Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fréttir DV
ísland gegn
vopnavið-
skiptum
Amnesty International
hefur undanfarið vakið at-
hygli á nýrri herferð sem
samtökin hafa hafið gegn
verslun með skotvopn.
Talsverður þrýstingur hefur
verið á ráðamenn í Bret-
landi að styðja baráttuna,
sem meðal annars felur í
sér að útbúa sáttmála sem
takmarkar verslun með
skotvopn á milli landa.
„Átta þjóðir hafa þegar lýst
yfir stuðningi við herferð-
ina en samt hefur ríkis-
stjórn Bretlands, þvert á yf-
irlýsta stefnu sína, ekkert
gert í málinu," segir dr.
Mick North sem fer fyrir
baráttuhópi fyrir átakinu í
Bretlandi. Þær þjóðir sem
hafa lýst yfir stuðningi við
málstaðinn fram að þessu
eru ísland, Kambódía,
Finnland, Holland,
Makedónfa, Kosta Ríka,
Malf og Brasilía.
Elduríbílá
Reykjanes-
braut
Eldur kom upp í bifreið
á Reykjanesbraut um
klukkan tvö í gær. öku-
maður var einn á
ferð í bíl sínum
vestan við Kúa-
gerði þegar hann
varð eldsins var.
Náði ökumaðurinn
að stöðva bifreið-
ina og koma sér
undan áður en eld-
urinn breiddist út. Slökkvi-
lið kom skömmu síðar á
vettvang og var bíllinn þá
orðin alelda. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn og
ekki urðu nein meiðsli á
fólki. Bíllinn er hins vegar
gjörónýtur. Ekki er vitað að
svo stöddu um upptök
eldsins.
Aurskriður oq
kuldi á Spáni
Óvenju vont veður var á
Spáni um helgina oghafa
aurskriður fallið yíðavegna
mikillar úrkomu. Þá hafa
nokkrar ár flætt yfir bakka
sfna en hitastig hehtr verið
mjög lágt miðað við það
sem gengur og gerist á
þessum árstíma. Hitastig
var víða undir 10 gráðum
um helgina og mikil úr-
koma hefur fallið síðustu
þrjá sólarhringa.
Sænska fjármálaeftirlitiö svipti verðbréfamiölunina Spectra Fondkommission
starfsleyfi. Pálmi Sigmarsson, eigandi Spectra, hefur skilið íslenska útibúið frá
rekstrinum og stofnar nýtt fyrirtæki, PS ráðgjöf ehf. Hann getur þó ekki stundað
verðbréfamiðlun því starfsleyfið er bundið við sænska móðurfyrirtækið.
Fjármálin voru í
miklum ólestri
Sænska fjármálaeftirlitið hefur svipt verðbréfamiðlunina
Spectra Fondkommisson starfsleyfi eftir ítrekaðar aðvaranir á
síðasta ári. Segir í úrskurðinum að fyrirtækið hafi ekki borgað
skatta og skyldur og að fjármál þess séu í óviðunandi horfi.
Spectra komst í eigu Pálma Sigmarssonar seint á síðasta ári og
reyndi hann árangurslítið að fá nýtt fé inn í fyrirtækið.
íslenskt útibú Spectra skilaði
hagnaði á síðasta ári, öfugt við móð-
urfyrirtækið, og hefur Pálmi skilið
útibúið frá rekstrinum Hinsvegar er
starfsleyfið bundið við sænska móð-
urfyrirtækið og er íslenska útibúinu
því óheimilt að stunda verðbréfa-
miðlun í dag. Pálmi ætlar að stofna
nýtt fyrirtæki, PS ráðgjöf ehf., og
sækja um starfsleyfi til verðbréfa-
miðlunar hérlendis. Spectra annaðist
m.a. verðbréfamiðlun fyrir íslenska
lífeyrissjóði og stofnanir en rekstur-
inn var ekki umfangsmikill, fyrirtæk-
ið velti um 400 milljónum kr. á síð-
asta ári. Pálmi segir að hann hafi frest
til 1. júnf til að koma sínum málum í
lag ytra en hann stendur nú í viðræð-
um við aðra verðbréfamiðlun í Sví-
þjóð sem hefur áhuga á að kaupa
Spectra Fondkommission.
