Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Side 24
4 24 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004
Fókus DV
4
is.
€
David Byrne
Grown
Backwards
★ ★★
Nonesuch/Skífan
Breski ný-soul söngvar-
inn Lemar hefur notið mik-
illa vinsælda í heimaland-
inu allt frá því að hann tók
þátt í Fame Academy sjón-
varpsþáttunum árið 2002
þar sem hann lenti í þriðja
sæti. Dedicated er fyrsta
platan hans. Hún kom út í
Bretlandi seint í haust og
seldist mjög vel, en nýlega
kom hún á markað í öðrum
Evrópulöndum, þ.á.m. hér-
lendis. Lemar sem er 25 ára
fyrrverandi bankastarfs-
maður er alveg þokkalegur
söngvari og sumar laga-
smíðarnar á plötunni hans
eru allt í lagi, en það
skemmir fyrir henni hvað
framreiðslan er ofboðslega
steríl. Útsetningamar em
ekta r&b meðalmennska og
það er eins og alla tilfinn-
ingu vanti. Útkoman er fyr-
irbæri sem virkar engan
veginn: Sálarlaus soul-
plata.
Trausti Júlíusson.
David Byrne er einn af
þessum tónlistarmönnum
sem valda alltaf smá von-
brigðum. í hvert sinn sem
hann sendir frá sér plötu
vonar maður að hann geri
eitthvað poppað og snappí
og skemmtilegt eins og
þegar hann var í Talking
Heads en alltaf skal hann
finna einhverja nýja leið til
þess að gera eitthvað gáfu-
legt og áhugavert... Á þess-
ari nýju Byrne plötu stígur
hann samt hálft skref til
baka í poppið. Hér eru
mörg fín lög og eins og
alltaf flottir textar, t.d. Tiny
Apocalypse, The Man Who
Loved Beer og Glass,
Concrete & Stone. Nöfnin
segja allt sem segja þarf.
Þetta er plata sem vinnur á
og ekki skemmir að 10 mín.
útgáfa af laginu Lazy sem
Byrne gerði með X-Press 2
fylgir með sem aukalag.
Trausti Júlíusson
Hljómsveitin N*E*R*D Skip
uð þeim Pharrell Williams og
Chad Hugo, sem mynda
pródúseradúóið Neptunes, og
æskufélaga þeirra, söngvaran-
um Shay. Tónlistin á nýju plöt-
unni er fjölbreytt sambland af
rokki, fönki og poppi.
m
Ein afþeim plötum sem beðið hefur verið
eftir með mikilli eftirvæntingu á árinu
2004 er önnur plata hljómsveitarinnar
N*E*R*D, Fly OrDie, en frumsmíð þeirra
In Search Of... þótti mikill kjörgripur og
hlaut m.a. bandarísku Shortlist-verðlaun
in. Trausti Júlíusson tók púlsinn á þessu
marglofaða þríeyki frá Virginiu-fylki.
upprisa
Bandaríska hljómsveitin N*E*R*D vakti gríð-
arlega athygli fyrir sína fyrstu plötu In Search
Of... Hún fékk Shortlist-verðlaunin (bandarísku
Mercury verðlaunin) fyrir hana og platan var líka
víða á listum yflr bestu plötur ársins 2002. Nú er
komin út ný N*E*R*D-plata, Ffy Or Die. N*E*R*D
er skipuð þeim Pharrell Williams, Chad Hugo og
Shay, en þeir tveir fyrrnefndu eru þekktari sem
pródúseratvíeykið Neptunes.
Ótrúleg velgengni
Neptunes hafa notið ótrúlegrá vinsælda sem
pródúserar sfðustu ár og þó að þeir séu vinnu-
þjarkar þá þurfa þeir að neita fullt af verkefnum.
Neptunes slógu í gegn með fyrstu Kelis plötunni,
Kaleidoscope, en síðan hafa þeir m.a. pródúserað
Nelly (Hot In Herre), Jay-Z (I Just Want To Love
Ya), Mystikal (Shake That Ass), Foxy Brown
(Candy), 01 Dirty Bastard (Got My Money) og Ja
Rule (Pop Nigga) auk þess sem þeir eiga stóran
þátt í velgengni bæði Britney Spears og Justin Tim-
berlake. Þeir gerðu Slave For U og Boys fyrir Britn-
ey og þeir áttu stóran þátt í því að Justin breyttist
úr hlægilegum strákahljómsveitarlúða í kúl popp-
ara. Þeir eiga nokkur lög á plötunni hans, Justified,
þ.á.m. Rock Your Body og Senorita.
Neptunes eru frá Virginiu rétt eins og
Timbaland og Missy Elliott og þeir voru reyndar í
hljómsveit með Timbaland á unglingsárunum.
