Akranes - 01.09.1948, Blaðsíða 17

Akranes - 01.09.1948, Blaðsíða 17
ágústsól og júnimjöll. Hyljablámi heiðavatna hjúpar augans leifturbál. Knúinn var i kleifum fjalla kjarkur þinn og viljastál." Gagnort og markvisst er kvæði Jóns um Snorra Sturluson; sérstaklega fagurt og innilegt kvæðið um Baldur Sveinsson rit- stjóra, og andríkt og tilhrifamikið minn- ingarkvæðið um Einar Benediktsson skáld, í alla staði sæmandi þeim arnfleyga kon- ungi andans, enda að öllu samanlögðu, svipmesta kvæðið í bókinni. Eftirfarandi erindi gefa nokkra hugmynd um flug, myndagnótt og málsnilld þess kvæðis: „Þig hamdi ekkert vald við kotungskjör. Til konungstignar var þinn andi gjör. Á bergið laustu ljóðasprota þinum. Allt líf og hel þér varð að töfrasýnum. Um höf og álfur fórstu marga för. En aftur skjótt frá brögðum heims og brýnum, þú beittir undir Frón með hlaðinn knör. Þú beygðir fyrir lifsins konung kné. Þar kaustu þínum draumum hinztu vé og friðarhöfn úr volki œviára. 1 ástarfaðminn hneig þin sorgarbára. Án guðs er jörðin auð að frægð og fé. Þú gerðist vigi hinum seka og sára og sundurkrömdum anda stormahlé. Þú beindir starfi og von í vorsins átt. Þinn vængur kunni ei flugið nema hátt. Þú gerðir vora þjóðarhugsjón hærri. Vor heimur varð að ljóði þínu stærri. Því geymdir Frón þinn helga hörpuslátt. Þig, hvíti svanur, ber við framtíð fjærri. Vér fylgjum þér í sumarheiðið blátt.“ En Jón kunni líka þá list að kveðja ást- vini sína og aðra þá, er hann unni, í ljóð- línum, sem í einfaldleik sínum og ein- lægni, slá á næma hjartastrengi lesandans, eins og í kvæðunum um Guðbjörgu systur hans og séra Magnús Helgason. Manndómur og hreystihugur voru skáldinu að skapi um annað fram, og því er hið hreimmikla kvæði hans um Jón Ölafsson skipstjóra og „Sjómannaljóð1’ hans, er verðlaun hlaut, runnin heint undan hjartarótum hans. Sama máli gegn- ir um kvæðaflokkinn um Pál í Svinadal, og er margt fagurra kvæða og myndauð- ugra í þeim einyrkjaóði. Kvæðið „Sofið laust“ ber því vitni, að örlagaþrungnir atburðir aðdraganda ára heimsstyrjaldarinnar hafa eigi látið Jón ósnortinn, né heldur þung örlög frænd- þjóðanna á Norðurlöndum, eftir að þau soguðust inn í hringiðu styrjaldarinnar. eins og hið kröftuga kvæði hans „Norð menn“ sýnir ótvirætt. En þó að æðandi stormur samtíðarinnar nístu hann inn i hjartarætur, hélst framtíðartrú hans ó- breytt: „Vegna þess að heimi hærri hugsjón lifir fegri, skærri bak við alheims strið og strönd.“ Hann var einlægur trúmaður í víðtækri og djúptækri merkingu orðsins, eins og AKRANES sjá má ljóslega víða í kvæðum hans, og þá eigi síður í sálmunum þrem í þessu síðasta kvæðasafni hans, en tveir þeirra, sjó- mannasálmurinn „Líknargjafinn þjáðra þjóða,“ og lofsöngurinn, „Göngum vér fram,“ eru teknir upp i nýju sálmabókina íslenzku. Þetta er niðurlagsvers hins síðar- talda: „Hefjum í dag til dýrðar þér, drottinn vor, lofgerð nýja. Gjörum það fyrr en ofseint er undir þinn væng að flýja. Gef að vor þjóð ei missi móð, mæti oss élið þunga. Helgist vort ráð. Um lög og láð lofi þig sérhver tunga.