Vandamál Spectra hafa lengi verið
til skoðunar hjá sænska fjármálaeftir-
litinu (FME). Um var að ræða að eig-
ið fé verðbréfamiðlunarinnar var of
lágt í hlutfalli við umfang starfsem-
innar og rekstrarkostnað. Samkvæmt
sænskum lögum verður fyrirtæki
sem þetta að eiga a.m.k. eigið fé sem
er 25% af áhættutöku og a.m.k. 8% af
rekstrarkostnaði. Sænska FME gerði
ítrekað athugasemdir vegna þessa
allt síðasta ár og var fýrirtækinu veitt
formleg aðvörun í október s.l. Þegar
ekki tókst að koma fjármálunum í lag
innan þess frests sem veittur var
svipti sænska FME fyrirtækið svo
starfsleyfi um miðjan þennan mán-
uð.
Ekki borgað skatta og gjöld
í úrskurði sænska FME segir m.a.:
„í flölda tilvika hefur fyrirtækið ekki
gert skil á höfuðsköttum, vinnuveit-
endagjöldum og virðisaukaskatti
sem þýðir að rekstur fyrirtækisins er í
óviðunandi horfi." Einnig eru gerðar
athugasemdir við bókhald fyrirtækis-
ins og það sagt brjóta í bága við lög og
reglur þar að lútandi. Þá gerir sænska
FME athugasemdir um að í fleiri til-
vikum hafi verðbréfamiðlunin farið
langt fram úr þeim áhættumörkum
sem lög setja. Nefnd eru dæmi um að
í nóvember s.l. hafi Spectra í sex til-
vikum farið fram úr 25% eiginfjár-
hlutfalli sínu við áhættutöku í verð-
bréfamiðlun.
Skrifstofa á Marabella
Fyrir utan starfsemi í Svíþjóð,
Danmörku og á íslandi hafði Spectra
skrifstofur víðar í Evrópu, m.a. á
Marabella á Costa del Sol. Á heima-
sfðu þess mátti til skamms tíma _
sjá upplýsingar eins og að helstu
sóknarfærin væru í Miðaustur-
löndum og á Islandi. Þá rak
Spectra sinn eigin lista af fyrirtækjum
sem fjárfestum stóð til boða að kaupa
verðbréf í. í síðustu viku voru þrjú
fyrirtæki skráð á þann lista. Þau fyrir-
tæki sem voru á lista Spectra eru
óskráð á markaði, svipað og gengur
með opna tilboðsmarkaðinn hér-
lendis. Þau eru lyfjafyrirtækið Cellfa-
brikken AB, spila- ogjeikjafyrirtækið
Gamers Paradise (áður Hansa
Gruppen) og matvælafyrirtækið
Magic House.
Starfandi frá 1997
Pálmi Sigmarsson varð starfs-
maður Spectra í Svíþjóð árið 1997 og
starfaði sem verðbréfamiðlari og ráð-
gjafi fram til ársins 2001
er hann eignaðist
smáhlut í fyrirtæk-
inu, sem var hluti
af ráðningar-.
samningi. Sama |
ár kaupir Spectra
í Danmörku fyrir-
tækið í Svíþjóð en
Pálmi var hluthafi í
danska félaginu.
Fyrirtækið stundaði
verðbréfamiðlun,
mest fyrir erlenda aðila
en einnig að hluta til
fyrir lífeyrissjóði og
stofnanir hér
heima.
Dögg Pálsdóttir um mat dómnefndar um dómarastörf
Reynsla einskis metin
Pálmi skrifaði undir samning í
desember í fyrra um að hann yfirtæki
allt fyrirtækið. „Þá var reksturinn
kominn í erfiðleika og kostaði mikið
átak að snúa honum við,“ segir
Pálmi. „Eiginfjárhlutfall var og lágt en
nýtt fé var sett inn í reksturinn til að
reyna að lagfæra hann." Er upp var
staðið við árslok varð hagnaður hér-
lendis um 100 milljónir kr. en tapið í
Svíþjóð nam 10 milljónum kr.
