Akranes - 01.09.1948, Blaðsíða 36

Akranes - 01.09.1948, Blaðsíða 36
hans hefði dáið þá um nóttina, og tengdasonur hans lægi í næsta stofu fyrir dauðanum og bað mig að koma og tilkynna hinum unga manni lát konu hans, (þau höfðu verið gift í tæpt ár) og aðstandendurnir hvorki þorðu að segja honum það né leyna hann því. Svo fór ég með honum. Þetta voru vildarvinir minir. Maðurinn komst á fætur. — Þess má geta að KFUM-húsið var ólæst bæði nótt og dag, allan þenna tíma. — Ég kenndi mér einskis meins og hef ekki fengið hjarslátt síðan. Ég kom einn dag hlaupandi inn á Grettisgötu á leið i eitt af húsum mínum. Ég hljóp fram hjá stóru húsi og varð litið upp á húsið og þá sá ég kött sem stóð í glugganum fyrir utan glugga- tjöldin og var að sleikja rúðurnar. Ég hljóp áfram og hugsaði ekki meira um það. Svo um nóttina, er ég var lagstur út af, sá ég allt í einu köttinn fyrir mér og datt í hug: Skyldu nú allir liggja hjálparlausir í þessu húsi og kötturinn hafa í neyð sinni farið út í gluggann að svala sér á rúðumóðunni. Mér varð svo órótt að ég stóð upp og fór upp að þessu húsi og fann vökukonu og hún sagði mér að fólkið fengi aðhlynningu svo að ég fór rólegur heim. Ég skrapp við og við, er ég gat, inn til annara vina sem ég átti ekki að annast um. Þannig fór ég eitt kvöld inn á Berg- staðastræti 9. Þar bjó þá séra Bjarni. Ég vissi að hann var mjög veikur. Þau hjónin voru talsvert veik, en tengdamóðir hans, frú Anna var á fótum, svo að þar var öllu óhætt. En ég gleymi aldrei þessari komu minni þangað. Litli Ágúst, sonur þeirra, þá eins árs eða svo. Hann var ekki veikur. En þegar ég kom inn og hann sá mig, rétti hann út báða armana á móti mér og ég hef aldrei séð slikan fögnuð hjá svona ungu barni. Meðan ég hafði hann í fanginu, varð ég að harka af mér viðkvæmnina. Séra Bjami var þá að hressast. Því meira sem ég sökkvi mér niður i minningar þessa tima, því fleira kemur inn i hugann. Ég verð þvi að takmarka frásögn mína. Eftir þann 17. fór nú aftur að lifna yfir bænum og umferð •að vaxa. — En nú byrjaði nýr kafli. — Um 300 lík höfðu legið á líkbörunum í einu. Og nú byrjuðu greftranirnar. Það var átak- anlegur kafli. Líkkistur höfðu nú verið smíðaðar og nú byrjuðu kirkjuklukkurnar að hljóma. Óaflátanlega frá því um kl. 9 á morgnana og fram að myrkri voru þær í gangi og alls staðar mætti maður likfylgdum og syrgjandi fólki. — Prestamir urðu að ganga fram af sér. Stundum voru 5—6 kistur í einu í kirkj- unni. Það var átakanlegur tími. Þetta stóð yfir mest um kring sunnudaginn þann 24. nóv. Þann dag komu um 140 drengir á fund i KFUM. — Ég talaði við þá á þessa leið: „Nú á komandi dögum munuð þér oft mæta líkfydgdum. Sumir menn ganga rakleitt áfram. Það skuluð þér ekki gjöra. Nemið staðar og standið í réttstöðu og haldið á húfunum í hendinni meðan líkfylgdin fer fram hjá. Ef þér eruð að leika ykkur og sjáið líkfylgd nálg- ast, þá skuluð þið hætta leiknum á meðan.“ — Ég útmálaði fyrir þeim, hvað þetta væri fallegt og gæti verið lítilsháttar huggun fyrir syrgjendurna. Það kom brátt í ljós að drengirnir höfðu hugfest þetta. Ég sá eft, er ég kom með likfylgd innan úr bæ, þar sem ég hafði haldið húskveðju, að þeir drengir, sem mættu líkfylgdinni, námu staðar og tóku ofan höfuðfötin og stóðu svo grafkyrrir. Ég gekk vana- lega aftarlega og þegar ég kom framhjá þar sem drengurinn eða drengimir stóðu, heilsaði ég þeim með höfuðbeygingu í viður- kenningarskyni. Sæi ég þar aftur á móti dreng, sem anaði áfram án þess að standa, en tók svo ofan, er hann mætti mér, lét ég sem ég sæi hann ekki — Einu sinni þegar líkfylgd var að koma niður Bankastræti, sá ég tvo drengi sem stóðu þar á gangstétt- inni með húfurnar í hendinni. Þá komu tveir fullorðnir menn upp gangstéttina og héldu áfram og litu ekki við likvagnimmi. Svo komu þeir þar sem drengirnir stóðu. Þeir stönzuðu og litu undr- andi á drengina. Svo tóku þeir ofan fyrir því, sem eftir var af likfylgdinni. — Leið nú þessi vika eins og aðrar, þótt löng fynd- ist mér hún. Bærinn var nú að komast í sitt