Akranes - 01.01.1957, Blaðsíða 9
nes, Sléttanes og Langanes. Skömmu síð-
ar keypti hann danskan kútter, sem
hann nefndi Hvarrnes, og var hann
stærstur þeirra allra. Munu þá hafa ver-
ið yfir tuttugu fiskiskip á Bíldudal. f
sumum kúttera þessara höfðu verið
hjálparvélar til að draga upp botnvörpur.
Thorsteinsson tók vélar þessar úr skip-
unum og notaði hina stærstu þeirra til
að draga skipin á land, og byggði hús
yfir hana. Síðan voru öll skip á Bíldudal,
er upp voru sett, dregin upp með gufu-
afli.
Það var fyrst árið 1898 að Thorsteins-
son leigði eimskip til millilandasiglinga,
en eftir það hafði hann jafnan eimskip
í förum. Sóttu þau bæði salt og kol, en
fluttu fiskinn til Spánar og ítaliu.
Á árunum 1890 til 1900 komu stund-
um lausakaupmenn á fjörðinn. Voru það
einkum N. Chr. Gram kaupmaður á
Þingeyri, sá sem áður var nefndur,
Markús Snæbjörnsson kaupmaður á
Geirseyri, og sumurinn 1896 og 1897
Thor Jensen kaupmaður á Akranesi.
Var Iiann hið mesta ljúfmenni, bæði í
viðskiptum og umgengni. Þótti mönnum
þar gott að verzla. Þar var risnubragur
á öllu, og fengu allir góðgerðir sem á
skip hans komu, bæði karlar og konur,
og hvort sem verzlað var mikið eða lítið.
Illa var Thorsteinsson við verzlun
lausakaupmanna sem von var frá hans
sjónarmiði, því að hún dró mjög úr
verzlun hans og fiskkaupum, en honum
varð sjaldan ráðafátt.
Frá aldaöðli hafði það verið venja
allra Arnfirðinga er róðra stunduðu, að
AKRANES
9