Ekki sótt um leyfi
Páll Gunnar Pálsson, forstöðu-
maður íslenska FME, segir að Pálmi
hafi ekki sótt um leyfi fyrir verðbréfa-
miðlun. Honum er ekki heimilt að
stunda þann rekstur hér heima
eins og stendur en um er að
ræða starfsleyfisskylda fjár-
málastarfsemi. Um leið og
Spectra úti var svipt starfs-
leyfinu missti útibúið hér
heima einnig sitt starfs-
leyfi. Sænska FME beri
ábyrgð á eftirlitinu þótt
fyrirtækið starfi í öðrum
löndum. „Við liðsinnum
Svíunum sé þess óskað.
* Pálmi getur stundað takmark-
aða ráðgjöf en ekki miðlun á
verðbréfum." segir Páll.
Dögg Pálsdóttir lögmaður gagn-
rýnir dómnefnd fyrir uppröðun á
hæfni umsækjanda um tvö embætti
héraðsdómara í grein sem hún skrif-
ar í nýútkomið lögmannablað.
Hún segir félagsmenn í Lög-
mannafélagi íslands eiga rétt á skýr-
ingum frá fulltrúa sínum í dóm-
nefndinni, af hverju hann telur mál-
flutningsstörf jafn lítils virði og álit
dómnefndar beri vitni um.
Dögg bendir á að í dómstólalög-
um sé fjallað um hæfisskilyði lög-
Hvað liggur á?
„Ég hefþað fínt vegna þess að líklega hefur engin vika
verið afkastasamari í starfi mínu sem formaður Sála-
rannsóknarfélagsins að afla dulrænnar reynslu Islend-
inga,"segir Magnús H. Skarphéðinsson. „Ég hugsa aö ég
hafi yfir 30 frásagnir sem liggja í valnum eftir vikuna. Þyk-
ir þetta góður fengur eftir aðeins eina viku. Að öðru
leyti hefég ívið ofmikið að gera því að Sáiarrann-
sóknarskólinn eráfullu og Sálarrannsóknarfé-
lagið líka. Það hefurmikið afútlendingum
boðað komu sína til okkar ÍÁIfaskólann. Þá
þykir mér líka alltafgaman að hitta."
fræðinga sem skipa má í embætti
héraðsdómara. Þar segir að þeir
skuli hafa verið í minnst þrjú ár al-
þingismenn, hafa stundað málflutn-
ingsstörf að staðaldri eða gengt lög-
fræðistörfum að aðalstarfi hjá ríki
eða sveitarfélögum.
Um dómarstöðurnar tvær sóttu
átta lögfræðingar og einn dró um-
sókn sína tU baka. Dómnefndin íjall-
aði því um sjö umsóknir; þriggja
hæstaréttarlögmanna, héraðsdóms-
lögmanns, setts héraðsdómara,
skrifstofustjóra og dósents við laga-
deild. Nefndin taldi alla hæfa, fjóra
mjög hæfa, tvo vel hæfa og einn
hæfan. Af þeim tveimur sem nefnd-
in taldi hæfasta hafa tveir fjölþætta
reynslu af ritstörfum og virðast ryðja
úr vegi þeim sem hafa langa starfs-
reynslu. Dögg bendir á að tveir hafi
borið af, ef litið er til reynslu varð-
andi málflutning annars vegar og
dómarastörf hins vegar. Lögmenn
geti því í framtíðinni litið þannig á
að störf að málflutningi færi þeim
ekki reynslu og geri þá hæfa til að
Dögg Pálsdóttir lögmaður Hún segirað skilaboð nefndarinnar vera að málflutningur sé lít-
iis metin þegar sótt er um stöðu dómara
sækja um dómarstörf. Þau séu létt-
væg í samanburði við störf sem lög-
fræðingar vinna hjá embættum, rík-
isstofnunum og ráðuneytum.
Dögg segir skilaboð nefndarinnar
til lögmanna skýr því hafi lögmenn
hug á að skipta um starfsvettvang
ættu þeir að beina sjónum sínum tO
annarra starfa en embættum hér-
aðsdómara. Málflutningsstörf hafi
greinilega ekki nægt vægi til starfa á
þeim vettvangi.