Akranes - 01.09.1948, Blaðsíða 7
manna. Frá bankans hendi hefir hr. aðal-
bókari Haukur Þorleifsson, fyrst og fremst
verið þessum mönnum til hjálpar og að-
stoðar. — Teikningar af afgreiðsluborði og
húsgögnum, uppi og niðri, hefir hr. hiisa-
meistari Skarphéðinn Jóhannsson gert eða
séð um að gerðar væru í Danmörku. —
Afgreiðsluborð og húsgögn, sem öll eru
af vönduðustu gerð, eru smíðuð af mikilli
vandvirkni og hagleik hjá hr. húsgagna-
smíðameistara Friðrik Þorsteinssyni. —
Járnateikningar hefir gert hr. bæjarverk-
fræðingur Bolli Thoroddsen. — Raflagnir
hefir teiknað hr. rafveitustjóri Valgarð
Thoroddsen. — Hitalögn hefir teiknað hr.
Gísli Halldórsson, verkfræðingur. — Hr.
Þorlákur Jónsson rafvirkjameistari hefir
séð um allar raflagnir og hr. Grímur
Bjarnason, pípulagningarmeistari um rör-
lagningar og uppsetningu hreinlætistækja.
— Málningu utanhúss og að innan á kjall-
ara, fyrstu og aðra hæð, hefir hr. málara-
meistari, Jóhann Sigurðsson, gert. En
innanhússmálningu á þrem efri hæðvrni
og rishæð hefir hr. Kjartan Karlsson mál-
arameistari og félagar hans gert. Yfir-
smiður við tréverk var Magnús Bergsteins-
son. Dúkalagningar annaðist Ágúst Mark-
ússon. Húsgagnabólstrun annaðist Tryggvi
Jónsson. Áklæði á húsgögn hefir frú Karo-
lína Guðmundsdóttir ofið, en efni í það
er frá Ullarverksmiðjunni Framtiðinni.
Veggskreytingu þá, sem hér er á veggjum,
hefir gert hr. myndhöggvari Sigurjón
Ólafsson. Auk þessara manna, sem þegar
eru taldir, hefir mikill fjöldi manna, inn-
lendra og erlendra, unnið meira og minna
við að koma upp þessu stóra húsi. Tré-
smiðir, húsgagnasmiðir, múrarar, verka-
menn og ýmsir fleiri, og yrði allt of langt
að telja þá alla upp hér. f fyrsta lagi vil
ég þakka þremur hinum fyrst töldu, húsa -
meistaranum, yfirsmiðnum og samverka-
manni mínum, Hauk Þorleifssyni, fyrir
þeirra ágæta starf frá upphafi þessa hús-
máls. öllum öðrum, sem að þessu húsi hafa
unnið, bæði þeim sem ég hefi hér nefnt
með nafni og hinum,. sem ég hefi ekki
nafngreint, vil ég hér færa þakkir fyrir
vel unnin störf.“
Innanstokksmunir bankans hljóta að
vekja eftirtekt athugalla manna. Ekki að-
eins fyrir afburðagott smíði, heldur einnig
lögun þeirra og línur. Þar eru hlutir,
efni og form hnitmiðað og samstillt, og
bendir til, að teiknarinn ráði vel við verk-
efni sitt. Skarphéðinn Jóhannsson er
lærður húsgagnateiknari, en nemur nú
arkitektur. Litur út fyrir, að íslenzkum
húsameisturum bætist þar efnilegur mað-
ur, er hann hefur lokið prófi.
Starfsfólk bankans nú:
Það er augljóst, og gefur auga leið, hver
nauðsyn það er stofnun sem þessari, að
hafa hverju sinni gott starfsfólk. Fólk,
sem ekki aðeins kann störf sín sómasam-
lega, heldur jafnframt er samviskusamt,
og með traustleik og prúðri framgöngu
laðar að sér og stofnuninni þá, sem við
er að skipta. Þá veltur það einnig á miklu,
hvernig samstarfsandinn er meðal starfs-
manna viðkomandi stofnunar. Hvort þeim
tekst að gera þennan vettvang að öðru
heimili sínu, ef svo má að orði kveða,
sem þeir allir standi sameiginlega vörð
um.
Eg hygg, að Þórður heitinn Sveinsson
hafi verið Búnaðarbankanum þetta allt
í óvenjulega ríkum mæli og stofnuninni
harla þarfur maður. Enda þótt ég þekki
núverandi bókara bankans, Hauk Þorleifs-
son, minna en Þórð heitinn Sveinsson,
hygg ég að hann eigi óskilið mál um fjöl-
marga beztu kosti Þórðar Sveinssonar.
Það, sem ég hefi heyrt um hann af munni
bankastjórans og húsameistarans i sam-
bandi við hið nýja hús, sannar þetta full-
komlega. En hann var staðgengill banka-
stjórans i óteljandi tilfellum meðan á
byggingunni stóð.
Það má telja til afreka, beggja bókara
Búnaðarbankans, að gefa árlega út 2. jan.,
reikninga slíkrar stofnunar. Er augljóst
að þetta er því aðeins gerlegt, að starfið
sé vel skipulagt og þeim starfskröftum á
að skipa, sem hafa hug á að vinna fljótt
og vel.
