Akranes - 01.01.1957, Blaðsíða 25

Akranes - 01.01.1957, Blaðsíða 25
af bankaseðlum, sem urðu einskis virði. Jón Kolbeinsson dó 1836 og var jarðsung- inn að Helgafelli. Húseignir hans keypti Jakobsen apotekari — og stofnsetti þar lyfjabúðina 1838, en hann var fyrsti lyf- sali í Stykkishólmi. I3á voru hvergi lyfjabúðir hér á landi, nema í Reykja- vík og á Akureyri, enda var fyrsta lyfja- búðin á ísafirði útibú frá Stykkishólms- lyfjabúð. Bogi Benediktsson stjórnaði verzlun Ölafs- Thorlaciusar af mikilli festu, en var'' talinn harðdrægur í viðskiptum — og eru margar sögur um það. Hann varð ríkur maður — og eignaðist fjölda jarða um nærliggjandi héruð. Ólafur Thorlacius dó óvænt 1815, að- eins 54 ára að aldri. Féll hann af stræt- isvagni í Kaupmannahöfn. Synir hans, Árni og Ólafur voru þá börn að aldri — og gerðist Bogi fjárhaldsmaður þeirra og ráðunautur ekkjunnar. Dánarbú Ól- af.s riddara Thorlaciusar mun hafa ver- ið talið auðugasta bú hér á landi á þeim tíma. Bogi tók við yfirstjóm verzlan- anna, en þær voru þrjár, í Stykkishólmi, á Bíldudal og á ísafirði (Hæztikaupstað- urinn), auk skipa. Guðrún, ekkja Ólafs Thorlaciusar, gifti sig aftur árið 1818 — og skipti hún þá búinu og afhenti sonum sínum arfahluta þeirra sem fjár- haldsmaður bræðranna. Bogi Benedikts- son veitti móttöku fyrir þeirra hönd. Árni Thorlacius tók við eignum sín- um af Boga árið 1827 og settist að i Stykkishólmi, en Bogi Benediktsson flutti inn að Staðarfelli og lifði þar á efnum sínum — og stundaði fræðiiðkanir. Árni var merkur maður. Hann mun hafa ver- ið fyrsti Islendingur, sem tók skipstjóm- arpróf erlendis. Hann erfði stórt hafskip með verzlun sinni — galeasinn „Bil- dahl“, sem síðar var nefndur Stykkis- hólms-galeasinn. Hann fór margar ferðir til útlanda á þessu skipi sínu á næstu árum. Sumarið 1828 fór hann á skipi sínu til Björgvinjar og sótti timbur i ibúðarhús sitt, „Norska húsið“, sem enn stendur í Stykkishólmi og er nú eign Kaupfélags Stykkishólms. Ferð Árna til Björgvinjar gekk svo að óskum, að eftir hálfan mánuð, frá því að hann lagði af stað frá Stykkishólmi, var hann kom- inn heim aftur með skip sitt hlaðið timbri — og var þilfarshleðslan í mið möstur. Árni rak verzlun og gerði út 3 fiskiskip i Stykkisólmi næstu árin — en kaupmennskan og útgerðin var honum ekki ábatasöm — og eftir 10 ár, eða 1837, var hann kominn í miklar skuld- ir við umboðsmann sinn í Kaupmanna- höfn, sem hét Sass. Það varð að sam- komulagi, að Sass keypti af Árna verzl- unina og skipin, en að öðru leyti sat Árni eftir með aðrar eignir sínar, sem voru miklar og entust honum alla æfi. Árni andaðist fjörgamall árið 1891. Eftir að Sass hafði yfirtekið verzlun og útgerð Áma Thorlaciusar sendi hann ungan mann, Marlin Smidt, til að veita henni forstöðu. Smidt dvaldi aðeins 5 ár í Stykkishólmi — en telja verður, að hann hafi sótt þangað mikla gæfu. Hann giftist einni af dætrum Boga Benedikts- sonar og fék með henni mikil efni. Eft- ir veru sína í Stykkishólmi flutti Martin Smidt til Reykjavikur og var þar mikils metinn borgari. I sama mund, eða 1842, keypti Hans A. Clausen verzlunina af Sass og tók þá Páll Hjaltalín við henni og stjórnaði henni af mikilli fyrirhyggju til dauðadags árið 1876. Þótti Páll Hjaltalín merkur kaupmaðm'. Hann var kvæntur Jenssínu Steinback, systur Magðalenu, konu Áma Thorlaciusar. Um og eftir miðja 19. öld (1840— 1860) verzluðu tveir synir Boga Bene- diktssonar í Stykkishólmi, og gerðu skip AKRANES 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.