Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Qupperneq 20
20 MÁNUDAQUR 29. MARS 2004
Sport DV
Yngsturtil að
skora 40 stig
Leborn James,
leikmaður Cleveland í NBA-
deildinni í körfubolta varð
um helgina yngsti
leikmaðurinn frá upphafl til
að skora 40 stig í einum
leik. James skoraði 41 stig
og sendi 13 stoðsendingar í
107-104 sigri Cleveland á
New Jersey Nets.
James var 19 ára og 87
daga gamall þegar leikurinn
fór fram og bætti 24 ára
met Cliff Robinson sem var
19 ára og 361 dags gamall
þegar hann skoraði 45 stig
fyrir Detroit 1980.
James skoraði 16 stig í
fjórða leikhluta og þar á
meðal tíu síðustu stig
leiksins en James hitti úr 15
af 29 skotum sínum, nýtti
öll 10 vítin og tapaði aðeins
2 boltum.
Breyting á
úrvalsdeild
Úrvalsdeild karla í
handbolta verður með
örlítið breyttu sniði á næsta
tímabili en fyrirkomulagið
helst þó óbreytt, það er
mótið verður þrískipt.
Breytingin, sem gerð var á
Ársþingi HSÍ um helgina er
sú að lið sem mætast í
forkeppninni mætast ekki
aftur í úrvalsdeild eða 1.
deild en taka hins vegar
úrslitin úr fyrri leikjum með
sér þangað. Þessi breyting
var gerð til þess að minnka
hið mikla leikjaálag sem
hefur verið á íiðunum eftir
að keppni hófst að nýju
eftir EM í Slóveníu.
Á næsta tímabili mun
því áfram vera spilað í
tveimur riðlum í forkeppni,
liðin vinna sig þaðan inn í
úrvalsdeild eða 1. deild og
svo loks í úrslitakeppni.
Celticvann
Rangers
Celtic bar í gær sigurorð
af Rangers, 2-1, á útivelli í
skosku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Henrik Lars-
son og Álan Thompson
skoruðu mörk Celtic en
Steven Thompson minn-
kaði muninn fyrir Rangers
undir lokin. Celtic hefur nú
nítján stiga forystu á toppi
deildarinnar og hefur unnið
fimm síðustu leikina gegn
Rangers.
íslenska landsliðið verður án sinna tveggja bestu manna í Albaníu á miðvikudag-
inn en Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen eru báðir meiddir og
þurftu að boða forföll.
Enginn Eiður Smari
og enginn Hermnnn
Það ætlar að ganga illa hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu að
stilla upp sínu sterkasta landsliði í vináttulandsleikjum. í gær
kom í ljós að tveir sterkustu leikmenn liðsins, Eiður Smári
Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson, verða ekki með gegn
Albaníu í Tirana á miðvikudaginn vegna meiðsla.
Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs-
þjálfari, sagði í samtali við DV Sport
að hann teldi þennan leik gegn
Albaníu gffurlega mikilvægan og að
hann markaði upphaf undir-
búningsins fyrir undankeppni HM
sem hefst í haust. Það hlýtur því að
vera slæmt fyrir liðið að bæði
Hermann Hreiðarsson og Eiður
Smári Guðjohnsen verða ekki með
gegn Albaníu enda þar á ferðinni
tveir bestu leikmenn liðsins.
Eiður meiddur á nára
Eiður Smári fór meiddur út af í
hálfleik gegn Wolves um helgina og
sagði Ranieri að hann hefði neyðst
til að skipta honum út af. Eiður
Smári meiddist á nára og þurfti því
að boða forföll í leiknum.
Hermann lék ekki með Charlton
gegn Aston Villa um helgina vegna
meiðsla aftan í læri og sagði í samtali
við DV Sport í gær að tíminn væri
einfaldlega of naumur fyrir leikinn
gegn AJbaníu.
Tíminn of naumur
„Ég meiddist undir lok leiksins
gegn Newcastle um síðustu helgi og
hef æft hálfmeiddur síðan þá. Ég gat
ekki spilað um helgina gegn Aston
Villa og tíminn fyrir leikinn gegn
Albaníu dugir bara ekki til. Svona
meiðsli þurfa tíma og ég vonast til að
verða orðinn klár í slaginn þegar
Charlton spilar næst eftir tvær vikur.
„Það er að sjálfsögðu
hundfúlt að missa af
þessum leik en það er
lítið sem hægt er að
gera."
Það er að sjálfsögðu hundfúlt að
missa af þessum leik en það er lítið
sem hægt er að gera," sagði
Hermann í gær. Gylfi Einarsson hjá
Lillestrom var í gær valinn í
landsliðshópinn í stað Hermanns
Hreiðarssonar.
oskar@idv.is
Lokaumferð RE/MAX-deildar kvenna í handbolta fór fram á laugardaginn.
Valskonur tryggðu sér annað sætið
Kvennalið Vals tryggði sér annað
sætið í RE/MAX deild kvenna með
26-23 útisigri á Stjörnunni á
laugardaginn í hreinum úrslitaleik
liðanna. Lokaumferð deildarinnar
fór þá fram og eftir hana er ljóst
hvaða lið mætast í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar sem hefst á
fimmtudaginn.
Berglind íris Hansdóttir,
markvörður Vals, reyndist Stjörnu-
stúlkum afar erfið en Berglind
kórónaði frábært tímabil með því að
verja 22 skot í síðasta leiknum á
laugardaginn. Berglind bætti líka
um betur og skoraði eitt marka Vals
í leiknum.
Eftir mjög jafnan fyrri hálfleik
réðust úrslit leiksins á sjö mínútna
kafla í seinni hálfleik þegar
Valskonur breyttu stöðunni úr
16-14 fyrir Stjörnuna í 17-23 fyrir sig
og eftir það var ekki aftur snúið.
„Þetta var mjög mikilvægur sigur
enda markmiðið að losna við að
spila við ÍBV þangað til í
lokaúrslitunum," sagði Sigurlaug
Rúnarsdóttir, fyrirliði Vals, eftir leik.
Drífa Skúladóttir skoraði sex
mörk fýrir Val og Ágústa Edda
Björnsdóttir skoraði 5 en hjá
Stjörnunni skoraði Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 7 mörk.
ÍBV fékk deildarmeistaratitilinn
eftir 33-22 sigur á Haukum og
Grótta/KR tryggði sér sjötta sætið
með 33-36 sigri á KA/Þór fyrir
norðan. Þá vann FH botnlið Fram,
26-23 en fyrir umferðina var ljóst að
Hafnarfjarðarliðin myndu mætast.
LOKASTAÐAN
Lokastaða í RE/MAX deild kvenna:
(BV 24 19 0 5 749-610 38
Valur 24 17 1 6 585-504 35
Stjarnan 24 1608 601-547 32
Haukar 24 13 1 10 643-638 27
FH 24 13 0 11 637-593 26
Gró./KR 24 10 3 11 598-618 23
Víkingur 24 10 1 13 559-579 21
KA/Þór 24 6 1 17 589-696 13
Fram 24 0 1 23 507-683 1
Þessi lið mætast í 8 liða úrslitum:
(BV-KA/Þór
Valur-Víkingur
Stjarnan-Grótta/KR
Haukar-FH
* 8 liða úrslitin hefjast 1. aprfl.