Mikil snilligáfa samankomin þar. Eftir að Neptu-
nes fóru að moka út smellum og ásóknin í að fá þá
til að pródúsera jókst sá Pharrell sig knúinn til að
gefa út eftirfarandi yflrlýsingu: „Að gefnu tilefni vil
ég leiðrétta þann misskilning að við séum svarið
við kreppunni í tónlistariðnaðinum."
Vinnualkar með fullkomnunaráráttu
Þeir Pharrell og Chad eru miklir fullkomnunar-
sinnar og eru greinilega ólatir til vinnu. In Search
Of... platan kom út í tveimur útgáfum. Þegar fyrri
útgáfan var fullkláruð þá voru þeir ekki alveg
ánægðir. Hún var að mestu unnin með tölvum,
syntum og samplerum og var gefin út í litlu upp-
lagi í Bredandi árið 2001. Þeir félagar voru ekki
sáttir við hljóminn á henni og fengu þess vegna
hljómsveitina Spymob til þess að taka hana upp
aftur með hefðbundnum Jiljóðfærum. Sú útgáfa
kom út árið 2002 og er mun betri.
Á nýju plötunni er tónlistin spiluð með hefð-
bundnum hljóðfærum, en nú eru það ekki með-
limir Spymob sem spila á þau heldur Pharrell og
Chad sjálfir.
Það gat svo sem verið að þessir gaurar gætu
spilað á nánast hvaða fújóðfæri sem er ofan á allt
annað! Tónlistin á Fly Or Die er framhald af tón-
listinni á fyrstu plötunni. Þetta er sambland af
rokki, poppi og fönki. Sum lögin gætu alveg verið
á plötu með einhverri enskri nýbylgjusveit, en í
öðrum kemur Neptunes grúvið í gegn. Það er lít-
ið af gestum á plötunni, en Joel og Benji Madden
úr Good Charlotte syngja í laginu Jump, Lenny
Kravitz spilar á gítar í laginu Maute og í sama lagi
trommar Questlove úr The Roots.
Star Trak fyrirtækið
Auk þess að gera út Neptunes og N*E*R*D
reka þeir Pharrell og Chad plötufyrirtækið Star
Trak. Þeir eru miklir Star Trek menn og nafnið er
merki um það. Síðasta sumar sendi Star Trak frá
sér safnplötuna Neptunes Presents The Clones
og það var ekki að því að spyrja, hún fór beint á
toppinn vestra. Á henni eru helstu tónlistarmenn
útgáfunnar ásamt listamönnum sem Neptunes
hafa unnið með, þ.á.m. Jay-Z, Busta Rhymes,
Nelly, Snoop Dogg, Clipse og Kelis.
Plötudómar
1, (7) Franz Ferdinand -
Darts Of Pleasure
2. (2) N*E*R*D-
She Wants To Move
3 . (') P'Hk lörease -
Fever
4. (5) Cypress Hill -
What's Your Number
5. (-) Gísli -
Passing Out
6. (-) Scissor Sisters -
Laura
7. (3) Franz Ferdinand -
Take Me Out
Q. (7) Chicks On
Speed/Peaches -
We Don't Play Guitars
10 J4) The Von Bondies -
Broken Man
Lokaverk Roger Waters
með
I dag kemur w __
Pink Floyd plötunni The Final Cut
sem upphaflega kom út árið 1983.
Platan var lokaverkefni Roger Wa-
ters með hljómsveitinni, en hann
samdi öll lög og texta á henni. The
Final Cut er eins konar framhald af
The Wall. Á henni fjallar Roger m.a.
um dauða föður síns í seinni heims-
sfyrjöldinni.
Nýja útgáfan er endurhljóð-
blönduð og á henni er eitt aukalag,
When The Tigers Broke Free sem var
gefið út á smáskífu árið 1982, en var
aldréi með á upphaflegu útgáfunni
afThe Final Cut.
nms og nafnið gefur til kynna átti
The Final Cut að vera síðasta plata
Pink Floyd. Hljómsveitin hætti í
kjölfar hennar og bæði Roger Waters
og Dave Gilmour sendu frá sér sóló-
plötur á árinu 1984. Dave end-
urstofnaði hins vegar hljómsveitina
árið 1986 og tilraunir Rogers til að
stöðva hann með málshöfðun báru
ekki árangur.
I raun er næstum hægt að segja
að The Final Cut sé sólóplatan með
Roger Waters því að hann á ekki
bara hugmyndina og öll lögin heldur
gerði hann myndirnar á umslaginu
líka.
Roger Waters
The Final Cut ereiginlega
sólóplata hans.