Akranes - 01.01.1957, Blaðsíða 11
Verzlunarmenn og verkstjórar hjá P. J. Thorsteinsson á Bíldudal. — Fremri röð frá vinstri: Jón
Eiríksson, Simon Bjarnason, Hermann Thorsteinsson, Hannes B. Stephensen. — Aftari rö?i: Árni
Kristjánsson, Jón Sigurðsson, Sigfús Bergmann, Bjarni Loftsson.
Sumarið 1902 var sildveiði mikil >á
Bíldudal og komu þar þá mörg skip
norsk og stunduðu sildveiði. Tvö norsk
síldveiðifélög hugðu að stunda síldveiði
á Bíldudal í framtíðinni, og byggðu i
því skyni sitt húsið hvort i Naustabót-
inni vorið eftir. En það sumar (1903)
kom engin síld. Félögin hættu þá við,
en Thorsteinsson keypti húsin.
Um haustið fluttist Thorsteinsson með
fjölskyldu sina til Kaupmannahafnar og
settist þar að, en kom þó jafnan til ís-
lands á sumrum og hafði eftirlit með
ver7.1ununum.
Árið 1905 varð sú breyting á að verzl-
unarstjórarnir á öllum 3 verzlunarstöð-
unum urðu meðeigendur verzlananna
hver á sínum stað. Verzlimarstjóri á
Bíldudal var þá Hannes Stephensen
Bjarnason bónda á Reykhólum, Þórðar-
sonar. Nefndist verzlunin þá Hannes B.
Stephensen & Co.
Ekki var Thorsteinsson nema fá ár 1
Kaupmannahöfn, en fluttist þá til
Reykjavíkur og byggði þar vandað og
fallegt íbúðarhús.
Árið 1907 var í Kaupmannahöfn stofu-
að félag til verzlunarreksturs á Islandi.
Var Thorsteinsson með í félagi þessu og
seldi því verzlanir sinar, en varð sjálfur
forstjóri félagsins. Félagið var nefnt P.
J. Thorsteinsson & C., en var í daglegu
tali kallað „Milljónafélagið“.
Sumarið 1908 var allmikið um að vera
á Bíldudal. Lét Thorsteinsson þá 2 tog-
ara leggja afla sinn upp á Bíldudal, og
byggja þar allstórt hús til fiskþvottar,
og var sjó dælt með vélarafli upp í hiis-
A K R A N E S
11