Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2004, Side 25
r
0V Fókus
MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 25 »
Claudia J.
Koestler,
umboðsmaður
Stuðmanna í
Þýskalandi. er
skáld og
Maðamaður með
mikinn áhuga á
íslenskri tónlist.
Hun á það til að
lenda í ýmsum
hremmingum eins
og þegar hún
kynntist tónlist
Smðmanna fyrst í
hehnaborg sinni
Köln. Þá var hún á
flótta undan
lögreglunni í Köln
með sérstakan
ránsfeng. bleika
afmælisköku í líki
Cadillac-bifreiðar
laudia J. Koestler 28 ára
gamall umboðsmaður
Stuðmanna í Þýskalandi
er nú stödd hérlendis til
að ganga frá útgáfu á
safndiski með hljómsveitinni í
heimalandi sínu. Hún á það til að
lenda í ýmsum hremmingum, bæði
hér heima og ytra. Hún kynntist
tónlist Stuðmanna fyrst er hún var 15
ára táningur í Köln á flótta undan
lögreglunni í heimaborg sinni með
stolna tveggja fermetra afmælisköku
í líki bleikrar Cadillac-bifreiðar.
Kökunni hafði henni og þáverandi
kærasta hennar tekist að troða inn í
Fíat bíl af minnstu gerð, þó þannig
að endinn á kökunni stóð út um
hliðarrúðuna og lak niður á götuna.
Kökunni höfðu þau stolið úr
afmælisveislu hjá einni af þekktustu
sjónvarpsstjörnum Þýskalands.
Cadillac-afmæliskaka í Fiat
„Kærasti minn var píanóleikari og
hann hafði verið fenginn til að troða
upp í afmælisveislu hjá þessari
stórstjörnu. Hann bauð mér með svo
ég gæti komist aðeins í kynni við
fræga og rika fólkið í landinu," segir
Claudia. „Þessi stjarna reyndist svo
skíthæll þegar upp var staðið því
hann neitaði að borga kærasta
mínum fyrir kvöldið. Kærastinn varð
reiður og kvaðst ætlað að taka
eitthvað með sér úr veislunni. I
hliðarsal fundum við svo tveggja
fermetra stóra afmælisköku í líki
bleikrar Cadillac-bifreiðar. Við
ákváðum að stela henni og tókst að
troða kökunni inn í bílinn sem
kærasti minn átti en það var minnsta
tegund af Fíat.“
Claudia segir að þau hafi svo ekið
heim með kökuna standandi út um
hliðarrúðu bílsins. Morguninn eftir
vöknuðu þau upp við að tveir fflefldir
lögreglumenn voru að banka upp á
hjá þeim í leit að kökunni. „Mér tókst
að laumast út um bakgluggann og
þótt ég væri próflaus tókst mér að
keyra Ffatinn að elliheimili í
nágrenninu. Þar gaf ég kokkinum á
heimilinu kökuna og hann vildi
endilega gefa mér eitthvað í staðinn.
Upp úr kafinu kom að kokkurinn var
íslenskur og hann gaf mér
myndband með
Stuðmannamyndinni „Með allt á
hreinu". Þetta var í fyrsta sinn sem ég
kynntist Stuðmönnum en þegar ég
og kærastinn skoðuðum myndina í
fyrsta sinn vissum við ekki hvort við
ættum að gráta eða hlæja.“
Skrifar handrit að
gamanþáttum
Claudia er fædd og uppalin
Köln. Hún gekk í háskólann þar og
nam bókmenntir, stjórnmál og
norræna menningu í skólanum.
Þegar á skólaárunum var hún byrjuð
að vinna fyrir sér sem
handritshöfundur að gamanþáttum
í þýsku sjónvarpi. Hún hefúr þar að
auki skrifað tvær bækur, ljóðabók og
skáldsögu og vinnur nú að þriðju bók
sinni. „Eftir að skólagöngunni lauk
vann ég í hálfu starfi sem
handritshöfundur og í hálfu staríi
sem blaðamaður _ við tónlistar-
tímaritið Spex,“ segir Claudia. „Það
var svo á síðasta áratug sem ég fór að
. pæla í íslenskri tónlist á ný. Eg var í
tuttugusta og eittlivað sinn að skrifa
um Björk og fannst mér vanta
eitthvað nýtt um íslenska
tónlistarmenningu. Því ákvað ég að
skella mér til íslands og hlusta á hvað
annað væri í gangi hér á þessum
tíma.“
Hún segir að sú mikla gróska og
gerjun sem var í íslensku tónlistarlífi
á þessum tíma hafi komið sér
verulega á óvart. „Það var svo margt
spennandi í gangi og ekkert af því var
þekkt fyrir utan ísland nema Björk,“
segir hún. „I þessari för hitti ég svo
Egil Ólafsson söngvara Stuðmanna
og mundi þá eftir myndbandinu
sællar minningar."
