Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 27
VIÐBÆTIR VIÐ ÁRBÓK ISLANDS 1877.
Nóvember 13. Andaðist síra Björn Stefánsson, prestur að Sand-
felli í Öræfum.
— 26. Strandaði „Gefjon“, skip Gránufjelags, fyrir Olafsfjarð-
armúla. Skipverjar fórust allir, þar á meðal einn íslendingur,
Eggert Jónsson, prests að Mælifelli.
— 28. Strandaði norskt kaup-skip á beimleið frá Borðeyri
fram undan þaralátursnesi á Ströndum.
Deoember 1. Drukknuðu 4 menn á bát nálægt Skriðnessenni í
Strandasýslu.
— 14. Skipaði landsböfðingi 5 manna nefnd samkvæmt kon-
ungsúrskurði 5. nóv. til að semja lagafrumvörp um nýja
brauðaskipun og kirknaskipun og gjöld til prests og kirkju.
Skyldi áður fengið álit hjeraðsfunda, er haldast skyldu í
júnímánuði komanda sumar. I nefndinni urðu stiptsyfirvöld-
in, síra þórarinn prófastur Böðvarsson, dr. Grímur Tbomsen
og Einar alþingismaður Ásmundsson í Nesi.
•— 21. Andaðist Torfi Einarsson á Kleifum, alþingismaður
Strandasýslu, um sjötugt.
— 28. Andaðist Egill bókbindari Jónsson í Eeykjavík, um
sextugt.
— s. d. Staðfestur reikningur hins íslenzka biflíufjélags 1.
júlí 1876—l.júlí 1877. Eptirstöðvar l.júlí 1877: 11,364 kr.
49 aurar.
—- 31, Eptirstöðvar nokkurra opinberra sjóða um árslok 1877:
Prestaskólasjóðurinn: 3,401 kr. 90 aurar. Gjöf Halldórs
Andrjessonas; 2,401 kr. 82 a. Prestsekknasjóðurinn: 13,439
kr. 91 e. Guttormsgjöf: 1,572 kr. 29 a. Sjóður af árgjöld-
um brauða: 2,069 kr. 24 a. Sjóður fátækra ekkna á Norður-
landi, einkum í Hegranessþingi: 1,603 kr. 70 a. Jafnaðar-
sjóður norður- og austuramtsins: 3,738 kr. 79 a. Jafnaðar-
sjóður suðuramtsins: 4,130 kr. 75 a. Jafnaðarsjóður vestur-
ámtsins: 5,663 kr. 97 a. Styrktarsjóður maklegra og þurf-
andi konungslandseta í suðuramtinu: 3,899 kr. 36 a. Bún-
aðarskólasjóður suðuramtsins: 4,723 kr. 91 e. Búnaðarskóla-
sjóður vesturamtsins: 3,466 kr. 97 a. Búnaðarsjóður vestur-
amtsins 10,100 kr. 43 a. Thorkillii barnaskólasjóður: 66,403
kr. 48 a. Alþýðuskólasjóðurinn á Hrútafirði 2,360 kr. 88 a.
(Við árslok 1876: Búnaðarsjóður norður- og austuramtsins:
4,205 kr. 8 a. Jökulsárbrúarsjóður: 2,920 kr. 45 a. Sjóður
Guttorms prófasts þorsteinssonar: 1,600 kr. Sjóður Pjeturs
sýslumanns þorsteinssonar: 2,979 kr. 39 a. Styrktarsjóður
handa fátækum ekkjum og munaðarlausum börnum í Eyja-
fjarðarsýslu og Akureyrarkaupstað: 2,150 kr. 85 a. Gjald
til búnaðarskóla í norður- og austuramtinu: 4,941 kr. 53 a.
í fardögum 1876: Jóns Sigurðssonar legat: 14,928 kr. 99 a.
Gjöf Jóns Sigurðssonar til Vallahrepps: 2,310 kr.).
(25)
i