Akranes - 01.01.1957, Blaðsíða 8

Akranes - 01.01.1957, Blaðsíða 8
mönnum var sá starfi ekki laginn. Stund- inn komu þrímöstruð barkskip með salt, en þau flutu ekki með fullfermi að bryggjunni, svo skipa varð upp á bát- um eins og gera varð úr póstskipunum. Þótti honum það seinlegt og sá að hér þurfti aðgerða við. Síldveiði nokkur var þá stundum á Bíldudal. Gátu skipin því oft íengið nýja beitu, en að geyma hana óskemmda var ómögulegt þar sem ekkert íshús var á staðnum. Þótti honum þar enn verkefni fyrir höndum. Sumarið 1896 lét liann byggja allstórt íshús, er hann þá stækk- aði tveim árum síðar. Sendi hann nú skip eftir ísfarmi til Reykjavíkur og jafnframt mann til að kynna sér um- sjón og fyrirkomulag slíkra húsa. Jafn- hliða lét hann gera 2 tjarnir um 8ooom- að flatarmáli og var garður á milli þeirra. Tilheyrði ytri tjörnin íshúsinu til ístöku, en hin var gerð til þess að börn Thorsteinssons og allir, sem vildu, gætu notað hana til skautaferða. Tók íshús þetta til starfa strax um veturinn. Ekki var Thorsteinsson umsvifaminni á næsta ári (1897). Lét hann þá gera veg frá Banaklettum og inn að svonefndu Búðar- gili. Var hann um 600 m að lengd, og svo breiður að enn (1944) er hann not- aður sem bílvegur. Þá byggði hann og hús til fiskgeymslu og saltgcymslu, er kallað var Langiskúr. Var hann 76 m langur en tæpra 6 m breiður. Þá lét hann gera hafskipabryggju um 50 m langa og 7 m breiða framan til. Var hún svo öflug og náði svo langt fram, að póstskip Sameinaða félagsins gátu legið við hana og affermt. Við bryggju þessa ofan til byggði Thorsteinsson hús, til þess að þar yrði gert að nýjum fiski. Var hús þetta 10X10 m, byggt á staurum og féll sjór undir það. Mátti telja allt þetta mikil mannvirki gerð á einu sumri eftir þeirra tíma mæli- kvarða og tilliti til annarra verzlunar- staða jafnvel Isafjarðar og Reykjavíkur. Var nú fjöldi verkafólks á Bíldudal, karl- ar og konur, bæði af Vestur- og Suður- landi, og sjómenn úr öllum landsfjórð ungum, því þótt Thorsteinsson hefði nú í mörgu að snúast, gleymdi hann ekki sjávarútveginum, en keypti hvert skip- ið á fætur öðru bæði innanlands og ut- an. Þar á meðal gufubát er ,,Muggur“ var nefndur. Var hann látinn stunda fiskiveiðar með lóðum, en með nokkuð öðrum hætti en nú gerist á íinubátum. Var róið út á „doríum“, og voru tveir menn á hverri með vissan lóðafjölda. Þótti sú veiðiaðferð ekki allskostar hent- ug, sízt í vondu tiðarfari. Mun Thor- steinsson varla hafa grætt á útgcrð þess- ari, því bát þennan seldi hann til útlanda tveimur árum síðar. Á þessum árum hafði Thorsteinsson kolaafgreiðslu fyrir Sameinaða gufuskipa- félagið, umboð lífsábyrgðarfélagsins Star, bókasölu, sölu ýmsra algengra meðala, hafði um tíma prentsmiðju, gaf út blað- ið Amfirðing, og yfirleitt má fullyrða að ekkert væri það gert sem til fram- fara horfði, að ekki væri hann meira eða minna við það riðinn. Voru og til- lögur hans jafnan mikils metnar, þvi að ráðdeild hans og hagsýni var öllum kunn. Árið 1895 varð bróðir Thorsteinssons, Guðmundur Scheving, sem búsettur var í Kaupmannahöfn meðeigandi í verzl- uninni, og ári síðar keypti Thorsteins- son verzlunarstaðinn Vatneyri við Pat- reksfjörð, en nokkrum árum síðar hóf hann verzlunarrekstur og þilskipaútgerð í Hafnarfirði, árið 1900. Um og eftir aldamótin keypti Thor- steinsson 4 stóra enska kúttera til fiski- veiða. Nefndi hann þá: Haganes, Kópa- 8 AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.