gamla gengi, þótt enn væri langt frá öllu aflokið. En næst átti sá sunnudagur upp að renna, er aldrei gleymist í sögu lands vors, né heldur þeim, er viðstaddir gátu verið hátíðahöld, sem þá fóru fram. Það var sunnudagurinn 1. desember. Þann dag átti að fagna því að Is- land yrði yfirlýst fullvalda ríki í konungssambandi við Dan- mörk. Það varð því mjög einkennilegur dagur. Allt sem hægt var að undirbúa var undirbúið. Stundu fyrir hádegi var mikill mannfjöldi kominn saman fyrirframan Stjórnarráðshúsið, svo þúsundum skipti manngrúinn. Það var skýjað loft. Það var allt fullt af fólki á stjórnarráðsblettinum, á Bankastræti og torginu fyrir framan. Yfir öllu hvíldi djúp kyrrð og alvara. Margir voru mjög veiklulegir og sorg var í hugum og svipum margra. Það var eins og sorgblíða og hátíð blandaðist saman. Svo gekk fylking af hermönnum frá varðskipinu danska upp miðganginn upp að Stjórnarráðshúsinu. Enginn fáni sást nokkurs staðar veifandi. Stöngin á byggingunni var auð. Ráðherra, Sigurður Eggerz, hélt ræðu og talaði um þenna mikilsverða atburð, og svo hélt yfir- maður varðskipsins, kapteinn Lorch, tölu og kom þar fram sem fulltrúi hans hátignar, konungsins. Þá byrjaði íslenzki, þrí- liti fáninn að stíga upp eftir stönginni, það varð dauðáþögn, það var eins og allir héldu niðri i sér andanum. Um leið og fáninn var að komast að hún, opnaðist skýjaþakið og bjart sólskin streymdi niður yfir stöngina og ljómaði á fánann. Þá rann úti í fyrir mörgum. Og um leið kváðu við fallbyssuskot frá varðskip- inu og mörg hundruð fánar þutu upp á fánastengur víðs vegar um allan bæ og á öllum skipum, er lágu úti á höfninni. Fagn- aðarópin risu nú upp, knúð fram af máttugri hrifningu mann- fjöldans. En samt sá ég tár renna niður kinnarnar á mörgum hraustum manni. fsland var nú viðurkennt það sem það varð árið 1262, og hafði í rauninni verið ávallt síðan, sambandsríki fyrst við Noreg og svo við Danmörk, en mn nokkrar aldir hafði þetta gleymst, og orðið í meðvitund heimsins aðeins aukaland undir annara valdi. Nú kunngjörði hinn viðurkenndi fáni: Sjá, nú tökum vér sæti við hlið hinna annara rikja Norðurlanda. — Ég man að ráðherrann óskaði þess í ræðu sinni, að danska þjóðin mætti fá þá ósk sína uppfyllta að fá aftur Suður-Jótland og tók kapteinn Lorch undir þá ósk. — Biskup fslands predikaði í Dómkirkjunni úl af tekstanum: Jes. 60, 1—2. Og mér fannst yfir guðáþjónustunni hvíla sami blærinn, sorgblíð hátíðargleði, eins og yfir athöfninni við Stjórn- arráðshúsið. Uppi í KFUM-húsinu var dagurinn lika hátíðlegur haldinn. Kl. 4 síðdegis var samkoma fyrir Y-D og U-D. Hún varð mjög fjölmenn. Um 400 drengir voru á fundinum. Er þeir komu inn í salinn, hékk á stafninum bak við ræðustólinn aðeins Dannebrog. Svo er fundurinn var byrjaður með söng og bæn, þá hélt ég ræðu um daginn og þýðingu hans og svo sagði ég í fáum drátt- um sögu danska fánans og útskýrði fyrir drengjunum, orsök þess að Dannebrog hefði aldrei getað verið eða orðið vor þjóðfáni, þó að vér hefðum orðið að nota hann um stund, og nú vildum vér í vinsemd kveðja hann og óska Danmörku allra heilla. Svo að gefnu merki stóðu allir drengirnir upp og stóðu þegjandi. Dannebrog tók hægt að síga niður og jafnsnemma byrjaði hinn íslenzki fullveldisfáni að stíga upp fyrir framan og Dannebrog hvarf bak við vorn eigin fána. Svo þegar hann var kominn alveg upp, þá lyftu allir drengirnir höndunum upp til fánans með hinni gömlu rómversku kveðju og sungu hyllingarsöng til fán- ans og hins íslenzka ríkis. Það vakti furðu drengjanna, að þeir sáu ekki með hverju fánamir voru dregnir niður og upp. I’að var útbúið þannig, að tveir drengir sátu á bak við orgelið og höluðu fánana með töngum, sem ekki sáust framan úr salnum, svo að þeir sýndust að svífa af sjálfu sér, i lausu lofti. Um kvöldið var fjölmenn samkoma í KFUM með hátíðarsniði. Fyrstu vikuna í desember héldu jarðarfarir áfram. Prestarnir áttu á þessum vikum ekki sjö dagana sæla. Það kom niður á 132 AKRANES

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.