Fram kemur hjá Claudiu að í lok
þessarar fyrstu heimsóknar til
íslands hafi hún skrifað stóra grein
um íslenskt tónlistarlíf, allt aftur til
ársins 1930. „Já,já Haukur Morthens
er með í greininni," segir hún
brosmild. „En það athyglisverða er
að eftir að þessi grein birtist
drukknuðum við næstum því í
sfmhringingum og bréfum ffá
lesendum sem vildu fá meira og
vildu fá að vita hvar þeir gætu nálgast
tónlistina á diskum."
fslendingar á þýskar hátíðir
Claudia segir að eftirspurnin eftir
íslenskri tónlist í Þýskalandi hafi
verið svo mikil að stórar
tónlistarhátíðir þarlendis vildu fá
íslenskar hljómsveitir til að troða
upp. Hún nefnir sem dæmi að
Bubbi Morthens og
hljómveitin Stríð og friður
og svo Stuðmenn hafi
komið til Þýskalands
og spilað árið
2001.
„Áheyrendur
elskuðu þessa
tónlist,"
að venjast. Sungin á íslensku en ekki
þetta alþjóðlega bull sem maður
heyrir á MTV. Viðbrögðin komu
okkur verulega á óvart og íslenskir
listamenn tróðu upp aftur á
hátíðinni U&D í Wuerzburg árið eftir
við góðar undirtektir 25.000 gesta."
I máli Claudiu kemur fram að á
þessum tíma hafi hún verið byrjuð
að aðstoða Stuðmenn við að koma
sér á framfæri í Þýskalandi. Margir
þýskir útvarpsmenn hafi komið að
máli við hana og spurt hvort diskar
með ísleriskri tónlist væru ekki
fáanlegir þarlendis svo þeir gætu
spilað þessa tónlist á stöðvum
sínum. „Þetta var svo allt öðruvísi én
þeir höfðu heyrt áður, svona eins
konar bland í poka og ekki sungið á
ensku," segir hún. „BMG útgáfan
hafði svó samband við mig og í
framhaldinu var ákveðið að gefa út
safndisk með Stuðmönnum. Tvö af
lögunum verða á þýsku og tvö á
ensku en megnið er sungið á
íslensku eins og vera ber.“
í fangageymslu á íslandi
Claudia virðist alltaf lenda í
skringilegum uppákomum þegar
hún heimsækir ísland, sem hún
gerir oft og reglulega nú um stundir.
Hún nefnir sem dæmi að í einni af
síðustu heimsóknum sínum fyrir
tveimur árum í janúar hafi hún lent
ýmsum hremmingum. „Til að
byrja með var veðrið þannig að vélin
gat ekki lent í Keflavík heldur var
beint til Reykjavíkur. Á flugvellinum
þar tók ég svo leigubfl upp á hótel,"
segir hún. „Ég tók eftir því að
leigubflstjórinn keyrði mjög
sérkennilega og það var eins og
hann gæti ekki haldið bflnum á
veginum. Eftir skamma stund erum
við svo stöðvuð af lögreglunni og í
ljós kemur að þessi leigubflstjóri er
ölvaður, próflaus og á stolnum bfl.
Lögreglan taldi mig meðseka og ég
fékk að
gista fangageymslur hennar þessa
nótt."
Ekki tók betra við næsta kvöld
þegar Claudia ætlaði niður á tjörn að
taka myndir. Hún átti leið framhjá
bandaríska sendiráðinu og vildi ekki
betur til en að þrír íturvaxnir
öryggisverðir tóku hana í gæslu og
grandskoðuðu myndavélatösku
henr.ar. Þótti taskan í meira lagi
grunsamleg. Var hún í haldi þeirra í
eina tvo tíma. „Þeir töldu greinilega
að ég væri frænka Osama bin
Laden," segir hún.
Amma með haglabyssu
En einhverja sérkennilegustu
lífireynslu sína á íslandi segir Claudia
vera þegar hún hjólaði í kringum
landið árið 2001. „Ég var komin
norður í land á hjólinu og veður var
afleitt," segir hún. „Það rigndi svo
mikið að ég ákvað að hætta við að
tjalda og gekk í átt að næsta
bóndabæ. Er ég var komin hálfa leið
að bænum kemur manneskja út í dyr
og beinir að mér haglabyssu. Mér
varð um og ó en ákvað að halda
áfram. Er ég kom í talfæri við
manneskjuna kom í ljós að þetta var
amnian á bænum vopnuð. Er hún
gat séð mig greinilega lagði hún
byssuna frá sér og bað mig
afsökunar. Hún hafði nefnilega
tapað gleraugum sínum og sá
ekki greinilega hver var á
ferð.“
Hópur blaðamanna
Nú er Claudia mætt á Æ
ný og um helgina verður “
hún með bóp af þýskum
blaðamönnttm á ferð um 3
borginu að kynna þeim 1
Stuðmenn og íslenska |
tónlist. Ilún vonar að hún
komist hjá þvf að lenda í *
lögreglunni, bandarískum 1
öryggisvörðum, ölvuðum leigu-
bflstjórum á stolnum bflum og
vopnuðum ömmum í vígahug
fri&dÆ
segtr
Claudia.
„Hún var
einhvern
veginn svo
allt öðruvísi
en þeir áttu
O
V.
T
-*
f
DV-mynd Stefán.