Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fréttir DV
Ekkert sport á
sunnudögum
Jóhannes Páll páfi II vill
ekki að menn stundi íþrótt-
ir á sunnudögum enda eigi
sá dagur að vera helgaður
Guði. Páfi lét þessa
skoðun sína í ljós
um helgina og hann
segir að sunnudagur
verði æ líkari öðrum
dögum, hann sé
undirlagður af
íþróttum og annarri
skemmtan. Slíkt er engum
hollt að mati páfa og mikil-
vægara að fólk fari í messu
og hugsi um það sem raun-
verulega skiptir máli.
Saksóknari í ísrael mælir með því að Ariel Sharon verði ákærður fyrir spillingu og
mútur. Dómsmálaráðherra tekur endanlega ákvörðun um hvort forsætisráðherr-
ann verður dreginn fyrir dómstóla.
Mútur og spilling geta
kostað Sharon stúlinn
Kosningum
frestað
Þing- og forsetakosning-
ar fara ff am I Afganistan í
september en ekki í júní
eins og ráð var fyrir gert.
Hamid Karzai, forseti
landsins, tilkynnti þetta í
gær og sagði hann ástæðu
seinkunarinnar vera þá að
Sameinuðu þjóðirnar þurfi
meiri tíma til undirbúnings
en fulltrúar þeirra munu
annast framkvæmd kosn-
inganna. Fréttaskýrendur
segja tímasetningu kosn-
inganna afar „heppilega"
fyrir Bush Bandanícjafor-
seta en kosningabarátta
hans verður í hámarki á
þessum tíma.
Norskur ný-
nasisti játar
Johnny Olsen, fyrrver-
andi nýnasisti í Osló, hefur
játað fýrir lögreglu að hafa
staðið að sprengjutilræði í
tvígang. Sprengjurnar
sprungu í Osló 1994 og
1995. Ástæða þess að
Olsen játar nú er
að hans sögn
kvikmyndin
Píslarsaga Krists
eftir Mel Gibson.
sen sá myndina í síð-
ustu viku og hún
vakti með honum
mikla iðrun.
Landsíminn
„Það er mikið á döfínni hjá
mér. Ég ætla að vera ásamt
hljómsveit minni á Players í
kvöid og svo er ég að gefa út
nýjan hljómdisk sem heitir
Látum sönginn hljóma,"segir
Geirmundur Valtýsson
tónlistarmaður
með meiru. Nýi
diskurinn
kemur út 13. aprll en þann dag
fagnar Geirmundur
sextugsafmæli. „Þetta verður
mikill dagur og talan þrettán
verður ráðandi því þetta er líka
þrettándi diskurinn sem ég gef
út. Það er líka gaman að segja
frá því aö diskurinn er
skagfírskur á allan hátt; lög óg
textar eru eftir mig og
stórsöngvarar á borö við
Álftagerðisbræður og Sverri
Bergmann syngja á disknum
ásamtöðru góðu skagfírsku
söngfólki. Við ætlum aö halda
stórtónleika í íþróttahúsinu á
annan í páskum."
„Viö slikar aðstæöur
getur forsætisráð
herra ekki annað en
vikiÖ/'segir Yosef
Paritzky
Saksdknari í ísrael hefur gengið frá ákæru á hendur Ariel
Sharon forsætisráðherra þar sem hann er sakaður um
spillingu og mútur í tengslum við fasteignaviðskipti.
Saksóknari telur sannað að
Sharon sé sekur um ákæruatriðin
og mælir með því að Sharon verið
ákærður. Búist er við því að hann
sendi skýrslu um málið til
Menachem Mazuz dómsmálaráð-
herra á næstu dögum. Það er í
höndum dómsmálaráðherrans að
taka ákvörðun um hvort Sharon
verður ákærður. Að sögn ísraelskra
fjölmiðla þykir ekki ólíklegt að
Mazuz taki sér góðan tíma til að
fara yfir skýrslu saksóknara, þó vart
meira en mánuð.
Málið er þegar farið að valda
miklum titringi í ísrael og þegar er
hart lagt að Sharon að hann segi af
sér. „Við slíkar aðstæður getur for-
sætisráðherra ekki annað en vikið,"
segir Yosef Paritzky, sem situr í rík-
isstjóminni fyrir hönd Shinui-
floldcsins. Þá er haft eftir mennta-
málaráðherra, Limor Livnat, og
flokksbróður Sharons að afsögn sé
eina lausnin komi í ljós að Sharon
hafi brotið lög og málið komi til
kasta dómstóla. Dómsmálaráð-
herra neitaði að tjá sig um málið í
gær og sama gerðu lögmenn Shar-
ons.
Mútumálið snýst um kaupsýslu-
manninn David Appel sem var
ákærður í janúar síð-
astliðnum. Appel er
gefið að sök að hafa
reynt að múta Shar-
on árið 1999 en þá
gegndi Sharon emb-
ætti utanríkisráð- ■
herra. í ákæruskjal-
inu kemur fram að
Appel leitaði til sonar
Sharons, Gilad, og
Ehuds Olmerts þáver-
andi borgarstjóra í Jer-
úsalem. Appel var að
undirbúa gríðarlegar
framkvæmdir á grískri
eyju og vantaði leyfi grískra
yfirvalda. Vildi hann að Shar-
on og Olmert aðstoðuðu sig við
að fá leyfið gegn því að hann léti
fé af hendi rakna til kosningabar
áttu þeirra. Bæði Sharon
og Olmert hugðu þá
á slag um for-
ystusæti í
Liku-
dflokknum. Ekki kemur fram hvort
Sharon þáði múturnar og sjálfur
hefur hann neitað sök í málinu.
