Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Side 16
J 6 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Sport DV
Átta marka
jafntefli hjá
Bremen
Forysta Werder Bremen
minnkaði um tvö stig á
toppi þýsku 1. deildarinnar
um helgina þegar liðið
gerði jafntefli, 4-4, gegn
Stuttgart á útivelli á meðan
Bayern Miinchen lagði
M’gladbach, 5-2, á
heimavelli. Brasilíumað-
urinn Ailton (sjá mynd) og
Króatinn Ivan Klasnic
skoruðu tvö mörk hvor fyrir
Bremen en Marcelo Bordon
skoraði þrennu fyrir Stutt-
gart og Marco Streller skor-
aði eitt. Bremen hefur níu
stiga forystu á toppnum
þegar átta umferðir eru
eftir.
Sigur gegn
Armenum
Islenska drengja-
landsliðið skipað leik-
mönnum 17 ára og
yngri bar sigurorð af
Armenum, 2-1,1
síðasta leik liðsins í
milliriðli EMI Englandi.
fslenska liðið hafnaði í
öðru sæti í riðlinum á
eftir Engiendingum
sem lögðu íslendinga
að velli, 1-0, i úrslitaleik
riðOsins á föstudags-
kvöldið. Englendingar
komast því áfram.
Stórsigur hjá
Flensburg
■Flensburg er enn í efsta
sæti þýsku 1. deildarinnar í
handknattleik eftir tólf
marka sigur á Essen, 35-23,
í gær. Guðjón Valur
Sigurðsson skoraði Ijögur
mörk fyrir Essen. Gylfi
Gylfason (sjá mynd) skoraði
einnig fjögur mörk fyrir
Wilhelmshavener sem vann
góðan sigur á Stralsunder,
29-21, á laugardaginn.
Tanja og
Rúnar hlutu
silfur
Tanja B. Jónsdóttir úr
Björk og Rúnar Alex-
andersson úr Gerplu
unnu til silfurverðlauna
á Norðurlandamótinu í
áhaldafimleikum sem
lauk í Svfþjóð í gær.
Tanja varð önnur í æf-
ingum á slá en hún varð
einnig í fjórða sæti á
tvíslá. Rúnar hafnaði í
öðru sæti á tvíslá en
gekk ekki vel á boga-
hesti. Sif Pálsdóttir hafn-
aði í fimmta sæti í gólf-
æftngum.
Leikmönnum Manchester United tókst ekki að koma í veg fyrir að Arsenal setti
met í gær. Þrítugasti leikurinn í röð án taps síðan tímabilið hófst var staðreynd og
nokkuð sem menn gátu fagnað þrátt fyrir að forystan á toppi deildarinnar
minnkaði um tvö stig.
Arsenal setti enn eitt
metið í ensku úr-
valsdeildinni í
gær þegar liðið
varð það fyrsta í
sögunni til að
spila þrjátíu
fyrstu leiki
tímabilsins án
taps. Arsenal gerði
jafntefli gegn Man
chester United, 1-1, á
Highbury og má segja;
þær litlu vonir, sem Man-
chester United hafði um að
verja enska meistaratitilinn,
séu væntanlega foknar út í
veður og vind.
Leikurinn í gær einkenndist af
mikilli taugaspennu til að byrja
með. Leikmenn Manchester United
voru sterkari aðilinn framan af en
liðu fyrir lida ógn frá framherja
sínum, hollenska markahróknum
Ruud van Nistelrooy, sem var nán-
ast ósýnilegur. Leikmenn Arsenal
komust meira og meira inn í leikinn,
náðu takti í spilið sitt og var
sérstaklega gaman að fylgjast með
Spánverjanum unga, Jose Antonio
Reyes. Hann gerði varnarmönnum
Manchester United lífið leitt með
hraða sínum og dugnaði og virðist
falla eins og flís við rass inn í
Arsenal-liðið.
Glæsimark hjá Henry
Það þurfti þó snillinginn Thierry
Henry til að brjóta ísinn í leiknum á
50. mfnútu. Og þvílíkt mark. Henry
fékk boltann frá Reyes og þrumaði
honum í netið af tuttugu og fimm
metra færi. Boltinn breytti um
stefnu í loftinu á leiðinni í netið og
var Roy Carroll, markvörður
Manchester United, varnarlaus.
