmyndarar höfðu legið í leynum
Tom og Britney
eyddu saman næsta
degi en ekkert meira
gerðist á kynlífssviðinu.
Tom er þó vongóður
um að endurtaka leik-
inn í sumar því Britn-
ey hefur gefið í skyn
að hún vilji hitta
hann í júlí. „Við
verðum bara að
sjá til hvað
gerist. Hún
hefur
merkilegri
hlutum að
sinna
mér.
Samt veit
maður
aldrei og
kannski
verður
eitthvað
meira úr
þessu,"
segir
Tom
Witchey.
Britney Spears Veit
hvað hún vill íkynlíf-
inu. Hún gamnaði
sér með ungum há-
skólastúdent
næturlangt og
virtist alveg vita
hvað hún var að -
gera.
Snyrtilegir þjófar létu greipar sópa hjá sagnfræðingi í San Francisco
Skýrslum
Skýrslum bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI, um John Kerry, for-
setaframbjóðanda demókrata, hefur
verið stolið frá sagnfræðingi í San
Francisco. Gerald Nicosia hefur und-
anfarin ellefu ár safnað umræddum
gögnum. Nicosia segir að þjófarnir
hafi farið inn á heimili sitt á fimmtu-
dagskvöld og tekið þrjá af fjórtán
kössum eða um fimmtung gagn-
anna. „Þeir gengu snyrtilega um og
tóku bara gögnin. Önnur verðmæti,
svo sem myndavélar, létu þeir vera,“
sagði Nicosia og bætti við að stuldur-
inn væri mikið áfall enda hefði hann
eytt ómældum tíma í að sanka að sér
gögnunum.
Gögnin varða eftirlit sem FBI
hafði með John Kerry þegar hann
FBI um John Kerry stolið
gegndi forystu rneðal hermanna sem
höfðu barist í Víetnam. Hermennirn-
ir lýstu andstöðu við stríðið í stjórn-
artíð Nixons forseta og fór Kerry þar
fremstur í flokld. Kerry mun sjálfur
eiga afrit af gögnunum og hafði á orði
nýverið að það væri ótrúlegt hversu
öflugt eftirlit hefði verið haft með sér.
Nicosia telur ekki ólíklegt að and-
stæðingar Kerry hyggist notfæra sér
gögnin í komandi kosningabaráttu.
„Því miður hef ég ekki lesið öll gögn-
in en ég er fúllviss um að þar er að
finna upplýsingar um John Kerry
sem ekki hafa áður komið frarn," seg-
ir Nicosia og bætir við að ennfremur
sé líkJegt að gögnin geymi upplýsing-
ar sem repúblikanar vilja halda
leyndum.
John Kerry FBI hafði öflugt eftiriit rrieð Kerry eftir Vietnamstriðið.