Akranes - 01.01.1957, Side 26
út á fiskveiðar. Gekk útgerðin sæmilega
og var fiskurimx verkaður í Súgandisey.
Brynjólfur Benediktsson verzlaði nokkur
ár (um 1840) í félagi við Pétur Kol-
beinsson (son Jóns kaupmanns) og var
sú verzlun nefnd „Compagni-verzlunin
í Stykkishólm“. Það Compagni endaði á
þann veg, að Brynjólfur eignaðist allar
eignirnar, en flutti skömmu síðar til
Flateyjar. Hann varð ríkur maður og
þótti mikill höfðingi. Kona hans var frú
Herdís Benediktsen, sem ásamt dóttur
sinni, gaf eignir sínar til að reisa kvenna-
skóla við Breiðafjörð. Sá skóli var reistur
að Staðarfelli, mikið fyrir tilstyrk heið-
urshjónaima Soffíu Gestsdóttur og Magn-
úsar Friðrikssonar, sem sýndu þá rausn
að gefa Staðarfell sem skólasetur.
Annar sonur Boga Benediktssonar, sem
verzlaði í Stykkishólmi 1840—1860, var
Benedikt Bogason „Rodemeistari". Hann
hafði verið í Danmörku og haft að at-
vinnu að vera „Rodemester“ eða skatt-
kröfumaður í Kaupmannahöfn — og fest-
ist þetta nafn við hann hér heima. Hann
byggði verzlunar- og ibúðarhús þau, sem
Samuel Richter og síðar Gramsverzlun
áttu. Samuel Richter tók við verzlun
Rodemeistarans, en Chr. Gram keypti
svo af honum skömmu síðar. Richter var
verzlunarstjóri Gramsverzlunar í nær 50
ár og stjórnaði hann verzluninni af fyrir-
hyggju og mikilli lipurð. — Leonh.
Tang keypti þessar fasteignir eftir síð-
ustu aldamót — og loks keypti ég þær
eftir 1930 ásamt fleiri fasteignum Tangs-
verzlunar í Stykkishólmi.
Eftir andlát Páls Hjaltalins tók sonur
hans, Sören Hjaltalín við Clausensverzl-
im og stjómaði henni í 3 eða 4 ár. Hann
var faðir Magðalenu, konu Sæmundar
Halldórssonar kaupmanns, sem var mikil
merkiskona og lifði allan aldur sinn í
Stykkishólmi. Árið 1879 flutti Holger
Clausen til Stykkishólms og tók við verzl-
uninni. Hann var þá nýkvæntur seinni
konu sinni, Guðrúnu Þorkelsdóttur frá
Staðastað. Heimili þeirra Clausenshjón-
anna var rómað fyrir mikla rausn. Hol-
ger Clausen var 18 ár í Stykkishólmi eða
til 1897, en þá seldi hann eignir sínar
til Leonh. Tang, sem hafði verið umboðs-
maður hans í Kaupmannahöfn — og
flutti til Reykjavíkur ásamt fjölskyldu
sinni.
Holger Clausen. Séra Eiríkur Kúld.
Árið 1893 byrjaði Sæmundur Hall-
dórsson að verzla i norðurenda gamla
Apóteksins, en árið 1900 byggði hann
verzlunarhús sitt, sem nefnt er „Hjalta-
linshús“. Um aldamótin síðustu voru
þrjár verzlanir í Stykkishólmi, Grams-
verzlun, verzlunarstjóri Samuel Richter,
Tangsverzlun, verzlunarstjóri Ármann
Bjarnason og verzlun Sæmundar Hall-
dórssonar, er hann veitti sjálfur forstöðu.
Þessir þrír kaupmenn voru harla ólikir
að skapgerð og í framkomu við viðskipta-
menn sína — en áttu það sameiginlegt
að vera stétt sinni til sóma í starfi sínu.
Allt frá 1837, að Sass keypti verzlun-
ina af Áma Thorlacius og fram til þessa
tíma, eða í 120 ár, eru til höfuðbækur
og viðskiptamannabækur, sem tekizt hef-
ir að varðveita frá eyðilegingu — og
hafa þær að geyma margvíslegan fróð-
leik í sambandi við verzlun og útgerð
26
A K R A N E S