Þegar hér var komið sögu réðu
leikmenn Arsenal lögum og lofum á
vellinum og það virtist fátt benda til
annars en að meistaraefnin myndu
sigla með sigurinn í höfn.
Þá byrjaði Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, að skipta
mönnum út af, breyta leik-
skipufaginu og á sama tíma komu
þeir Louis Saha og Ole Gunnar
Solskjær inn í lið Manchester
United. Við þetta breyttist takturinn
í leik Arsenal, leikmenn Manchester
United komust meira inn í leikinn
og uppskáru sanngjarnt jöfnunar-
mark þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. Þeir sundurspiluðu vörn
Arsenal sem endaði með því að Saha
renndi boltanum yfir línuna eftir
fyrirgjöf frá Solskjær.
Örlítil sárabót fyrir Man-
chester United en leikmenn
þess höfðu meiri þörf fyrir
sigur heldur en kollegar
þeirra hjá Arsenal.
Patrick Vieira, fyrirliði Arsenal,
var sáttur
leikslok en hann
varaði við því að
það væri enginn
titill í höfn ennþá.
„Þetta var erflður
leikur fyrir okkur. Við
höfum barist til að ná
úrslitum í undan-
förnum leikjum og þessi
leikur var engin undan-
tekning. Markið sem
Thierry skoraði var frábært
en þegar upp er staðið
erum við sáttir við
jafnteflið. Við vörðumst
aftarlega en náðum
ekki að halda út.
Lið eins og
Manchester
United
gefst
aldrei
upp og það kom ekki á óvart að þeir
skyldu jafna. Ég veit að við erum
nægilega sterkir andlega til að klára
þetta en þetta er alls ekki búið. Þetta
er ennþá hörkubarátta á milli
þriggja liða sem geta öll unnið
titilinn," sagði Vieira.
Frábært að slá metið
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, var sáttur við sína
menn eftir leikinn og sagði þá hafa
gefið allt sem þeir áttu.
„Þetta eru sérstakir drengir og ég
verð að segja að það sem þessir
drengir hafa gert frá því að
tímabilið hófst er hreint
stórkostlegt. Ég er
virkilega stoltur
afþeim," sagði .
Wenger eftir
leikinn á
Highbury
gær.
> .—■
Snillingur
Franski fram-
herjinn Thierry
Henry sýndi
enn einu sinni
snilli gegn
Manchester
United og
skoraði stór-
glæsilegt mark.
Reuters
„Það sem ég er
ánægðastur með er
stöðugleikinn. Knatt-
spyrnustjóri leitar
alltafeftir því að
finna stöðugleika því
ég tel að meistara-
titlar komi í kjölfar
stöðugleika."
Aðspurður um metið sagði
Wenger að það væri frábært að slá
metið.
„Það er gífurlegt
hungur í þessu liði og
þeir vilja vinna allt.
Það er frábært að
slá þetta met og
strákarnir hafa
sýnt að þeir vinna
mjög vel undir
pressu. Þessa
pressa hefur verið
jákvæð og við
höfum notið þess að
spila undir henni.
Það sem ég er
ánægðastur með er
stöðugleikinn. Knatt-
spyrnustjóri leitar alltaf
eftir því að flnna
stöðugleika því ég tel að
meistaratidar komi í kjölfar
stöðugleika. Við erum í góðri stöðu
en það er samt nóg eftir. Þrjú lið
geta orðið meistari en ég held að
það verði erfitt fyrir Manchester
United. Það eru bara átta leikir eftir
og það er ólfklegt að
tvö lið tapi það
mörgum stigum að
þeir komist í efsta
sætið. Við tökum
einn leik fyrir f
einu, nú eru
átta leikir eftir og
andlegur styrkur liðsins kemur í ljós.
Ekki dauðir enn
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, var í ágætu
skapi eftir leikinn og sagði hann gott
veganesti fyrir bikarleikinn um
næstu helgi en þá mætast þessi
sömu lið í undanúrslitum.
„Ég held að við höfum minnt alla
á að við erum ekki dauðir úr öllum
æðum. Við getum tekið margt gott
með okkur úr þessum leik í leikinn á
laugardaginn. Við gáfum fá færi á
okkur og það var ljóst að það þurfti
eitthvað sérstakt til að brjóta okkur á
bak aftur. Markið sem Henry gerði
var einmitt það - sérstakt," sagði
Ferguson. oskar@dv.is