Talið er víst að sonur Sharons hafði
þegið tugi milljóna vegna verkefn-
isins sem reyndar varð aldrei neitt
úr. Appel hefur neitað sök í málinu.
Lögmenn í ísrael greinir á um
hvort Sharon þurfi að segja af sér
fari svo að hann verði ákærður. Al-
menningur er hins vegar ekki á
sömu skoðun ef marka má nýlega
skoðanakönnun. Samkvæmt henni
telur meirihluti ísraela að Sharon
skuli víkja úr stóli forsætisráðherra
verði hann ákærður.
Forsætisráðherra fsraels Það er farið að
hitna undirAriel Sharons vegna ásakana
um spillingu og mútur. Saksóknari hef-
ur mælt með því við dómsmálaráð-
herra að Sharon verði
ákærður.
NTC með heildarsamning við KB banka
Allir starfsmenn fá reikning
hjá sama viðskiptabanka
Stofnaðir hafa verið reikningar
hjá KB banka fýrir starfsmenn NTC
eftir að fyrirtækið gerði heildar-
samning við bankann um fjármál.
Að sögn Bolla Kristinssonar forstjóra
felst í samningnum að um 150 starfs-
menn fýrirtækisins hljóti ýmis fnð-
indi sem þeir hefðu ekki fengið sem
einstaklingar. Fyrirtækið NTC, sem
rekur meðal annars verslanirnar
Sautján, Smash og Deres, leit-
aði eftir tilboðum frá stóru
bönkunum um heildar
viðskipti. „Við vorum
búnir að vera í Spron í
yfir 20 ár og bankinn hef-
ur þjónað okkur vel. Síðan
ætlaði KB banki að kaupa
Spron og þá ákváðum við að
láta ekki neinn kaupa okkur
eða færa okkur og töl
uðum við hina bank-
ana,“ segir Bolli til
útskýringar. Tilboði
KB banka var tekið.
KB banki sér nú um að greiða öll
opinber og launatengd gjöld, laun og
lán fýrir NTC. Að mati Bolla hefur
þetta í för með sér mikla lcjarabót fyr-
ir starfsmenn. „Það var hluti af þeim
samningi sem við gerðurn við bank-
ann að semja um leið fyrir okkar
starfsfólk. Við fengum góðan samn-
ing fyrir okkar fólk. Þau fá betri
vaxtakjör, frí debetkort og svo og svo
mikil lán án ábyrgðar," segir hann.
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, segist ekki hafa heyrt um
slíkar heildarlausnir nýlega. „Ég
hef aldrei heyrt um neitt svona.
Starfsmenn eru ekki skyldugir
tU að nota þetta."
jontrausti@dv.is
Bolli Kristinsson Samdi fyrir
hönd starfsmanna sinna um
sérstök fríðindi hjá KB banka
samfara því að viðskipti NTC
voru færð til bankans.
Páfi sendir rannsóknarmenn til Ósló
Vatíkanið rannsakar
kynlíf í klaustri
Stýrir rannsókn
Kaþólska kirkjan í Ósló
er nú undir smásjánni í
Vatíkaninu vegna gruns um
að þar á bæ hafi menn ekki
brugðist við kynferðisbrota-
málum sem skyldi. Jóhann-
es Páll páfi hefur sett sinn
reyndasta rannsóknarmann
í málið; Joseph Ratzinger
kardinála. Ratzinger er „, ,
þaulvanur rannsóknum af P^ihefursktpað
f .,1 John Ratzmger
þessu tagi en hann kom upp kardináía yfirmann
um risahneyksli meðal rannsóknará meint-
kaþólskra presta í Boston í um kynferðisbrotum
Bandaríkjunum. Þar höfðu iósló.
yfirmenn kirkjunnar breitt
yfir kynferðisbrot sem framin voru
gegn ungum drengjum.
Norskir fjölmiðlar greina frá því
að rannsókn Vatíkansins beinist
einkum að klaustri í Ósló og víst þyk-
ir að nokkrir háttsettir menn innan
kaþólsku kirkjunnar séu flæktir í
málið. Tildrög málsins eru þau að
ungur prestsnemi kærði nauðgun í
klaustri. Verðandi presturinn
segir yfirmann sinn hafa
nauðgað sér þegar hann
dvaldi í klaustrinu. Hann úl-
kynnti broúð til æðstu emb-
ættismanna kirkjunnar en
þeir aðhöfðust ekkert. Lög-
regla fékk sfðan málið á sitt
borð en hætti rannsókninni
vegna skorts á sönnunar-
gögnum.
Sendimenn páfa kváðu
hafa verið vel undirbúnir við
komuna til Óslóar og hafa
þeir þegar yfirheyrt unga
manninn. Þeir eru sagðir
hafa ýmis gögn í fórum sínum er
varði meint kynferðisbrot. Gerhard
Schwenzer biskup í Ósló vildi ekki tjá
sig um málið við fjölmiðla og sagði
um einkaheimsókn frá Vatíkaninu
að ræða. Þá vildi ábótinn í klaustrinu
þar sem kynferðisleg misnotkun á að
hafa átt sér stað á ú'unda áratugnum
ekki heldur tjá sig að svo stöddu.