“ Annars hefur Jón Magnússon lýst sjálf- um sér og lífsskoðun sinni ágætlega í þessu erindi úr minningarkvæðinu um Baldur Sveinsson: „Þú mætavel það vissir, ef veröld bæta skyldi, að óskavopnið eina, er ást og bróðurmildi. Og sannlega sá er mestur, þótt sé af fáum kenndur, sem geymir yl og geisla og gefur á báðar hendur." Þess vegna var hinum mörgu vinum hans, eigi síður en íslenzkum ljóðavinum almennt, svo mikill harmur kveðinn við fráfall hans á bezta skeiði. Þeir hörmuðu jöfnum trega hið ágæta skáld og göfug- mennið. Búnaðarbankinn Framhald af bls. 103. ar háar tölur í sambandi við svo mikla byggingu. Þegar bankastjórinn sagði mér, að allt þetta kostaði 41/2 miljón króna, undraði mig stórlega, að upphæðin skyldi ekki vera hærri. Miðað við allar aðstæður, er þetta hlutfallslega svo lágt, að athyglis- vert er og til eftirbreytni. Það er ljóst vitni um, að með nákvæmni, hyggindum og alúð hafi verið unnið, og óvenjulega góðri samvinnu allra aðila. Bændur landsins mega vera hreyknir af þessari fyrstu bankabyggingu þeirra, og vera þakklátir Hilmari Stefánssyni, bankastjóra fyrir þann stórhug, fram- sýni og myndarskap, sem húsið ber gott vitni um. Einnig húsameistaranum, Gunn- laugi Halldórssyni, fyrir þann mikla hlut, sem hann á í þessu verki. Þetta hæfir fullkomlega meira en þúsund ára gamalli stétt og aðalatvinnuvegi landsins frá land- námi þess til vorra daga. Með þessari traustu byggingu hefur is- lenzka þjóðin verið minnt á, að fylgja hinum snjöllu vísdómsorðum meistarans, Jónasar Hallgrímssonar: AKRANF.S Nú er bjart um Skipaskaga, skín á nes og vör, sendir honum ástarauga aldin jökulskör. Hillir uppi gömlu GarSa, goSa kostajörS, leikur mildur, austrœnn andi yfir BorgarfjörS. Fiskisœlir fjarSar álar fáSma auSugt land, brotnar faldhvít undiralda inn viS Langasand. HeiSin ber aS baki sveitar bjartan hamrastall, yfir bœ i bráSum vexti brosir Akrafjall. Er hér margt, sem augaS laSar: önn i sveit og bœ, vaskar hendur, vinnufúsar, verk á landi og sœ, már á báru, síld í sundum, sílgrœnt hey á teig, höfuSborgin handan flóans heilsar gullineyg. Úr faSmi hafnar hraustir sveinar hrinda skeiS á mar, hlýjar kveSjur hýrra meyja heiman fylgja þar. Flyij^ heim á kyrru kveldi knerrir dýran feng. Hafsins auSur hefir löngum heilláS röskan dreng. Heill þér, drottning flóans fagra, fengsœlt Akranes, meSan brag viS bakka þína bylgja hvikul les. AuS og giftu góSra vœtta gríptu höndum tveim, fylgi hún hverju fleyi þínu farsœllega heim. RAGNAR JÓHANNESSON. „Traustir skulu homsteinar hárra sala; í kili skal kjörviður; bóndi er bústólpi — bú er landsstólpi — því skal hann virður vel.“ Skáldið skildi til hlítar, að allt verður að engu, ef ekki er á bjargi byggt. Eg óska Búnaðarbanka íslands til ham- ingju og heilla með þessi húsakynni, sem á réttum tima eru hugsuð og fullgerð, með svo mikilli festu, framsýni og traust- leik, að óvenjulegt er og til mikillar fyrir- myndar í bráð og lengd. Ó.B.B. 113

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.