Akranes - 01.01.1957, Side 55

Akranes - 01.01.1957, Side 55
hamslausa veiði togaranna væri hættu- leg á grunnmiðum, og þá alveg sérstak- lega á uppeldis- og hrygningarsvæðum fiskjarins. Hann fékk því — eins og fleiri hér á Akranesi — mikinn áhuga fyrir algerri friðun Faxaflóa. Létti honum mjög er landhelgislinan var færð út, og firðir og flóar friðaðir. Kona Bjama Brynjólfssonar er Hall- fríður Steinunn Sigtryggsdóttir, fædd á Bræðraparti 20. maí 1874, og er því eitt af ,.þúsund ára bömunum“ Hún er fædd á heillaári, og allt líf hejinar hefur verið heillaríkt, mótað af óvenjulegri prúðmennsku og samvizkusemi til orðs og æðis. Foreldrar Hallfríðar voru: Sig- tryggur Guðmundsson bóndi i Kárabæ cg á Bræðraparti og kona hans Halldóra Ásmundsdóttir, frá Elínarhöfða, systir Þorláks bónda Ásmundssonar í Kjalar- dal og Ósi, og er það Bergsætt. Þótt Bjarni stundaði alla tið sjóinn, eins og hér hefur verið sagt, hafði hann jafnan nokkrar kindur á fóðium. Bæði var það nokkur búbót, en hann hafði einnig mikla garðrækt, og það þótti hér mikil nauðsyn að hafa eitthvað af líf- rænum áburði til þess að bera i garðana. Það liggur því í augum uppi, að hin al- gera sjósókn Bjarna hafði gert það að verkum, að þessi búsýsla heima, hafi komið æði mikið niður á húsmóðurinni og hörnunum, jafnóðum og þeim óx fisk- ur um hrygg. Á yngri árum Bjarna var hér ekki mikið um skemmtanir. örsjaldan dans- leikur þar sem einhver spilaði á litla einfalda harmóniku eftir eyranu. Bjarni hefur áreiðanlega verið dálítið músikalsk- ur, þvi hann spilaði hér lengi fyrir dansi, og þótti gera það vel, og af hjartans list. Var þetta mjög mikils virði í allra fá- breytni skemmtanalífsins þá, þar sem lítið var um þessi hljóðfæri og enn færri sem treystu sér með þau að fara. Bjarni var, eins og áður er sagt, mjög hægur maður og prúður, en seigur og sinnugur. Hann var hinn mesti dreng- skaparmaður og tryggur i lund, og hafði mikinn áhuga fyrir framförum byggðar- lags síns. Óvenjulega var hr.nn kunn- ugur leiðum og lendingum hér í ná- grenninu, enda fór hann þetta oft og lengi, bæði á opnum skipum, og til flutn- inga á mótorbátunum eftir að þeir komu til sögunnar. Hann var ágætur og umhyggjusamur heimilisfaðir, og var hjónaband hans og Hallfríðar mjög gott, Börn þeirra, sem til aldurs komust: 1. Sigtryggur, sjómaður, Suðurgötu 80. 2. Ásmundur, matsmaður, Suðurg, 25. 3. Haraldur Gísli, trésmiður, Mánabr. 9. 4. Guðjón bifreiðastjóri á Suðurg. 103. 5. Dóra, gift Hirti Líndal, bifreiðastjóra Sigurðssyni, Halldórssonar, skósmiðs, Ólafssonar. Þau eiga einnig heima í Bæjarstæði. Kjördóttir þeirra er Dóra Líndal. Allra þessara barna verður síðar getið í þessum þáttum í sambandi við hús þau, er þau nú búa i. Alsystir Bjarna Biynjólfssonar er Kristín Brynjólfsdóttir. Hún giftist Sigur- jóni Einarssyni i Keflavik, en þau bjuggu síðar á Litla-Hólmi í Leiru. Einar, faðir Sigurjóns, var frá Norðurgarði í Hvol- hreppi, Einarssonar, bóndi á Stóra-Mos- hvoli i Hvolhreppi, Einarssonar. Einar mun hafa verið ókvæntur, en bjó með ráðskonum, hin fyrri þeirra var Þór- unn Jónsdóttir í Nýjabæ í Laugardals- sókn Ásbjörnssonar, en hún var móðir Sigurjóns á Litla-Hólmi. Meðal barna þeirra Sigurjóns og Kristínar eru: Ingólfur Sigurjónsson, verkstjóri á Litla-Hólmi og Þorbergur Pétur Sigur- jónson, kaupmaður í Reykjavík. A K R A N E S 55

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.