STARFSMANNASKRÁ:
Bankaráð:
Bankastjóri:
Bókari:
Féhirðir:
Skrifstofa:
Afgreiðsla:
Hermann Jónasson, alþin., form.
Þorsteinn Þorsteinsson, alþm.
Kristinn E. Andrésson, ritstjóri.
Hilmar Stefónsson.
Haukur Þorleifsson.
Sveinn Þórðarson, aðalféhirðir.
Ragnar Ingólfsson, aðstoðarmaður.
Sigurður Þórðarson, fullt. bókara.
Þórey Hannesdóttir.
Þórhallur Tryggvason, skrifstofustj.
Finnbogi Sigurðsson.
Garðar Þórhallsson.
Gunnar H. Blöndal, ráðinn f. 1. apr.
Hannes Pálsson.
Haraldur Ólafsson.
Ingibjörg Þórólfsdóttir, frá 1. marz
Jón Sigurðsson.
sr. Magnús Þorsteinsson.
Páll J. Briem.
Svavar Jóhannesson.
Tryggvi Pétursson.
Lögfræðingar: Hermann Jónasson.
Magnús Árnason, frá 1. ógúst.
Bjarni Jónsson.
Sigurjón Sigurðsson.
Þórhallur Þorgeirsson.
Haraldur Guðmundsson.
Lárus Stefánsson.
Húsvörður í Austurstræti 5:
Sigurður Maríasson.
Aðstoðarmaður þar:
Stefán Tómasson.
Stjórnskipaðir endurskoðunarmenn:
Einar Gestsson, hóndi, Hæli.
Sigurjón A. Ólafsson, alþm..
Útibú ó Akrureyri:
Bemharð Stefánsson, útibústjöri.
Endurskoðun:
Sendimaður:
Húsvörður:
Næturvörður:
Elías Tómasson, fulltrúi.
Berghildur Bemharðsd., aðstoðarm.
Starfsmenn teiknistofunnar:
Forstöðumaður, Þórir Baldvinsson,
arkitekt. Aðstoðarmenn, arkitekt-
amir Jóhann Fr. Kristjánsson, Þor-
leifur Eyjólfsson og Ame Schested
Hoff-Möller og auk þess til að-
stoðar ungfni Sigriður Ámadóttir.
Þessi starfsmannaskrá mun vera
óbreytt enn.
AS lokum þetta:
Þegar ég gekk fyrst um stiga þessa
húss, og kom í skrifstofu á efri hæð þess,
fannst mér allt svo verklegt, myndarlegt
og þó aðlaðandi í senn, að mig langaði
stórlega til að kynnast nánar þessari nýju
byggingu.
Við nánari skoðun hússins, varð áhugi
minn og eftirgrenslan ekki fyrir vonbrigð-
um, og það er bein afleiðing af þvi, að
þessi grein er til orðin.
Eins og áður er sagt, var byggingin
hafin af fullkominni nauðsyn. Frum-
kvæðið að henni á því vafalaust bankastjóri
stofnunarinnar, sem nefna má því „yfir-
smið“ hennar í óbeinni mérkingu talað. f
þvi frinnkvæði og áframhaldandi fram-
kvæmd lýsir sér, að ég ætla, ákaflega vel
lyndiseinkunn Hilmars Stefánssonar. Að
þegar þörf sé að gera einhvern hlut og
hægt sé að gera hann, þá sé hann vel
gerður og traustlega, svo að til frambúðar
sé. Eitthvað likt virðist mér mega segja
mn húsameistarann, Gunnlaug Halldórs-
son. Sýnist mér allt við bygginguna og
framkvæmd hennar lofa þá báða. Húsið
er að utan og innan stílhreint, fagurt, og
umfram allt traustlegt. Allt i byggingunni
vekur geðþekk áhrif, um leið og traust-
leiki er í allri framkvæmd í sem fæstum en
þó fullkomnustum linum. Gangar hússins
vekja t.d. verðuga athygli um traustleika
og fegurð í litum og lýsingu.
öllu virðist vel og haganlega fyrir komið
og bera vott um nákvæma, vakandi hugs-
un um allt, sem leysa þarf í sambandi
við hvem hlut, hvers herbergis og hæðar,
sem og hússins í heild. Gefur það til
kynna, að af óvenjulegri alúð og sam-
stillingu hafi allir aðilar unnið frá upp-
hafi til enda.
Við lestur þessarar greinar og lýsingar
á húsinu, dettur sjálfsagt einhverjum í
hug, að þetta sé ekki þakkarvert, þar sem
ekkert hafi þurft að spara. Þegar ég var
búinn að kynna mér byggingu hússins,
með öllum innanstokksmunum og tilheyr-
andi tækjum, smáum og stórum, varð
mér á að spyrja um verð alls þessa. Fannst
mér það vitanlega skipta miklu máli. Við
nákvæma athugun á byggingu hússins,
og með hliðsjón af því, sem menn eiga
nú að venjast um verðlag á öllum hlutum,
mun engan sundla, þótt hann heyri nefnd-
Framhald á bls. 115.
AKRANES
103