Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 75
E*V Fréttir
Varnir gegn
hryðjuverkum
Leiðtogar
Evrópusambandsríkjanna
ætla að berjast sameiginlega
gegn hryðjuverkum í
álfunni og var samkomulag
þess efnis undirritað í
Brussel í fyrradag. Þar
ákváðu leiðtogamir hvernig
aðgerðum í
baráttunni við
hryðjuverk yrði
háttað og var Gijs
de Vries, frá
Hollandi,
skipaður í nýtt
embætti
yfirmanns
hryðjuverkavarna ESB. Þótti
leiðtogafundurinn bera þess
merki að flestir vom að
koma beint frá Madrid þar
sem þeir vom viðstaddir
minngarathöfn um
fórnarlömb hryðjuverkanna
þar í borg fyrr í þessum
mánuði.
Tveir skotnir
í írak
Skotárás var gerð í borg-
inni Mosul í norðurhluta
íraks í gær. Tveir grímu-
klæddir menn réðust að
tveimur öryggisvörðum,
Kanadamanni og Breta, og
létu þeir lífið í árásinni.
Mennirnir störfðu við orku-
ver nærri staðnum þar sem
árásin var gerð.
Forkólfur í skoskum náttúruverndarmálum telur mikilvægt að íslendingar sýni
stórhug þegar Vatnajökull verður gerður að þjóðgarði en telur að Kárahnjúka-
virkjun eigi ekki að vera hluti þjóðgarðsins
Landsvirkjun og Alcoa ben
skylda til að opplýsa fó
„fslensk stjdrnvöld hafa ákveðið að nýta náttúruauðlindir lands-
ins til að snúa efnahagsþróuninni við," segir Roger Crofts, fyrr-
um framkvæmdastjóri Náttúruverndarstofnunar Skotlands.
„En þegar náttúmauðlindir em
notaðar þá tapast eitthvað en það
koma einnig upp kostir. Það verður
bara að passa upp á að kostirnir séu
fleiri en ókostirnir. Ég vil sjá meira
sjálfstæði í umhverfismatinu," segir
Roger.
I undirbúningi er að gera Vatna-
jökul að þjóðgarði og hefur Crofts
sem situr í stjórn Alþjóðlegu nátt-
úmverndarsamtakanna fylgst með
undirbúningnum. Að hans mati þarf
þjóðin að vera stórhuga svo útkom-
an verði sem best fyrir alla. Crofts
flutti erindi á Hótel Borg fyrir helgi, á
vegum Landverndar og Land-
græðslu ríksins og telur hann að
Vatnajökull sjálfur sé aðeins hluti
þess vistkerfis sem þarf að vernda.
jökulámar, gljúfrin, sandarnir og
slétturnar, mótuð af jöklinum og
undir sífelldum áhrifum, eru órjúf-
anlengur hluti af þessari heild sem
og gróðurinn, dýralífið og fjöllin að
mati Crofts.
Erindi hans nefnist Vatnajökuls-
þjóðgarður - stærri og betri fýrir alla
og á eftir svaraði Croft fyrirspurnum
úr sal. Aðspurður um hvort virkjanir
og þjóðgarðar fæm saman svaraði
Croft því játandi og benti á nokkur
dæmi ffá Skotlandi þar sem virkjan-
ir hafa verið innan þjóðgarða ámm
saman. „En hér á landi er annað
uppi á teningnum. Kárahnjúkavirkj-
un er svo mikið tilfinningamál hjá
fólki og verður það áfram hjá ýms-
um hér og í útlöndum um ókomna
tíð. Aðrir gera málamiðlanir á eigin
mati. Að gera Kárahnjúkavirkjun að
hluta af þjóðgarðinum strax gæti
sett allt á annan endann, skynsam-
legra væri að gera það síðar. Mín
skoðun er sú að virkjun eigi ekki
heima í þjóðgarðinum eins og
er“ sagði Crofts.„En í ljósi þess
að vegir hafa verið lagðir um
framkvæmdasvæðið til að tryggja
fólki aðgang, þá hvílir sú skylda á
höndum Alcoa og Landsvirkjunar að
upplýsa fólk um svæðið og kynna
það betur, þeir hafa fjármagnið til
þess.“
Crofts hefur farið fram á við
Kárahnjúkavirkjun er
svomikiðtii-
finningamál hjá
fótki og verðurþað
áfram hjá ýmsum hér
og f útíöndum um
ökoma tíð
Alcoa, að fyrirtækið leggi fram fé til
að hægt sé að þróa hugmyndina að
Vatnajökulsþjóðgarðinum en hefur
ekki fengið nein svör. Hann vonar
að forráðamenn fyrirtækisins
fylgist með hugmyndunum og
komi að þeim á jákvæðan hátt.
Ferð fyrir 2 til London eða
Kaupmannahafnar
Á hverjum föstudegi til páska
verður dregið úr öllum
áskrifendum DV og sá heppni
fær ferð fyrir 2 með lceland
Express til London eða
Kaupmannahafnar.
Áskriftarsíminn er 550 5000
Vinningshafar verða kynntir í
helgarblaði daginn eftir útdrátt.
Með DV fylgist þú betur með
þjóðmálaumræðunni hverju
sinni. Helgarblaðið fylgist með
þeim einstaklingum sem skara
fram úr. Helgarviðtalið,
krossgátan, sérstæð sakamál og
margt fleira. DV tekur á málum
af harðfylgi og áræðni. DV veitir
stjórnvöldum hverju sinni
kröftugt aðhald. Á DV duga
engin vettlingatök.