Akranes - 01.09.1948, Síða 18
Friðrik Hjartar:
SKÓLAÁRSLOK 1948
(Sálmar 207 og 648)).
Loks nefni ég stafsetningu. — Rétt
rituð orð of 90:
Stafsetn. vorið 1945
11 ára börn 65
12 — — 72
13 — . 75
vorið 1948
73
76
79
Háttvirtu áheyrendur.
Góðir nemendur og samkennáraf.
Vér komum hingað í dag, til þess að
minnast þáttaskiptanna í starfi skólans.
Vetrarskólanum, skóla eldri harnanna
(11—13 ára), er nú lokið, en nýtt skóla-
ár hefst með starfi vorskólans fyrir yngri
hömin. Eldri börnin eru nú að kveðja
skólann, sum að sinni, en fullnaðarprófs-
bömin að fullu og öllu, sem nemendur
hans.
Eg vil nú fara nokkmm orðum um
starf skólans í vetur. Skóla hafa sótt 332
böm. Er það liæsta tala skólabarna hér
að þessu. Deildir voru 14 alls. Lögð hefur
verið sem áður aðaláherzla á móðurmál
og reikning. Leikfimi féll niður alllengi,
svo sem kunnugt er, vegna þess, að upp-
hitun brást í Iþróttahúsinu.
Allmargir hæjarbúar sáu um daginn
árangurinn af starfi nemenda skólans í
handiðju, skrift og teikningu. Tel ég, að
þið, börnin góð, megið vel una þeim
dómum, er fallið hafa um þetta. Vitnaði
sýningin, að margra dómi, um smekk-
vísi, vandvirkni og dugnað, einkum
handiðja stúlknanna, þótt fleira væri
nefnt. — Eru þessi ummæli mjög ánægju-
leg bæði fyrir yður og kennarana. —
Til nýjunga má telja, að fræðslukvik-
myndir hafa verið sýndar nemendum
skólanna hér, bæði gagnfræðaskólans og
barnaskólans. Hafa þeir kennararnir
Hans og Karl verið sýningarmenn.
Eykur þetta fjölbreytni kennslunnar
og verður þó að enn meira gagni, er ís-
lenzkir textar og íslenzkt tal verður tengt
myndunum. Mun þar sannast hið for-
kveðna, með sjón er jafnan sögu ríkari.
Félagsstarfsemi bamanna var með
mesta móti í vetur. Starfandi var Rauða-
krossdeild, dýravemdunarfélag og
bekkjarfélög í mörgum bekkjunum. —
Voru bömin yfirleitt dugleg og áhuga-
söm og leystu af hendi störf þau, er þeim
voru falin, með áhuga og dugnaði. Um-
sjónarkennararnir vom jafnan á fundum
með börnunum. —-
Skólaböm úr Rauðakrossdeildinni:
„Gleym mér ei“ seldu merki á öskudag
fyrir 1813 kr. 25 aura. — Fékk deildin
10% sölulaun eða kr. 181, 32. — Á
skíðadaginn seldust skíðamerki fyrir
467,10 kr. Skíðasjóður skólans er nú
2625,25 kr.. Má vonandi vænta þess, að
eigi líði alltof mörg ár, þar til „Skíða-
skáli Ramaskóla Akraness getur risið á
Skarðsheiði. —
Þá tóku skólabörnin mjög myndar-
legan þátt í „Barnahjálp sameinuðu þjóð-
anna.“ Var framlag þeirra samtals kr.
5075,65 og að auki frá Rauðakrossdeild-
inni „Gleym mér ei,“ kr 300,00 eða alls
kr. 5375,65-
Börnin hafa farið í stuttar gönguferðir,
aðallega á Langasand, en minnisstæðustu
förina fóm haustskólabörnin þann 17.
sept, er þau fóru í bílum að Stóru-Fells-
öxl í berjamó.
Teódór Árnason, fiðluleikari heimsótti
skólann dagana 8. og 9. okt. og skemmti
ókeypis með fiðluleik, sögu og ýmsum
fróðleik um fiðluna. Var honum tekið
hið bezta. — Bömin höfðu, að venju,
skemmtun til ágóða fyrir ferðasjóð barna-
skólans. Þótti skemmtunin takast vel og
hlaut góða dóma hjá þeim, er sóttu hana.
