Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 53
6.
7.
8.
undir peningabrjef jafnmikið og önnur brjef eptir
þyngd, og að auki í ábyrgðargjald fyrir
bverjar 200 kr. eða nsinna..................... 25 aur.
— böggla (mega vega mest 10 pd.)............ 25 —
og að auki fyrir hvert pund eða minna sem
böggullinn vegur........................... 10 —
Ábyrgðargjald fyrir hverjar 200 kr. eða
minna, sem til greint er að í bögglinum sje 25 —
— peninga, sem sendir eru í póstávísunum,
fyrir hverjar 30 kr. eða minna............. 20 —
þó aldrei meira undir eina ávísun en 80 a., enda
má engin póstávísun nema meiru en 200 kr.
c) frá íslandi til annar landa í Norðurálfu, svo og til
Canada (Nýja-íslands), New-Foundlands og Bandarík-
janna í Norður-Ameríku, til Azoreyja, Balear-eyja og
Kanaríeyja, til Madeira, tii spænskra pósthúsa norðan
á Afríku, til Bgiptalands, Persalands, og í Kússalönd
og Tyrkjalönd í Asíu.
1. undir sendibrjef, sem vegur 3 kv. eða minna.... 20 aur.
Sje brjefið þyngra, þá 20 a. fyrir hver 3 kv.
eða minna.
2. — krossbandssendingar (prentað mál, viðskipta-
skjöl og sýnishorn af varningi) fyrir hver
10 kvint eða minna........................ 5 —
d) frá íslandi til Argentína, Brasilíu, Liberíu, Yestur-
heimseyja Dana, í nýlendur Spánverja, Frakka, Portú-
galla og Hollendinga, til Trinidad, Bermúdas-eyja,
ílendur Breta vestan á Afríku, í lönd Breta í Austur-
Indíalöndum, til Japan, Mexico og St. Salvador.
1. undir sendibrjef, sem vegur 3 kv. eða minna.... 30 aur.
Sje það þyngra, þá 30 a. fyrir hver 3 kv.
eða minna.
2. — krossbandssendingar, fyrir hver 10 kv. eða
minna..................................... 10 —
Ekkert sendibrjef má vega meira en 50 kvint (1 mörk).
Sama er og um krossbandssendingar innanlands eða til Dan-
merkur, en til annara landa má krossbandssending vega 4 pd.
(mest), nema hún hafi að geyma sýnishorn af varningi, þá ekki
meira en mörk.
Undir öll sendibrjef og aðrar sendingar með pósti skal
borga með íslenzkuin frímerkjum, hvert sem þær eiga að fara
um víða veröld. Frímerkin eru limd á sendibrjef og krossbands-
sendingar, og á tilvisunarbrjef þau, er lokuðum bögglum (þ. e.
bögglum, sem ekki eru krossbandssendingar) eiga að fylgja, en
ekki á bögglana sjálfa.