Alls söfnuðust í ferðasjóðinn kr. 3496.90
— Votta ég kennurum skólans beztu
þakkir fyrir störf þau, er þeir lögðu á
sig í sambandi við skólaskemmtunina,
sérstaklega þeim Þorgils Stefánssyni og
Hans Jörgenssyni, er þama voru aðal-
framkvæmdastjórar. —
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að
fáeinum námsgreinum. f haust lásu 7
ár börnin rúmlega 64 atkvæði rétt á
minútu, en í vor rúm 120 atkvæði rétt
á sama tíma. Framfarir tæplega 56 at-
kvæði — Átta ára börnin lásu í haust
tæp 109 atkvæði á min.. f vor lásu þau
rúm 170 atkv. á mín.. Framfarir rúmk
61 atkvæði rétt á mín.. Níu ára börnin
lásu rétt í haust rúm 151 atkvæði á mín.,
í vor lásu sömu böm rúm 202 atkv. rétt
á mín. Framfarir rúm 51 atkv. á mín..
Samkvæmt þessu hafa 7—9 ára börn
skólans lesið rétt á mínútu i haust tæp
107 atkvæði, en í vor rúm 163 atkv..
Framfarir tæp 561/2 atkv. á mín.. Hefur
lestur yngri barnanna hér þokast í áttina,
svo sem eftirfarandi tölur sýna:
Lestur vorið 1945 — 7—9 ára 131 atkv.
----- vorið 1948----------— 163 —
Þá vil ég víkja að reikningnum. Niður-
stöðutölur em þessar:
Reikn. vorið 1945
11 ára börn 23 d. rétt
12 — — 30— —
13 — — 35— —
af fimmtíu dæmum alls.
Fullnaðarprófsbörnin reiknuðu nú í
vor a.m.t. 36 d. rétt. Meðaltalseinkunn
þeirra er 7,20. Eldri börnin öll 10—13
ára reiknuðu a.m.t. 28 dæmi rétt; meðai-
einkunn þeirra 5,6. — 8—13 ára börn
reiknuðu a.m.t. 24 d. rétt. Meðaieinkunn
4,8-
Meðaleinkunnir í stafsetningu hafa
hækkað sem hér segir:
11 ára barna upp úr 4,6 upp í 5,8
12 — — — — 5,7 — - 6,2
13 — — — — 6,0 — - 6,8 -
öll prófin í nefndum námsgreinum eru
landspróf og mjög svipuð að þyngd frá
ári til árs. Að lokum vil ég taka það fram,
að ég tei, að skólinn hefði getað náð enn
betri árangri í starfi sínu, ef meiri sam-
vinna hefði verið milli heimilanna og
skólans, og forráðamenn barnanna hefðu
fylgzt nánar með störfum skólans og
námi barna sinna. Það má aldrei gleym-
ast, að skólarnir eru starfandi til þess að
hjálpa foreldrum við fræðslu og uppeldi
barnanna.
Heilsufar skólabarna hefur verið ágætt
í vetur og skólasókn yfirleitt góð. Hjúkr-
unarkona bæjarins hefur heimsótt skól-
ann við og við, eins og í fyrra vetur.
Hafa heimsókhir hennar aukið hreinlæti
í för með sér og eru hinar gagnlegustu.
Lýsisgjafir fóru fram að venju, og hafa
börnin sopið 285 lítra af lýsi alls.
Eins og ég sagði áðan, hafa 332 böm
sótt skólann í vetur. Árspróf hafa tekið
288 börn, en fullnaðarpróf þreyttu 44
börn. — Eiga sum þeirra eftir að ljúka
lögskipuðu sundnámi og sundprófi, og
geta því ekki fengið fullnaðarprófsskír-
teini sín, fyrr en þau hafa tekið sund-
prófið. —
Þau em aðeins 26, sem lokið hafá
fullnaðarprófi. Hafa 19 þeirra hlotið i.
eink., 6 — 2. eink. og eitt ág. eink. Er
það var Ormar Guðmundsson, sem fékk
9,45 í aðaleinkunn. Þetta er hæsta eink-
unn, sem nokkurt fullnaðarprófsbara
hefur hlotið hér, síðan ég kom hingað.
Frú Ingunn Sveinsdóttir hefur nú eins
og áður, sýnt skólanum þá vinsemd að
veita þeim fullnaðarprófsbörnum viður-
kenningu, er að dómi skólastjóra og kenn-
ara hafa skarað fram úr um dugnað og
ástundun við námið og verið prúðir nem-
endur.
Ormar Guðmundsson. Hér með afhendi
ég þér umrædda viðurkenningu. Óska ég
þess og vona, að þessi bók minni þig á,
að trúmennska og skyldurækni við öll
störf eru góðir og hollir skapgerðarþættir
og gulls ígildi.
Ég afhendi svo skírteinin á eftir.
Að lokum sný ég máli mínu til yðar,
kæru böm, sem nú emð að kveðja og
skilja að fullu við skólann, sem nem-
endur hans. Ég þakka yður fyrir sam-
vorið 1948
25 d. rétt
33— —
36------
114
AKRANES